SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Qupperneq 39
28. mars 2010 39
S
., mín kæra, hér vorar víst! Þú mátt halda
þig við það sem þú sagðir um daginn, þegar
ég tilkynnti um ferðalagið hingað, sagðist
ætla að upplifa enska vorið, fara svo heim
og taka á móti því íslenska, tvö vor á einu ári ... en þá
skelltir þú upp úr og sagðir að eiginlega væri aldrei
talað um enskt vor, bara sumar, það væri sérstakt af
ýmsum afgerandi ástæðum en vorið – ja, vorið væri
varla til – en hér sit ég samt í því miðju, umkringdur
krókusum í húsagarði á bekk, einum af þessum með
tileinkunn, eins og í Notting Hill, nema á
skildinum hérna stendur Gillian Barnett
1933-1996, friend & teacher, og ég er
jakkalaus undir berum trjám, jakkalaus, af
því veðrið er milt, undir trjágreinum sem eru
berar af því sumarið er ekki enn komið. Ég
held mér sé óhætt að endurtaka upphróp-
unina frá því áðan: Hér vorar víst!
Ég viðurkenni samt að þetta er allt öðru-
vísi en heima, miklu yfirvegaðra, trén taka
ekki brumhattana ofan öll í einu , skilj-
anlega, ég meina, þetta er á Englandi, þau
fara í röð, ein tegund í einu inn í sumarið,
sem er býsna óspennandi – á meðan íslenska vorið dansar og syngur há-
stöfum á gröf vetursins þá dregur hið enska krossmark í loftið yfir nýorpnu
leiðinu, eins og það skammist sín fyrir sjálft sig... Mín kæra, áður en ég við-
urkenni að þú hafðir rétt fyrir þér um daginn kveð ég. Dönsum og syngjum
þegar við sjáumst! G.
Póstkort frá
London
Guðmundur
Óskarsson
’
Ég held
mér sé
óhætt að
endurtaka upp-
hrópunina frá
því áðan: Hér
vorar víst!
Í Kaltag bauð einn heimamanna, Earl
Esmailka, þeim að gista; gamall þátttak-
andi í sleðakeppninni. „Hann hvatti okk-
ur til þess að fara alla leið næsta dag í stað
þess að gista aftur og við það kom
keppnisskapið upp í manni!“ segir Sig-
urjón. „Við ákváðum að fara að hans ráð-
um og maður leit oft um öxl síðasta dag-
inn til þess að athuga hvort aðrir hefðu
ákveðið að fara alla leið þann dag. En svo
var ekki. Það er best að vera fyrstur því
þá sleppur maður við að vera í halarófu
og á ekki á hættu að keyra fram á menn
með bilaðan sleða.“
Við þær aðstæður stöðva menn alltaf og
hjálpa til. „Annað kemur ekki til greina.
Maður gæti lent í því sjálfur daginn eftir
að festa sig einhvers staðar í óbyggðum,“
segir Magnús.
„Við tókum eitt og hálft dagsverk á
þriðja degi og aftur daginn eftir. Það varð
til þess að við komum svona snemma í
mark. Þeir næstu komu 24 tímum seinna
en voru þó með betri brautartíma;
keyrðu hraðar en ekki eins langt á hverj-
um degi.“
Feðgarnir, sem töldust vera lið 57,
komu á endastöð í Nome á mánudags-
kvöldi ásamt Matt Subitch og Glenn Jo-
hnmayer; liði 58, sem varð þeim sam-
ferða frá Puntilla á laugardagsmorgni.
Ekki var gert ráð fyrir fyrstu keppendum
til Nome fyrr en um það bil sólarhring
síðar þannig að formlegt endamark hafði
ekki verið sett upp, en Þóra Hrönn, sem
flogið hafði til bæjarins, var á staðnum
þegar eiginmaðurinn og sonurinn luku
keppni. Var þá glatt á hjalla.
