SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Qupperneq 53
28. mars 2010 53
sló hann niður, hand-
járnaði og sparkaði í
hann. Í framhaldinu var
honum haldið föngnum
fram á nótt og síðan skil-
að jakkalausum, bíllaus-
um og farangurslausum
yfir til Kanada um miðja
nótt um miðjan vetur
(tölva hans var gerð upp-
tæk og einnig minn-
isblokk sem hann var með sér fyrir sögu-
hugmyndir).
Watts var kærður fyrir líkamsárás, sak-
aður um að hafa reynt að kyrkja landa-
mæravörð. Þegar myndbandsupptökur
voru lagðar fram í rétti féll ákæruvaldið frá
Kanadíski vísindaskáldsagnahöfundurinn
Peter Watts skrifar gjarnan bækur sem ger-
ast í heimi þar sem lögreglubúningur er
ávísun á ótakmörkuð völd, þar sem toll-
verðir, landamæraverðir og lögregla hafa
skotleyfi á almenning og ekki er hægt að
kæra yfirvöld vegna þess að þau eru sann-
kallað yfirvald, hafin yfir lög og reglur.
Í byrjun desember sl. fékk Watts að
kenna á slíku yfirvaldi, því þegar hann
sneri aftur til Kanada eftir að hafa aðstoðað
vin sinn við að flytja lenti hann í leit-
arúrtaki á landamærum Bandaríkjanna og
Kanada. Sagan (og vitni og hann sjálfur)
segir að hann hafi stigið út úr bílnum og
spurt hvað væri eiginlega í gangi þegar
landamæravörður úðaði á hann piparúða,
þeirri ásökun, en hélt því til streitu að
Watts hefði ekki fylgt fyrirmælum landa-
mæravarðar og fyrir það var hann sakfelld-
ur af kviðdómi í St. Clair County, skammt
norður af Detroit, enda bannað samkvæmt
bandarískum lögum.
Úrskurður dómara mun síðan liggja fyrir
í lok apríl, en Watts getur fengið að allt að
tveggja ára fangelsi fyrir a tarna og hálfa
milljón í sekt. Hann hefur bloggað reglu-
lega um þessar kárínur, sjá vefsetrið
www.rifters.com/crawl/, en þar kemur
meðal annars fram að ýmsir starfsfélagar
hans hafa stutt hann með ráðum og dáð og
einnig að vel á annað þúsund lesenda hans
hefur sent honum fé til að standa straum af
málsvörninni.
Peter Watts
Vísindaskáldsaga verður að veruleika
Þegar yfirvöld eru sannkallað yfirvald Eymundsson1. Eve: The Burning Life - Hjalti
Daníelsson
2. 8th Confession - James
Patterson
3. The Return Journey - Maeve
Binchy
4. The Complaints - Ian Rankin
5. Twenties Girl - Sophie
Kinsella
6. 501 Must-See Destinations -
Bounty Books
7. Readeŕs Digest Atlas of the
World - Readeŕs Digest
8. Gone Tomorrow - Lee Child
9. The Deviĺs Punchbowl -
Greg Iles
10. 61 Hours - Lee Child
New York Times
1. House Rules - Jodi Picoult
2. The Help - Kathryn Stockett
3. The Silent Sea - Clive Cuss-
ler & Jack Du Brul
4. Backlash - Aaron Allston
5. Abraham Lincoln: Vampire
Hunter - Seth Grahame-
Smith
6. Deep Shadow - Randy Wayne
White
7. Angelology - Danielle Trus-
soni
8. Worst Case - James Patter-
son And Michael Ledwidge
9. Hell Gate - Linda Fairstein
10. Fantasy In Death - J.D. Robb
Waterstone’s
1. The Girl with the Dragon
Tattoo - Stieg Larsson
2. Eclipse - Stephenie Meyer
3. Twilight - Stephenie Meyer
4. Breaking Dawn - Stephenie
Meyer
5. New Moon - Stephenie
Meyer
6. The Girl Who Played with Fire
- Stieg Larsson
7. The Lost Symbol - Dan Brown
8. Driven to Distraction -
Jeremy Clarkson
9. Wolf Hall - Hilary Mantel
10. Delia’s Happy Christmas -
Delia Smith
Bóksölulisti
J
o Nesbø er gríðarlega vinsæll í
heimalandi sínu, en þar hefur
hann víst selt vel á aðra milljón
bóka frá því fyrstu reyfari hans
kom út fyrir þrettán árum eða svo. Í
fyrstu bókinni birtist lögreglumaðurinn
drykkfelldi Harry Hole og hann hefur
verið burðarásinn í höfundaverki Nesbø,
bækurnar orðnar átta og hafa náð vin-
sældum víða um heim.
Fyrsta Hole-bókin á íslensku var
Rauðbrystingur og kom út í fyrra, en nú
fyrir stuttu kom svo Nemesis, sem er
sjálfstætt framhald að því leyti að að-
alglíman er við tvö ný morðmál, en und-
irliggjandi í bókinni er mál sem hófst fyr-
ir löngu og á eflaust eftir að ljúka eftir
einhvern tíma eins og því vindur fram í
bókinni.
