SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Qupperneq 37
Fjölskyldan eftir að keppni lauk í Nome; Magnús, Þóra Hrönn og Sigurjón.
vísi. Í einu orði sagt var ég óhamingju-
samur; þetta lagðist á mig. Ég geri mér
því fullkomna grein fyrir því hvernig
meira en helmingi keppenda líður nú þar
sem þeir náðu ekki að ljúka keppni þetta
árið.“
Iron Dog-keppninni er skipt í tvo
flokka; Íslendingarnir voru í áhuga-
mannaflokki, þar sem ekki er keppt um
sæti, vel að merkja, heldur reynt að hafa
gaman af öllu saman – þó að öllu gamni
fylgi vissulega töluverð alvara – en þeir
sem teljast atvinnumenn þurfa að leggja
að baki um það bil tvöfalt lengri leið áð-
ur en endamarksflaggið fer á loft. Alls
um 3.200 kílómetra. Keppni þeirra er
sögð lengsta og erfiðasta sleðakeppni í
heiminum ár hvert og þar er barist um
töluverð peningaverðlaun.
Lagt er af stað frá Big Lake við Wasilla,
sem er í grennd við Anchorage og eknar
leiðir sem innfæddir nota dags daglega. Í
Alaska er hefðbundið vegakerfi ekki
nema í syðsta hluta ríkisins.
Áhugamennirnir ljúka keppni í Nome
skammt frá Beringssundi, sem skilur að
Bandaríkin og Rússland. Í Nome hvílir
atvinnumannahópurinn sig í um það bil
tvo sólarhringa, snýr síðan við og linnir
ekki látum fyrr en í Fairbanks, langt inni
í landi, eftir um það bil þriggja daga
akstur til viðbótar.
Keppt er í tveggja manna liðum. Þau
voru alls 44 að þessu sinni og 21 komst
alla leið, þar af um þriðjungur í áhuga-
mannaflokknum. Að minnsta kosti tvö
lið þurftu að hætta keppni strax á fyrsta
degi, í öðru voru þaulvanir kappar, Scott
Davis og Todd Palin, en sá fyrrnefndi
slasaðist. Hann hefur sjö sinnum farið
með sigur af hólmi í keppninni og Todd
fjórum sinnum. Palin er þekktur maður í
Alaska; eiginkona hans, Sarah Palin, er
fyrrverandi ríkisstjóri þar og varafor-
setaefni Repúblikana í forsetakosning-
unum í Bandaríkjunum 2008.
Sigurjón og Þóra Hrönn voru í hópferð
á vélsleðum í Alaska fyrir nokkrum ár-
um þegar þau fréttu af Iron Dog-
keppninni. Þau hafa lengi stundað akst-
ur á vélsleðum og ýmsa aðra útivist og
áhugi kviknaði strax þegar ævintýrið bar
á góma. Slógu því til þegar tækifæri gafst
í fyrra.
Nú tók Magnús sæti móður sinnar í
keppnisliðinu en Þóra Hrönn var með í
för og skipaði þjónustulið feðganna
ásamt Alaskabúanum John Scudder,
fjölskylduvini og fyrrverandi forseta fé-
lags vélsleðamanna í Anchorage. Þau
Scudder dvöldust þar í borg meðan feðg-
arnir voru á leiðinni, tilbúin að aðstoða,
og einu sinni þurftu þau að hafa hraðar
hendur þegar dempari í sleða Magnúsar
laskaðist. Útveguðu nýjan í skyndi og
sendu með flugi til eins þorpsins þar sem
feðgarnir gistu. Í óbyggðum Alaska er
meira en að segja það að standa í slíku.
Þeir Magnús gátu sem betur fer lappað
upp á skemmdirnar til bráðabirgða, með
góðra manna hjálp, þannig að hægt var
að halda áfram þar til nýr dempari kom.
Feðgarnir lögðu af stað á föstudegi en
Þóra Hrönn flaug til Nome á mánudegi
og tók á móti þeim þar.
Eftir kuldakastið í fyrra var íslenska
liðið við öllu búið. „Nýir frostþolnir
demparar voru settir á sleðana,“ segir
Sigurjón. „Við öðluðumst mikla reynslu
og þekkingu í fyrra auk þess sem við
kynntumst nánast öllum sem koma að
keppninni, bæði skipuleggjendum og
þátttakendum.“ Þau tengsl, reynsla og
þekking á leiðinni hafi átt stóran þátt í
því hve vel tókst til að þessu sinni. „Nú
vissi ég hvar flestir stoppa til að hvílast
yfir nótt og vissi því hversu mikið lengra
þyrfti að aka á hverjum degi til að ná
forskoti. Þannig náðum við að verða
fyrstir í mark og slá met. Aldrei áður
hafa sleðar í áhugamannaflokki lokið
keppni á fjórum dögum og komist í
mark á undan sleðum í atvinnu-
mannaflokknum. Fyrir þetta fengum við
verðlaunin Coin of Excellence frá Þjóð-
varðliðinu.“
Feðgarnir segjast hafa verið mjög
heppnir með veður að þessu sinni.
Frostið fór mest í 30 gráður á síðasta
hluta leiðarinnar. „Það er gott að keyra í
25-30 stiga frosti inni í skóginum,“ segir
Magnús sem fór nú þarna um í fyrsta
skipti. Ferðin var að því leyti þægilegri
en hann átti von á. Oft er snarvitlaust
veður á þessum slóðum eins og nærri má
geta en náttúruöflin voru í spariskapinu
Anchorage
Grænland
Ísland
Ka
na
da
Ba
nd
ar
íki
n
ALASKA
Big Lake
Norton-flói
Nome
Wood-Tikchik
(þjóðgarður)
Katmai
(þjóðgarður)
Kodiak
Lake Clark
(þjóðgarður
og friðland)
Denali
(þjóðgarður
og friðland)
Bethel
Bæringshaf
Kvichak-flói
Kachemak-
flói
Alaska-flói
Kenai
Iron-dog
vélsleðakeppnin
Keppnisleiðin er
um 1.850 km
Til samanburðar:
Reykjavík
1.890
km
Vegalengdin
frá Reykjavík
til London er
aðeins 40 km
lengri en keppnisleiðin.
London
Magnús á svæði sem kallast Buffalo
Tunnels. Þarna hafa geysað miklir
skógareldar og þurfti undanfarasveit-
in að saga töluvert af trjám til að
keppendur kæmust þarna um.
’
Náðum að verða
fyrstir í mark og
slá met. Aldrei
áður hafa sleðar í
áhugamannaflokki lokið
keppni á fjórum dögum
og komist í mark á
undan sleðum í atvinnu-
mannaflokknum.
28. mars 2010 37