SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Side 31

SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Side 31
28. mars 2010 31 Þ að kemur mér á óvart að matarkarfan er enn þá þokka- lega ódýr. Leigan er stærsti bitinn hérna. Hún er mjög dýr og dýrari en í Reykjavík. Við erum í svipuðu húsnæði og við leigjum út í Reykjavík og þurfum að borga aðeins með íbúðinni hér vegna gengisins. Það er hins vegar enn viðráðanlegt að fara út að borða,“ segir Dagur Gunnarsson, blaða- maður og ljósmyndari, um verðlag í menningarborginni Barcelona. Eins og lesendur Morgunblaðsins hafa ugglaust tekið eftir ritar Dagur reglulega pistla á mbl.is um lífið og tilveruna í höfuðstað Katalóníu, þar sem hann dvelur ásamt konu sinni, Gunnþór- unni Guðmundsdóttur, og barni. Hann segir aðhalds þörf eftir gengishrunið. „Maður leikur sér kannski ekki eins mikið hérna og maður hefði gert fyrir hrun. Við erum auðvitað ekki túristar hér, við höldum heimili og þó að ým- islegt sé dýrt í innkaupum getur maður þó leyft sér rauðvínsflösku oftar en heima. Allt annað, svo sem að halda úti farsíma og nettengingu, er ósköp svipað og heima en á móti kemur að hér þarf maður ekki að reka einkabíl.“ – Hvað um atvinnuleysið? „Það er mikið fjallað um það í fjölmiðlum. Ríflega fjórar milljónir manna eru nú án vinnu. Það er það sem að maðurinn á götunni, fólkið sem ég hef verið að spjalla við, hefur hugann við. Ungt fólk sem ég hitti hristir höfuðið þegar talið berst að framtíðinni. Spánverjarnir fórna höndum þegar ég segi þeim að ég sé fluttur hingað. Þeir segja: „í guðanna bænum, Spánn er að fara í hundana!“ – Hvað um fasteignabóluna sem sprakk? „Það varð mikil dýfa í byggingariðn- aðinum. Þar er lítið um framkvæmdir sem gerir það að verkum að það er meira um smáglæpi. Á Spáni er mikið af ólög- legum eða pappírslausum innflytjendum, eins og þeir heita hér. Þeir eru ódýrt vinnuafl og ganga mikið í verka- mannastörf en þegar kreppir að eru þeir bjargarlausir.“ – Af hverju? „Þeir geta ekki sótt um atvinnuleysisbætur. Þeir eru ekki hluti af hinu opinbera kerfi. Þeir koma inn í landið á slöngubát og neyðast til að snúa sér að betli og smáglæpum.“ – Hefur það aukist? „Já. Ég tel að svo sé. Það er meira af betlurum og við sjáum marga róta í ruslinu í leit að verðmætum og það er miklu meira af vasaþjófum og öðru slíku, sýn- ist mér. Það er mikið varað við því og talað um vasaþjófnað. Ég fór niður í miðbæ með myndavélina á öxlinni og rakarinn sem ég leit inn hjá læsti á eftir mér til að halda þjófum frá. Hann sagði mér að passa mynda- vélina og veskið og húðskammaði einhverja aum- ingjans menn sem bönkuðu upp á til að spyrja til vegar. Skömmu síðar stöðvaði lögreglan mig á að- altorginu og sagði mér að vera ekki að tala við snyrti- lega drengi frá Marokkó sem sýndu fimleika þar. „Þetta eru þjófar. Passaðu þig!“ voru skilaboðin úr einni stuttri bæjarferð, nóg til að gera mann létt væn- isjúkan,“ sagði Dagur að lokum. Rakarinn læsir að sér Hárskerinn heldur í gamla tímann. Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson Dagur Gunnarsson É g var að ræða við lögregluþjón fyrir tveimur til þremur vikum. Hann sagði að það hefði orðið eftirtektarverð aukning í smá- glæpum, innbrotum í bíla og hús og annað slíkt, eftir að efnahagurinn tók þessa djúpu dýfu. Hann útskýrði fyrir mér að það væri mikið af ungum ólærð- um mönnum sem hefðu í sig og á með byggingarvinnu og tengdum greinum en væru nú atvinnulausir. Ég hef ekki fyrir mér neinar tölur og get ekki sagt að ég hafi sjálfur orðið var við þetta en þetta er það sem mér var sagt,“ segir Benedikt Karl Valdimarsson, stjórnandi hjá fyrir- tækinu Reputation Inc., um áhrif krepp- unnar á glæpatíðni á Írlandi. Benedikt Karl er kvæntur Finolu McDonnell en þau kynntust er þau voru í meistaranámi í almannatengslum við Stirling University á Skotlandi. Eftir að hafa starfað í um eitt og hálft ár hjá aug- lýsingastofunni Athygli flutti Benedikt Karl til Dyflinnar en þau Finola hafa búið þar saman síðan. Hjónin gengu í það heilaga í september 2006 en þau eru bú- sett í miðborg Dyflinnar, nánar tiltekið í Rialto borgarhlutanum. Skattar hafa hækkað – Hvað um álögur? „Maður