Harry Hole er að mörgu leyti dæmigerð
reyfaralögga; drykkfelldur og einmana
og á í erfiðleikum með að byggja upp
traust samband við konur þó að hann
mjakist í rétta átt í bókinni. Hann er ekki
heldur vandur að meðulum, er til í að
sveigja reglurnar eftir því sem honum
þykir henta ef hafa á uppi á óþokka eða
óþokkum; finnst tilgangurinn helga
meðalið. Rétt er þó að geta þess að þó að
hann sé á gráu svæði fer hann ekki yfir
strikið því rík réttlætiskennd heldur
honum á mottunni.
Nemesis hefst þar sem Harry Hole er að
fást við bankarán þar sem einn gjaldker-
inn er myrtur af ræningjanum, en ekki
líður á löngu að hann er kominn á bólakaf
í annað mál sem hann er óþægilega
flæktur í, gæti jafnvel verið sekur um ill-
virki sem hann man ekki eftir sökum
ölvunar. Úr verður hörkukrimmi, harð-
soðinn og hraður, þó að hann sé kannski
fulllangur. Víst notar Nesbø almáttuga
glæpamenn til að láta fléttuna ganga upp,
en fléttan er hugvitssamleg og bókin hin
besta skemmtun.
Drykkfelld og einmana reyfaralögga
BÆKUR
Nemesis eftir Jo Nesbø
bbbnn
Uppheimar gefa út 490 bls. kilja.
Árni Matthíasson
Norski rithöfundurinn Jo Nesbø er gríðarvinsæll í heimalandi sínu og bækur hans um lög-
regluforingjann Harry Hole hafa selst í hálfri annarri milljón eintaka þar í landi.
Ég ólst upp á alþýðuheimili í Vonarstrætinu
og eins og algengt var á þeim bæjum var
mikill bókaáhugi á heimilinu. Við bjuggum
við hliðina á Listamannaskálanum sáluga en
þar voru iðulega haldnar tombólur, mynd-
listarsýningar og ekki síst bókamarkaðir.
Svo kynntist ég fínum fornbókasala á Lauf-
ásveginum, gömlum sjóara, sem seldi ódýrar
gataðar bækur á fimmkall (2 göt) og tíkall (1
gat).
Líklega hef ég verið nörd, því mér fannst
skemmtilegra að lesa góða bók en að eyða
tímanum í fótbolta. Ég var fastagestur á
Borgarbókasafninu í Þingholtsstrætinu, og
bókaverðirnir þar þekktu mig með nafni.
Strákabækur heilluðu mig mest og gera enn.
Í mínu starfi heyri ég margar lífsreynslu- og
ævisögur og það er því hvíld í því að lesa
góðar spennusögur þar sem söguhetjan tekst
á við vandann, nær að sigrast á aðstæðum,
og kemst upp með það. Þær bækur, sem ég
hef lesið nýlega og sem ég get mælt með eru:
Naked Pray eftir John Sanford, Hundarna i
Riga eftir Henning Mankell og No Country
for Old Men eftir Cormac McCarthy.
Ég reyndi að lesa bækur Stig Larssons en
fannst hann langleiðinlegur. Ég hef einnig
reynt að lesa ljóð en það gengur bara ekki
upp nema ef vera skyldi eftir Þorstein frá
Hamri og Sjón. Þeir eru töffarar. Ég er svo
heppinn að hafa aðgang að gáfumanni, sem
skilur bækur og sem ég hitti reglulega í fjöl-
skylduboðum. Hann hefur gaukað að mér
ýmsum góðum höfundum. Sumir þeirra
hafa skrifað stelpubækur en ég læt mig hafa
það. Nefna mætti höfunda svo sem Paul Aus-
ter. Ég hef lesið nokkrar af helstu bókum
hans og mér þykir hann merkilegur höf-
undur. Hann er alltaf að segja sömu söguna
en frá nýju sjónarhorni í hvert sinn. Nýjasta
bókin hans, Invisible, er mjög athyglisverð.
Einnig hef ég þrælað mér í gegnum allar
bækur Kazuo Ishiguro og það er mjög ein-
kennileg lesning. Fínt að lesa hann ef maður
er stressaður. Einnig mætti nefna ýmsa smá-
sagnahöfunda, sem ég hef verið að grípa í
eins og Raymond Carver, Haruki Murakami
og Alice Munro. Ég les alltaf margar bækur í
einu. Það er eins og að borða risapitsu með
mörgum áleggstegundum. Þær bækur, sem
ég er að lesa núna eru m.a. The Road eftir
Cormac McCarthy, The Poe Shadow, The
Dante Club og The Last Dickens, allar eftir
Matthew Pearl.
LESARINN Júlíus Valsson læknir
Strákabækur heill-
uðu mest og gera enn
Matthew Pearl fléttar saman reyfaralegri at-
burðarás og bókmenntasögulegum vanga-
veltum.