SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Qupperneq 24

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Qupperneq 24
24 28. mars 2010 „Já, ég er hundleið á nútímanum. Mér finnst alltaf að heim- urinn sé að versna. Ég er í húsafriðunarnefnd sem segir kannski dálítið um mig. Ég sæki í að vernda sumt það sem er gamalt og í útrýmingarhættu. Ein af ástæðunum fyrir því að ég ákvað að snúa mér að námi í miðaldafræðum eru orð sem Ármann Jakobsson sagði í viðtali hjá mér. Hann vildi meina að við Íslendingar héldum gjarnan að við værum best á hinum og þessum sviðum, í bankamálum, í popp- tónlist og svo framvegis. En á einu sviði erum við í fremstu röð og ævinlega miðlæg, það er í miðaldafræði. Þessi setning kveikti hugmyndina um að fara í miðaldafræði. Svo varð hrunið og það sannfærði mig fullkomlega um að þetta væri leiðin sem ég ætti að ganga. Þegar Ísland hrundi var ég í tíma í textafræði í Háskólanum. Ég sat inni í kennslustofu í Árna- stofnun, var umkringd gömlum bókum og hofði á hrörlega krist- alsljósakrónu og gömul húsgögn sem eru örugglega búin að vera þarna frá því húsið var byggt. Ég hugsaði: Hér fyrir utan stendur varla steinn yfir steini, en hér inni er allt jafn verðmætt og það var áður, ef ekki verðmætara. Þá ákvað ég að fara þessa leið.“ Hvað ætlarðu að gera þegar þú ert orðin miðaldafræðingur? „Það væri gaman að sameina miðaldafræðin og fjölmiðlaþekk- inguna og setja fram bókmenntaarfinn okkar á þann hátt að kom- andi kynslóðir kveiki á honum, sjái hvað hann er merkilegur, skemmtilegur og mikið djásn. Þessi gamli bókmenntaarfur þarf allt- af að vera í stöðugri endurskoðun og ég vil gjarnan taka þátt í því.“ Ný ást Fyrr í viðtalinu nefndirðu kreppu í einkalífi. Þú varst gift Ósk- ari Jónassyni kvikmyndagerðarmanni en þið skilduð. Skiln- aður ykkar hjóna var óvæntur, þið virtust svo hamingjusöm. Af hverju skilduð þið? „Dóttir mín spurði mig um daginn: Er raunverulegt band í hjónabandi? Ég svaraði: Kannski ekki raunverulegt band sem þú getur séð en það er samt band á milli hjóna. Þá sagði hún: Og slitnar það aldrei? Ég sagði: Jú, þú sérð hvernig fór fyrir okkur pabba þínum. Hún spurði: Af hverju slitnar þetta band? Ég sagði: Þegar fólk fer of langt í burtu hvort frá öðru. Það eru auðvitað ótal ástæður sem maður getur tínt til fyrir skilnaði. Maður gerir ekki áætlun um að skilja. Þetta er sennilega ákveðið einhvers staðar annars staðar. Maður gerir heldur ekki áætlun um að koma með sjöunda barnið í hópinn. Þetta eru örlög sem mér hafa verið spunnin og ég er mjög sátt við.“ Er mjög erfitt að ganga í gegnum skilnað? „Þegar maður gengur í gegnum skilnað kemur í ljós úr hvaða efni maður sjálfur er gerður, og sá sem maður skilur við. Sem bet- ur fer reyndumst við Óskar ágætlega viðuð. Ljótleikinn varð aldr- ei ríkjandi í skilnaði okkar. Við erum blessuð að því leyti.“ Svo fannstu nýja ást. „Já, hún kom algjörlega óvænt.