finnur greinilega fyrir því hvað ýmis opinber gjöld og skattar hafa hækkað mikið. Það hafa allir fundið fyrir því. Maður í mínum launastiga borgar sennilega í kringum 53% af heildar- tekjum sínum í skatta og opinber gjöld. Fólk með lægri tekjur borgar þó mun minna, líklega í kringum 20-22%, en þessi þröskuldur er lágur. Það er þó líka enn töluvert margt fólk sem borgar nán- ast engan skatt og það eru líkur á því að þetta verði að breytast og netið víkkað, sem mun sjálfsagt valda ólgu,“ segir Benedikt Karl og bendir á að verðlag hafi lækkað. Verðhjöðnun í hagkerfinu „Það sem hefur hjálpað svolítið til er að Írland er formlega í verðhjöðnun og vöruverð virðist almennt á niðurleið. Þetta verður þó að setja í samhengi við að gríðarlegur fjöldi fólks hefur tekið á sig umtalsverðar launalækkanir. Lágir Evrópuvextir hafa líka hjálpað við að létta greiðslubyrði fólks af lánum, sérstaklega húsnæðislánum. Bankarnir hafa þó þegar farið að breyta vöxtum og menn óttast að uppgangur í Evrópu, sér- staklega í Þýskalandi og Frakklandi, muni þýða hærri vexti í Evrópu, sem komi mörgum hér á Írlandi í slæma stöðu og jafnvel auki á það vandamál sem vanskil á húsnæðislánum eru nú orðin.“ – Nú er Írland ekki stéttlaust þjóð- félag. Hvernig gengur lægri millistéttinni að standa í skilum? „Það er tvímælalaust vandamál. Eðli- lega eru vanskil algengust hjá fólki sem er með lægri laun og á mörkum þess að ráða við fasteignalánin. Sumir hafa meira að segja haldið því fram að sumt af þessu fólki hefði aldrei átt að fá lán og að bankarnir hafi vanrækt skyldur sínar til að þéna peninga. Annar hópur sem á erfitt eru sjálfstæðir atvinnurekendur. Aðgangur að fjármagni fyrir smáfyrir- tæki er mjög erfiður sem hefur þýtt að miklum fjölda fyrirtækja hefur verið lok- að. Þetta hefur aukið enn frekar við at- vinnuleysið og vanskil almennt. Hins vegar eru mörg dæmi um fólk, sem myndi vera talið í millistétt og jafnvel ofar, sem hefur lent í gríðarlegum vand- ræðum. Maður þekkir mörg dæmi um vel menntuð hjón sem voru bæði í vel launuðum störfum og hafa bæði misst vinnuna. Oft á tíðum hefur þetta fólk þyngri greiðslubyrði og fleiri lán og áfall- ið er því ekki síður slæmt fyrir þetta fólk, þótt það eigi ef til vill einhvern smávarasjóð í banka. Bankarnir hafa reynt að hjálpa þessu fólki með því að létta greiðslubyrðina, dreifa greiðslum o.s.frv. og þeir eru raunverulega að reyna að hjálpa fólki. Þeir hafa engan hag af því að taka hús af fólki, sem er í neikvæðri eiginfjárstöðu, og þegar enginn markaður er fyrir fast- eignir. Bankarnir reyna því að halda fólki á beinu brautinni þangað til betur árar en oft eiga þeir ekki annan kost en að fara fyrir rétt og taka yfir eignina.“ Efnalítið fólk er berskjaldað Benedikt Karl segir efnalítið fólk finna mest fyrir því þegar harðnar á dalnum. „Fólkið sem kreppan bitnar hvað harðast á á litla skólagöngu að baki og hefur starfað í framleiðslugreinum, í verksmiðjum og byggingariðnaðinum, svo ég nefni dæmi. Þeir sem höfðu enga vinnu og þurftu að reiða sig á félagslega kerfið eru auðvitað farnir að finna fyrir því vegna þess að ríkið er í gríðarlegum vandræðum og hefur hafið mikinn nið- urskurð. Meiri niðurskurður er í vænd- um og verður honum því miður senni- lega beint í miklum mæli að félagslega kerfinu og heilbrigðiskerfinu sem má ekki við því. Hér er opinbert heilbrigð- iskerfi en einnig einkakerfi og einka- sjúkrahús. Þeir sem ekki hafa aðgang að heilbrigðistryggingu í gengum vinnuveit- endur, eins og ég, eða hafa ekki efni á að kaupa slíka tryggingu, munu því verða verr úti ef opinber heilbrigðisþjónusta versnar [...] Það hefur einn banki þegar verið þjóðnýttur og menn setja enn stórt spurningarmerki við hvort fleiri bankar verði teknir yfir af ríkinu.“ Benedikt Karl með systurdóttur sinni Valdísi Hörpu Porca. Benedikt Karl býr í Dyflinni. Skuldum hlaðnir Írar óttast að þurfa að herða sultarólina Staðan í löndunum þremur Atvinnuleysi Írland (Eurostat - janúar) Ísland (Vinnumálastofnun - mars)* Spánn (Eurostat - janúar) * Talan er byggð á forsendum Vinnnumálastofnunar (16.945 x 0,94/178.000) 13,8% 8,9% 18,8%

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.