SunnudagsMogginn - 28.03.2010, Side 55
28. mars 2010 55
Ávörp á alþjóðaleik-
listardaginn
27. mars er alþjóðaleiklistardagurinn haldinn hátíðlegur um allan. Liður í þeim hátíðarhöldum er að kunnum
leiklistarmanni eða -konu er falið að semja ávarp sem birt er víða um heim og í hverju landir er líka sá siður að
samið er slíkt ávarp til heimabrúks, en það ávarp er síðan flutt á stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir sýningu og í
leikhúsum um allt land, auk þess sem það er flutt í útvarpi og birt í dagblöðum. Ragnheiður Skúladóttir, deild-
arforseti leiklistar- og dansdeildar Listaháskóla Íslands, samdi innlenda ávarpið sem birt er hér og leikkonan
Judi Dench aðþjóðlega ávarpið sem birt er þar fyrir neðan.
Ávarp Ragnheiðar Skúladóttur
„Er það ekki merkilegt að í samfélagi okkar, þar
sem hinn svokallaði hvunndagur glottir við manni
að morgni og æpir: „Icesave“! eða: „Eldgos“! … já,
er það ekki merkilegt að í okkar daglega amstri;
þéttriðnu neti upplýsinga, álita-
mála, greinargerða, fésbók-
arfærslna, tölvuskeyta og smá-
skilaboða … skuli leynast
leiksvið? Er það ekki undarlegt
að við, sem reynum eftir fremsta
megni að halda okkur í sömu
vídd og okkur var úthlutað við
fæðingu, skulum sammælast um
að kóróna raunveruleikann með
leikhúsum, sem eru til þess eins
gerð að hýsa skáldlega úttekt á þeim flóknu og oft
tröllvöxnu sendingum sem tíminn þeytir í átt til
okkar hvort heldur sem er í vöku eða í draumi? Eða
hvað? Við tölum um leiklist og eigum með því við
athafnirnar sem áhorfendur verða vitni að í leik-
húsi. Þó á leiklistin sér ekki aðrar forsendur en
skynjun og túlkun áhorfandans á hreyfingum og
orðum þeirra sem standa á sviðinu í hvert sinn.
Vegna þess að leiklistin er í raun átak áhorfenda og
leikenda. Kjarni hennar felst í samkomulagi beggja
aðila um að gera tilraun til þess að skapa sameig-
inlega reynslu, án þess að hafa nokkra tryggingu
fyrir því að tilraunin takist, enda upplifun áhorf-
enda af atvikum á leiksviði – sjónarhorn og afstaða
– bundin persónu þeirra og lífsreynslu. En þegar
tilraunin ber árangur – og það gerist vissulega
stundum – þá gerast lítil kraftaverk. Það sem virtist
svo órætt og óljóst breytist í allt að því áþreifanlega
staðreynd. Þá skilur maður loks að ástæða þess að
við höfum sammælst um að hafa sérstök leiksvið,
leikhús og skapa leiklist er sú að það er í eðli okkar
að vilja túlka veruleikann í kringum okkur og upp-
lifun okkar af honum. Við höfum þörf fyrir að líta
Ragnheiður
Skúladóttir
um öxl, endurmeta stöðu okkar, gagnrýna gjörðir
okkar og hegðun og við þráum að setja flókna og –
að því er virðist – fullkomlega óskylda hluti í sam-
hengi. Til þess að skilja það sem sýnist óskiljanlegt.“
Ávarp Judi Dench
„Alþjóðaleiklistardagurinn gefur okkur tækifæri til
að fagna leiklist eins og hún birtist okkur í ógrynni
mynda. Leiklist er uppsprettulind skemmtunar og
andagiftar og gefur færi á að
sameina ólíkar menningar-
arfleifðir og þjóðir sem fyr-
irfinnast vítt og breitt um heim-
inn. En leiklist er líka meira en
það því með leiklistinni gefst
tækifæri til að fræða og upplýsa.
Leiklist er flutt víðsvegar um
heiminn og ekki alltaf í hefð-
bundnum leikhúsbyggingum.
Leiksýning getur birst okkur í
litlu þorpi í Afríku, í skjóli fjalls í
Armeníu, á agnarsmárri eyju í Kyrrahafinu. Allt
sem þarf er rými og áhorfendur.
Leiklist kallar fram bros á andlitum okkar, fær
okkur til að tárast, en ekki síst fær hún okkur til að
hugsa og bregðast við.
Leiklist verður til í samvinnu. Leikararnir eru
þeir sem sjást, en þeir eru undra margir sem ekki
sjást og eru allir jafn mikilvægir og leikararnir. Það
munar um þá og fyrir hæfileika þeirra verður leik-
sýning að veruleika. Þeir eiga líka allan heiður skil-
inn þegar við fögnum og gleðjumst yfir þeim sigr-
um sem leiklistin vonandi skilar í höfn í dagslok.
27. mars er hinn opinberi alþjóðadagur leiklist-
arinnar. Hver dagur ársins ætti skilið að vera sá
dagur; dagur leiklistarinnar. Því það er á okkar
ábyrgð að viðhalda stöðugt hefðinni að skemmta,
að fræða og upplýsa áhorfendur okkar, þá sem öll
okkar tilvist byggist á.
