SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Qupperneq 21

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Qupperneq 21
28. mars 2010 21 mín ákvörðun, og ég svaraði því játandi.“ Á fimmtudagsmorgni fór Bragi svo í blóðrannsókn og síðan í sneiðmyndatöku, og ákveðið var að hann færi undir hnífinn morguninn eftir. Viltu sílikon? Bragi vissi ekki svo gjörla hvað hann væri að fara út í. „Ég hef aldrei verið svæfður nema af mömmu þegar ég var lítill!“ „Hafsteinn fór yfir aðgerðarplanið með mér og talaði um ferlið sem færi í gang. Það var þá sem hann spurði mig hvort ég vildi sílikoneista,“ segir Bragi og segist hafa orðið undrandi yfir spurningunni. „Ég er líklega talandi dæmi um þá fordóma sem eru ríkjandi. Hélt að hann væri að grínast. Síli- kon? Eru það ekki bara stelpurnar sem fá sér sílikon?“ Hafsteinn kom Braga hins vegar í skilning um að málið væri ekki jafneinfalt og margir héldu. „Fyrir unga menn getur þetta auð- vitað verið grafalvarlegt því þeir líta öðru- vísi út en áður. Hvort sem er í sturtu eða þegar viðkomandi er í þröngri sundskýlu á ströndinni sést vel að hann er bara með eitt eista. Ég býst líka við að fordómar séu hjá báðum kynjum í þá veru til dæmis að menn með eitt eista séu ekki eins frjóir og aðrir, sem er ekki rétt.“ Læknirinn sagði Braga að sílikoneista gætu fylgt bæði kostir og gallar; líkaminn gæti til dæmis snúist til varnar. „Ég þakkaði gott boð en afþakkaði – sagðist myndu verða ánægður með mitt eina eista.“ Bragi ákvað strax og hann vissi hvers kyns var að halda veikindum sínum ekki leyndum. „Ég rek fyrirtækið Fremri al- mannatengsl auk þess að kenna hjá Símey, sem er í sama húsnæði, og ákvað strax að segja öllum í húsinu hvað væri að – þar á meðal nemendum mínum, fyrst ég þurfti að raska stundatöflunni þeirra. Ég hafði ekkert að fela og ef ég segðist bara þurfa að fara í aðgerð, en vildi ekki útskýra það frekar, hefðu örugglega vaknað ótal spurningar.“ Bragi notaði tækifærið til þess að hvetja karlnemendur sína til þess að skoða sjálfa sig og konurnar til þess að hvetja sína karla til þess að gera slíkt hið sama. Þetta var á fimmtudegi, daginn fyrir að- gerðina. Bragi tilkynnti dómarastjóra Knatt- spyrnusambands Íslands þá að hann gæti ekki verið eftirlitsmaður á leik um helgina, eins og hann hafði tekið að sér; sagði honum allt af létta og nefndi í sama tölvupósti að sjálfsagt mál væri að KSÍ sendi hann áfram til allra félaga sinna í dómara- og eftirlits- mannastétt. „Ég veit að það ýtti við mörg- um, ekki síst vegna þess að ég var algjörlega einkennalaus,“ segir Bragi. Húmorinn mikilvægur Hann hafði svo mikið að gera á fimmtudeg- inum að enginn tími var til þess að hugsa um aðgerðina eða kvíða næsta degi. „Ég þurfti að ganga frá ýmsum málum vegna vinnunnar og auðvitað að láta marga vita; mömmu, börnin mín, systkini og vini. Ég áttaði mig ekki almennilega á því hvað hafði gerst fyrr en á sunnudeginum eftir aðgerðina. Hafði ekki haft tíma til að vera í sjúkdómsferli og nú er ég krabbameins- sjúklingur í bataferli.“ Bragi er mikill húmoristi og hefur beitt því vopni í baráttunni við vágestinn. „Krabbamein er auðvitað alltaf dauðans al- vara en þeir svartsýnustu hugsa líklega sumir of mikið um að eina leiðin til dauðans sé lífið sjálft. Það er napurt – og fjarri mér að hugsa þannig, en ég var minntur á þetta. Mér finnst gott þegar fólk hefur kímnigáfu og húmorinn er oft nauðsynlegur þegar bregðast þarf við hræðilegum tíðindum. Ég held til dæmis að herferðin Karlmenn og krabbamein sé mjög vel heppnuð vegna húmorsins; það er góð leið til þess að ná til karla og mörgum kynni hreinlega að finn- ast málið of dónalegt ef ekki væri fyrir húmorinn. Menn eru ekkert vanir því að tala um punginn á sér hvar sem er!