„Keppnishaldararnir voru samferða
mér í flugvélinni frá Anchorage til Nome
á mánudeginum. Þegar komið var um
borð spurðu þeir mig hvað ég væri að
gera; mér lægi ekkert á fyrr en á morgun
því fyrstu keppendur kæmu ekki fyrr en
annað kvöld,“ segir Þóra. „Ég sagði mína
menn koma í kvöld en þeir sögðu það
misskilning; engum í áhugamanna-
flokknum hefði tekist að aka þetta á fjór-
um dögum. Stysti tíminn væri fimm dag-
ar. Ég sagði þeim þá að mínir menn hefðu
lagt upp frá Kaltag um morguninn, hefðu
verið komnir til Unialakleet fyrir hádegi
og hefðu lagt þaðan út á hafísinn áleiðis
til Nome.“
Sigurjón og Magnús eru sammála um
að vel hafi til tekist og þeir séu spenntir
að fara aftur. „Ég verð að segja að mig
langar mikið til að taka þátt í atvinnu-
mannaflokknum,“ segir Magnús. Tekur
fram að það kosti reyndar mun meira,
bæði sé búnaðurinn meiri og dýrari og
þátttökugjöldin hærri. „En það er aldrei
að vita hvað við gerum. Ég vona að næst
getum við að minnsta kosti keyrt á eftir
atvinnumönnunum alla leið til Fairbanks
jafnvel þó að við keppum ekki.“
Magnús dásamar náttúruna í Alaska og
fólkið, en það þriðja sem kom honum
skemmtilega á óvart var bandaríski her-
inn, sem er helsti styrktaraðili Iron Dog-
keppninnar. „Ég er mikill tækjanörd og
hafði þess vegna gaman af því þegar her-
inn kom á tveimur Pave Hawk-
risaþyrlum á einn af þessum afskekktu
stöðum langt úti í óbyggðum, tjald var
blásið upp á skammri stundu og allt í
einu var boðið upp á þrjár símalínur og
nettengingu. Viltu hringja til Íslands?
Ekkert mál!“
www.icelandalaska.com
Menn voru oft blautir í fæturna að kvöldi, en vel búnir og varð því ekki kalt.
Sigurjón í Poorman, þeim stað þar sem stoppað var lengst frá byggðu bóli.
Í ferðinni verður fetað í fótspor Íslendinga sem fluttu forðum daga vestur til Ameríku í von
um betra líf í nýjum heimi. Aðal tilgangur hennar er að kynnast sögu og menningu
landnemanna og lífsháttum afkomenda þeirra eins og þeir eru í dag. Flogið verður til
Minneapolis og gist þar 1 nótt áður en haldið er til borgarinnar Grand Forks í
Norður-Dakóta. Þaðan verður ekið um blómlegar sveitir Vestur-Íslendinga og heilum degi
varið á 3ja daga hátíð í Mountain. Næsti áfangastaður er Winnipeg og gistum við þar í 5
nætur. Þar búa fjölmargir landar okkar og margt að sjá sem tengist yfir 100 ára búsetu
þeirra í borginni. Þaðan verður ferðast um Nýja Ísland og staðir heimsóttir sem tengjast lífi
og störfum fólksins. Íslendingadagurinn á Gimli er ógleymanlegur þeim sem taka þátt í þeim
hátíðahöldum. Frá Winnipeg verður ekið í suðausturátt og gist tvær nætur í borginni Duluth,
fallegri borg sem stendur í hæðunum við Lake Superior. Í lok ferðarinnar verður gist 2
nætur í Minneapolis. Í ferðinni gefast ótal tækifæri til að hitta fólk af íslenskum ættum.
Fararstjórar:
Margrét Björgvinsdóttir & Ragnheiður Kjærnested
Verð: 259.500 kr. á mann í tvíbýli Örfá sæti laus!
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, morgunverður í Grand Forks og
Winnipeg, allar skoðunarferðir með rútu og íslensk fararstjórn.
29. júlí - 11. ágúst
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Íslendingaslóðir
í Kanada
SUMAR 5
Allarskoðunarferðirinnifaldar