SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Page 16

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Page 16
16 28. mars 2010 Ís og eldur vegast á í náttúrunni. Hrikaleg hraunelfan streymir niður í Þórsmörk um Hrunagil. F rá landnámi hefur fjórum sinnum gosið í Eyjafjallajökli; fyrst um 920, síðan 1612, 1821 og nú 2010,“ segir Bragi Þ. Ólafsson sagnfræðingur í handritadeild Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. En þar er varðveitt lýsing á eldgosinu 1821. „Hana er að finna í handritinu ÍB 11 fol, en það eru drög að jarðeldasögu Íslands sem Jónas Hallgrímsson skáld og náttúrufræðingur tók saman á árunum 1840- 1845. Jónas studdist við ýmsa annála við þessa samantekt.“ Um gosið 1821 segir (fært til nútímastafsetn- ingar): „Þetta gos hófst svo: í rökkri og um vökuna mið- vikudaginn 19. des. 1821, sáust oft leiftranir í heið- skíru veðri og daginn eftir um miðmunda sást hæst á Eyjafjallajökli lítill hvítleitur skýjabólstur og lagði á svipstundu hátt upp á loft og varð að þykkum reykjarmekki er sortnaði því meir sem frá leið. Veður varð heiðskírt og lygnt. Um sólsetur hvarf reykurinn, en skömmu seinna gekk enn meiri mökkur upp af jöklinum og voru ofarlega í honum leiftranir og eldglæringar, svo menn gengu úr skugga um að þetta var verulegt eldgos. Frá 21. til 27. gekk mökkurinn ákaft upp með landnorðanveðri og lagði fram og vestur af fjallinu; dökknaði þar jökullinn fyrir af öskufallinu, en mökkurinn óx æ meir og dreifðist út um veð- urloftið, varð þá mikið öskufall undir Ytri- Eyjafjöllum og Austur-Landeyjum. Einstaka sinn- um brá fyrir eldi á jörðunum neðan til við mökk- inn, og fyrstu dagana uxu nokkuð vötn og ár og vestur með Eyjafjallajökli heyrðust óttalegir dynkir í honum eins og hann mundi þá og þegar springa fram. Hlýtt veður var um alla þá daga. Öskufallið rénaði skömmu eftir nýár 1822 og náði aldrei til manna nema yfir þær sveitir sem áður eru nefndar. Úr því rauk alltaf úr gjánni og brestirnir héldust í jöklinum við og við en sjaldan sást til elds eða verulegra gosa fyrr en hallandi Jónsmessu að ösku- fallið hófst á ný og var mjög vægt en langvinnt og varð að mestu tjóni miðsveitir undir Austur- fjöllum. Ekki flýðu menn byggðir sínar að stað- aldri, en þó fylgdu nokkrir skepnum sínum á burt um stund og þær sem eftir voru urðu mjög gagns- litlar og þrifust illa á heyjunum veturinn eftir. Svo þrengdi að þeim sveitum að lá við bjarg- arleysi og urðu aðrar sveitir að hjálpa þeim með gjöfum. Öskufallið sáldraðist úr jöklinum við og við allt fram um árslokin og enn var að gufa úr honum hvítleitur vatnsreykur meir en tvö ár úr því. Magnús hreppstjóri Sigurðsson gekk á jökulinn við þriðja mann vorið 1823 og skoðaði eldgjána. Lá hún frá norðri til suðurs þar sem áður er sagt, og virtist þeim hún hér um bil 1.000 faðma löng og 30 faðma breið þar sem mjóst var og botnlaust kletta- gljúfur að sjá. Á þrem stöðum öðrum rauk þá upp úr jöklinum um göt með allmiklu millibili suð- vestur af gjánni.“ Eldgosið 1821 með orðum Jónasar Úr handriti ́Jónasar Hallgrímssonar sem er í handritadeild Landsbókasafns Íslands - Há- skólabókasafns. Haraldur við orminn langa, hraunfossinn sem steypist ofan í gilið.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.