Íslensk þýðing Viðar Eggertsson.
Judi
Dench
Helstu leiklistarverðlaun Eng-
lands, Olivier-verðlaunin, voru
veitt við hátíðlega athöfn í
Lundúnum í vikunni. Það vakti
talsverða athygli þar í landi að
besta nýja leikrit ársins var valið
verkið The Mountaintop, eða
Fjallstindurinn, sem frumsýnt
var á krá, en flestir höfðu búist
við því að leikritið Enron, sem
Borgarleikhúsið hyggst setja
upp hér á landi, eða Jerúsalem
myndi hreppa hnossið.
Höfundur Fjallstindsins, sem
segir frá Martin Luther King, er
Katori Hall. Það er annað leikrit
hennar sem kemst á svið og það
fyrsta sem sýnt er í leik-
húshverfi Lundúna, West End,
en það var fært af kránni, þar
sem 65 manns komust fyrir, í
Trafalgar Studios-leikhúsið.
Hall fæddist í Memphis, en í
þeirri borg beið Martin Luther
King sitt skapadægur 4. apríl
1968. Leikritið dregur nafn sitt
af þekktri ræðu hans og gerist
þar sem hann situr í hótelher-
bergi sínu síðasta kvöldið sem
hann átti ólifað. Til stendur að
setja verkið upp á Broadway í
New York á næstunni.
Verkinu var almennt vel tekið
af gagnrýnendum og þannig gaf
gagnrýnandi The Times því fjór-
ar stjörnur, en skrifari Guardian
var ekki eins hrifinn og Fin-
ancial Times sagði að áhorf-
endur fengju eflaust yfir sig af
vísunum í verkinu í Obama
Bandaríkjaforseta.
Hall er 28 ára gömul og fyrsta
blökkukonan sem hlýtur Oli-
vier-verðlaunin fyrir besta nýja
leikritið og fjórða konan til að
hljóta þessi eftirsóttu verðlaun
frá því þau voru fyrst veitt 1976.
Hún ólst upp í fátækrahverfi í
Memphis og fór ung að skrrfa
greinar gegn óréttlæti og for-
dómum. Hún ætlaði sér að verða
skáldsagnahöfundur, en náði
ekki tökum á forminu. Þegar
einn kennara hennar hvatti
hana til að skrifa frekar leikrit
fann hún fjölina sína og eftir
nokkrar tilraunir kom hún
fyrsta leikritinu á svið fyrir
þremur árum.
Af Olivier-verðlaununum er
það að annars frétta að Rachel
Weisz var valin besta leikkonan
fyrir frammistöðu sína í Spor-
vagninum girnd, besti leikari
var valinn Mark Rylance fyrir
leik sinn í Jerúsalem, besta leik-
kona í aukahlutverki Ruth Wil-
son, einnig í Sporvagninum
girnd, og besti leikari í auka-
hlutverki var Eddie Redmayne
fyrir leik sinn í leikritinu Rautt.
King á fjallstindinum
Bandaríska leikskáldið Katori Hall
hlaut Olivier-verðlaunin.
LISTASAFN ÍSLANDS
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Ævispor
Útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur
Endurfundir
Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna
2 fyrir 1 af aðgangseyri sunnudaginn 28. mars
Aðgangur ókeypis fyrir börn
Opið alla daga nema mánudaga 11-17
www.thjodminjasafn.is – s. 530 2200
Söfnin í landinu
13. mars - 2. maí 2010
Í barnastærðum
Sunnudag 28. mars kl. 14
- Örnámskeið fyrir börn og
foreldra í tengslum við
sýninguna.
Opið 12-17, fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
í samstarfi við Listasafn Íslands
ÍSLENSK MYNDLIST
hundrað ár í hnotskurn
Sýningarspjall sunnud.
28. mars kl. 15
Inga Jónsdóttir
OPIÐ: Fim.–sun. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
ANGURVÆRÐ Í MINNI
11.3.-2.5.
LISTAMANNASPJALL sunnudaginn 28. mars kl. 14
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson myndlistarmaður spjallar við safngesti.
VINNUSTAÐIR ALVÖRU KARLA
11.3.-11.4.
SAFNBÚÐ
Fermingar- og útskriftartilboð á listaverkabókum.
OPNUNARTÍMAR UM PÁSKANA
OPIÐ: 1. apríl (skírdag) og 3. apríl (laugardag)
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR • www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009.
Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi.
Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd.
„Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og
Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta.
Þjóðin og náttúran. Íslensk dýralífsmynd fyrir börn og fullorðna.
Myndgerð: Páll Steingrímsson.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
Ljósmyndasýningin Spegilsýnir:
Bára Kristinsdóttir, Einar Falur,
Jónatan Grétarsson,
Katrín Elvarsdóttir,
Spessi, Þórdís Erla Ágústdóttir.
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið virka daga 11.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
VÍKINGAHEIMAR
Skipið Íslendingur og
sögusýning
- Söguleg skemmtun
VÍKINGABRAUT 1
- REYKJANESBÆ
Opið alla daga
frá 11:00 til 18:00
Sími 422 2000
www.vikingaheimar.com
info@vikingaheimar.com