“ Frábært viðmót Bragi átti að fara í blóðrannsókn í gær, föstudag. „Niðurstaðan úr henni verður borin saman við fyrri rannsóknir en aðal- úrskurðurinn fæst þegar meinafræðideildin hefur greint æxlið. Þá fæ ég að vita hvaða tegund krabbameins þetta er. Krabbamein í eista er oft staðbundið, það best lækna- nlega og því fyrr sem það finnst því betra. Þess vegna eru líkurnar með mér og ég trúi því statt og stöðugt að bjart sé framundan.“ Sérfræðingar munu fylgjast með Braga. „Ef ég verð heppinn og þetta er tegund sem dreifir sér síst eða ekki trúi ég því að ég sé laus allra mála. Ef þetta er önnur tegund meins gæti ég þurft að fara í geisla eða taka lyf. Það veit ég vonandi í næstu viku.“ Bragi varð „skíthræddur“ þegar hann fann hve annað eistað var orðið stórt og hart, eins og áður kom fram, en aðeins einu sinni síðan segist hann hafa orðið verulega smeykur. „Það var þegar ég hafði fengið tíma hjá Þóri á þriðjudeginum. Þá langaði mig til að guggna á því að fara; var að hugsa um að afpanta tímann og þiggja þann tíma sem mér stóð fyrst til boða á föstudegi. Hvort ekki væri betra að hugsa málið að- eins og athuga hvort þetta lagaðist ekki. Þetta eru líklega eðlileg viðbrögð; að illu sé best skotið á frest.“ Eftir á að hyggja segist hann mjög feginn að hafa drifið sig til læknis og dásamar í framhaldi af því íslenska heilbrigðiskerfið og það starfsfólk þess sem hann kynntist þá örfáu daga í marsmánuði sem liðu frá því hann fann að eitthvað var athugavert þar til æxlið hafði verið fjarlægt. „Þetta hefur ver- ið mikil lífsreynsla og fær mann til að hugsa hlutina upp á nýtt. Ég geri mér t.d. grein fyrir því að þótt rannsóknirnar hafi kostað töluvert hefur það örugglega sparað bæði mér og hinu opinbera mikið fé og mikinn tíma hve snemma ég greindist.“ Bragi segir að í sínum huga hafi heil- brigðisstéttir unnið marga sigra í gegnum árin. „Það er til dæmis ekki mjög langt síð- an krabbamein var alltaf sett í samhengi við dauðann. Þetta hefur breyst og skiptir miklu máli.“ Hann segir viðmót starfsfólks frábært, bæði á Heilsugæslustöðinni og Sjúkrahús- inu á Akureyri, og sjúklingum sé greinilega sýnd mikil virðing. „Einu skiptin sem mér fannst ég vera sjúklingur var þegar ég lagð- ist í sneiðmyndatækið og það talaði vélrænt við mig, og svo þegar lá á skurðarborðinu, sá öll tækin og fólk með andlitsgrímur standandi yfir mér.“ Bragi vaknaði eftir aðgerðina um kl. 11, var síðan fluttur á handlækningadeild og eftir skoðun var hann kominn heim klukk- an fjögur. „Þá voru enn sex klukkutímar í að vika væri liðin frá því ég fann fyrir æxl- inu. Mér finnst það ótrúlegt og sýnir mér hve heilbrigðiskerfið og starfsfólkið er frá- bært.“ Hann hefur fundið fyrir miklum stuðn- ingi eftir að hann fór í aðgerðina. Tölvu- pósturinn hans fór greinilega víða og marg- ir hafa haft samband við hann. „Ef þessi lífsreynsla mín verður til þess að hjálpa einhverjum nú eða síðar er það mjög gleði- legt. Ég hvet menn til að þukla eistun á sér reglulega og þekkja þau.“ Bragi er kunnur limrusmiður og notar hvert tækifæri til þess að smíða eina góða. Hann gat því ekki sleppt því að semja limru vegna eigin veikinda – og um leið hvatn- ingu til annarra karlmanna að fylgjast vel með sjálfum sér. Kannaðu, þuklaðu, kreistu, kreistu þín dýrmætu eistu. Þar hvílir þunginn, þuklaðu punginn: Ef vágestur kemur, þá veistu … ’ Fyrir unga menn getur þetta auðvitað verið grafalvarlegt því þeir líta öðruvísi út en áð- ur. Hvort sem er í sturtu eða þegar viðkom- andi er í þröngri sundskýlu á ströndinni sést vel að hann er bara með eitt eista. Bragi var lengi milliríkjadómari í fótbolta. Hér er rauða spjaldið á lofti í leik KR og ÍBV 2001. Morgunblaðið/Árni Sæberg Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Kosningar 2010 Allsherjaratkvæðagreiðsla VR til stjórnar og trúnaðarráðs er hafin. Nýttu atkvæðisrétt þinn og hafðu áhrif. Öll atkvæði hafa sama vægi. Kynntu þér frambjóðendur og nýttu kosningarétt þinn á www.vr.is Nú göngum við í VR til kosninga. Láttu þig málið varða, þetta er félag okkar allra.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.