“ Hvernig gerðist það? „Eftir skilnaðinn lagði ein dætra minna fram ósk um það hvernig nýi maðurinn minn ætti að vera. Hún sagði að hann ætti að vera alltaf í stuði og ekki reykja. Mér leist ágætlega á þessa lýs- ingu. Fólk var oft að spyrja mig hvernig mér liði eftir skilnaðinn og hvernig börnunum liði. Eitt sinn var ég á vinnutengdum fundi og þegar honum var lokið fór kona að spyrja mig þessara spurn- E va María Jónsdóttir er að hætta að vinna hjá Sjónvarpinu, en síðasti útsendingardagur hennar er í Gettu betur nú í kvöld, laugardagskvöld. Við taka sumarfrí og fæðing- arorlof því Eva María á von á sínu fjórða barni. Eftir það hyggst hún snúa sér að námi í miðaldafræðum við Háskóla Íslands. „Ég hef ekki hugmynd um hvort ég sný aftur á RÚV,“ segir Eva María. „Mér hefur liðið vel þar en mér finnst alveg jafnlíklegt að ég muni festast í annars konar verkefnum eftir nám. Haustið 2008 tilkynnti ég yfirmönnum mínum á RÚV að ég ætlaði að láta af störfum og fara í nám í miðaldafræði. En svo kom kreppan og ég glímdi einnig við mína kreppu í einkalífinu. Þess vegna var mér ekki stætt á að hætta að vinna þannig að ég tók einungis einn kúrs í Háskólanum samhliða vinnu.“ Heldurðu að þú munir ekki sakna fjölmiðla? „Það er alltaf jafn gaman að vinna við dagskrárgerð, hvort sem það er fyrir útvarp eða sjónvarp. Ef ég sæi fram á mjög krefjandi verkefni framundan þannig að mér fyndist að ég væri stöðugt að bæta mig og þróast þá væri enn jafn eftirsóknarvert og áður að vinna við dagskrárgerð. En nú er fyrirsjáanlegt að hlé verði á ný- sköpun í dagskrárgerð sökum fjárskorts. Ég held að lífið verði áhugaverðara ef maður sökkvir sér ofan í verkefni sem eru krefj- andi og nýstárleg.“ Þú hefur verið það sem kallað er sjónvarpsstjarna, var það ekki gott fyrir egóið? „Nei, það skiptir engu máli, þú veist það sjálf. Ég hef unnið við dagskrárgerð og slík verk verða opinber af því dagskráin birtist í opnum fjölmiðli. Sem betur fer hefur það aldrei orðið partur af minni sjálfsmynd að vera það sem fólk kallar sjónvarpsstjarna. Ég held að sá sem telur sig vera sjónvarpsstjörnu á Íslandi byggi á fremur veikri sjálfsmynd. Mér finnst ágætt að finna að það hvar ég bý, við hvað ég starfa eða hverjum ég er gift kemur því ekki við hvernig ég upplifi sjálfa mig.“ Ég er stráheil Hefurðu sterka sjálfsmynd? „Já, núorðið. Auðvitað var ég broguð sem unglingur. Mér fannst ég ómöguleg og síðan kom tímabil á fullorðinsárum þar sem mér fannst ég ekki nógu góð í neinu. En svoleiðis tímabil eru bara til þess að maður átti sig betur á því hver maður raunveru- lega er og þau kenna manni að treysta ekki á ytri aðstæður. Fyrir nokkrum árum var ég eitt sinn á fjölmennri kvenna- samkomu þar sem við konurnar áttum að segja deili á okkur án þess að nefna starf okkar, stöðu og fjölskylduhagi. Þetta var ekkert mál fyrir suma en nýjung fyrir mér. Ég gat auðvitað ekki þolað að hafa ekki gott svar við þessu. Á þessum tíma var ég byrjuð í mikilli sjálf- skoðun þannig að ég linnti ekki látum fyrr en ég gat svarað þessu.“ Og hver ertu? „Ég er stráheil. Ég skapaði þá persónu sjálf því það er hún sem ég vil vera. Heill getur maður ekki verið ef maður er svolítið óheill, það liggur í orðinu. Auðvitað er ég gölluð, eins og allar manneskjur eru, en þá er mikilvægt að gangast við göllum sínum. Það er vissulega erfitt því ekki vill maður einblína á gallana en maður getur líka reynt að njóta þess hvað maður er stundum mikill kjáni. Maður á ekki stöðugt að vera að skamma sjálfan sig.“ Af hverju ákvaðstu að læra miðaldafræði, ertu leið á nútím- anum? Viðtal Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Hundleið á nútímanum Eva María Jónsdóttir er að láta af störfum hjá Sjónvarpinu og hyggst einbeita sér að námi í miðaldafræðum. Í einkalífinu eru einnig breyt- ingar því hún er komin í sambúð og á von á fjórða barni sínu í sumar.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.