SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Qupperneq 40
40 28. mars 2010
Lindu P. hefðu boðist þúsund úlfaldar
fyrir hana í Marokkó. Mér voru boðn-
ir tíu þúsund úlfaldar í barnabarnið.
Og heil teppabúð líka.
Sumir eru að leita að teppum, leð-
urmunum, slæðum eða skartgripum á
svona stöðum. Ég er að leita að mat.
Ekki til að kaupa hann, heldur til að
skoða, spá í og skynja. Og þarna var
það ekki síst lyktin sem leiddi mig
áfram. Því það var svo margvíslegt
sem bar að nösunum; kitlandi reykur frá kindahausum
sem var verið að grilla í bakdyrum veitingahúss, þungur
ilmur af glóandi og bústnum appelsínum á djúsbar,
blóðlykt af kjöti úr slátrarabúð, lyktin og snarkið frá
Ef kostur er að
krydda fæðu
Sumir leita að teppum, leðurmunum og skart-
gripum í Marrakesh. Ég leita að mat.
Nanna Rögnvaldardóttir
Nanna Rögn-
valdardóttir
einhverjum smáfiskum sem tötraklæddur maður steikti
sér á blikkplötu í húsasundi; og af og til fundum við
skyndilega skelfilega vondan fnyk blandast öllu hinu og
vissum þá að við vorum komnar fullnærri höf-
uðstöðvum sútaranna.
Og svo var það allt kryddið. Við gengum yfir í suður-
hluta medínunnar, þar sem fátt er um ferðamenn og
sölumennirnir létu okkur að mestu í friði. Þar var því
óhætt að staðnæmast við kryddbúðirnar, virða fyrir sér
háar og mjóar kryddstrýturnar eða sekki og kassa fulla
af dufti og laufum í alls konar fallegum litum. Kanill,
túrmerik, paprika, kummin, kóríander, kardimommur,
múskat, engifer, pipar, anís, saffran, sesamfræ, chili,
minta, steinselja, lárviðarlauf – og alls konar krydd-
blöndur. Litadýrðin var ótrúleg og loftið þrungið unaðs-
Þ
að eru rétt innan við tvö ár síðan ég var á rölti
um medínuna í Marrakesh með barnabarninu;
við byrjuðum á Djemaa el Fna, þeim ótrúlega
hrærigraut af hljóðum og litum og lykt og
mannlífi, töframönnum, akróbötum, loddurum,
slöngutemjurum, magadönsurum og sölumönnum af
öllu hugsanlegu tagi, og fórum inn í souk-inn, mark-
aðinn sem er hreinasta völundarhús og maður getur eig-
inlega ekki hætt á að stoppa eitt andartak því þá er búið
að selja manni eitthvað sem aldrei stóð til að kaupa – og
sama þótt maður hafi aldrei sagt annað en nei. Við bár-
um það auðvitað rækilega með okkur að vera túristar,
næpuhvít miðaldra kona og rauðhærð unglingsstúlka.
Og tilboðin voru ekki bara á einn veg, rauða hárið vakti
mikla hrifningu. Ég sá í blaði um daginn að ferðafélaga
Matur
Fyrst er hér einföld og afar fljótleg súpa. Grænmetið er úr dós eða frysti, nema sell-
eríið, en þeir sem kunna alls ekki að meta sellerí geta bara sleppt því.
Marokkósk grænmetissúpa
1 msk ólífuolía
1 laukur, saxaður
1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
2-3 sellerístönglar, saxaðir
2 tsk kummin (cumin)
chili-pipar á hnífsoddi
nýmalaður pipar
salt
1 dós (400 g) saxaðir tómatar
500 ml vatn
2 tsk grænmetiskraftur
1 dós kjúklingabaunir, hellt í sigti og skolaðar
75 g strengjabaunir (frosnar)
safi úr 1 sítrónu
e.t.v. kóríanderlauf, steinselja eða minta
Olían hituð í potti og laukur, hvítlaukur og sellerí látið krauma í nokkrar mínútur við
meðalhita án þess að brúnast. Þá er kryddinu hrært saman við og síðan tómötum,
vatni, grænmetiskrafti, kjúklingabaunum, strengjabaunum og sítrónusafa. Hitað að
suðu og látið malla í um 8 mínútur. Bragðbætt með pipar, salti og sítrónusafa eftir
smekk. Kryddjurtum e.t.v. stráð yfir súpuna áður en hún er borin fram.
Litrík marokkósk grænmetissúpa með tvenns konar baunum. Sítruskryddaður lax. Þeir sem vilja sterkan mat geta notað meira chili í kryddlöginn.
Ég er ekki vel að mér í marokkóskum fiskifræðum og veit ekki hvaða fiska innfæddir myndu helst
nota. En lax hentar ágætlega. Silungur líka en hann þarf styttri tíma. Og það er ekki verra að kveikja
á grillinu í ofninum seinustu mínúturnar.
Sítruskryddaður lax
7-800 g laxaflak
(eða annar fiskur)
pipar
salt
3 msk ólífuolía
1 sítróna
1 appelsína
1 hvítlauksgeiri, pressaður
3 vorlaukar, þunnt sneiddir
½ tsk þunnt hunang
1 tsk paprikuduft
½ tsk kóríander (duft)
¼ tsk chili-pipar (eða eftir smekk)
Laxinn skorinn í sneiðar og kryddaður með pipar og salti. Bökunarplata eða eldfast mót penslað
með 1 msk af olíunni og laxinn lagður þar á með roðið niður. Börkurinn rifinn af sítrónunni og hálfri
appelsínunni og settur í skál. Hvítlauk, vorlauk, hunangi, kryddi og 1 msk af sítrónusafa og 1 msk
af appelsínusafa blandað vel saman við. Blöndunni skipt jafnt á fiskbitana og látið standa í hálf-
tíma (eða lengur í kæli). Ofninn hitaður í 200°C og fiskurinn bakaður á næstefstu rim í 8-12 mín-
útur, eða þar til laxinn er rétt eldaður í gegn. Borinn fram t.d. með kúskús, hrísgrjónum eða salati.