Morgunblaðið - 08.02.2010, Síða 1
M Á N U D A G U R 8. F E B R Ú A R 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
31. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
ÁN ALLRA AUKEFNA
FÆUBÓTAREFNI
ÍSLENSKTPRÓTEIN
Ætlað þeim sem vilja skipta út narti
fyrir heilsusamlegan próteindrykk.
«DAGLEGTLÍF
FARA UM SKOTLAND
Á MÓTORFÁKUM
«ÍÞRÓTTIRKÖRFUBOLTI
Snæfell í
bikarúrslit
6
BANASLYSIÐ á Langjökli fyrir
rúmri viku og fleiri slys og óhöpp á
jöklum undanfarið valda því að
Ferðaklúbburinn 4x4 hyggst gera
átak í að efla öryggismál jeppa-
manna. Að sögn Sveinbjarnar Hall-
dórssonar, formanns 4x4, er hugs-
anlegt að menn þurfi að gera rót-
tækar breytingar, s.s. að jeppa-
menn séu í öryggislínu þegar þeir
fara út úr bílum sínum á svæði þar
sem sprungur geta leynst, en það
hefur ekki tíðkast hingað til. »8
Hyggjast gera átak í örygg-
ismálum í kjölfar banaslyss
„ÞETTA hefur verið nefnt við og við,“ segir Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks-
ins, um orðróm þess efnis að flokkur hans sé á leið inn í
ríkisstjórn með Samfylkingu og Vinstri grænum. Sig-
mundur segir engar líkur til þess að af því verði. „Nú-
verandi stjórn er með meirihluta, en meti menn það svo
að sá meirihluti dugi ekki við þessar aðstæður væri
eðlilegast að byrja á því að skoða möguleikann á þjóð-
stjórn.“ Sigmundur áréttar að Framsóknarflokkurinn
gæti heldur ekki stutt stefnu núverandi ríkisstjórnar,
heldur þyrftu að koma til gagngerar breytingar á
stefnu hennar áður en svo gæti orðið.
Vill frekar þjóðstjórn
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
ÁKVEÐIN þreyta virðist komin í
stjórnarsamstarf Samfylkingar og
Vinstri grænna þótt það hafi ekki
varað nema í eitt ár og eina viku.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hafa ákveðnir þingmenn
Samfylkingar og ráðherrar haft sam-
band við ákveðna þingmenn Fram-
sóknarflokksins á undanförnum
tveimur vikum til þess að reifa þann
möguleika við framsóknarmenn að
Framsóknarflokkurinn kæmi inn í
stjórn Samfylkingar og VG.
Samkvæmt sömu heimildum hafa
framsóknarmenn tekið þessum
þreifingum samfylkingarfólks fálega
og þeir framsóknarþingmenn sem
rætt var við í gær töldu útilokað að
flokkurinn væri reiðubúinn til slíks
samstarfs.
Vilja engar ákvarðanir taka
Helstu ástæður þess að Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra
og einhverjir þingmenn Samfylking-
arinnar hafa eftir óformlegum leið-
um kannað hvort Framsókn hefði
vilja til þess að koma inn í stjórn og
styrkja þingmeirihluta stjórnarinnar
eru sagðar þær, að flokkurinn sé orð-
inn langþreyttur á því að VG vilji
engar ákvarðanir taka og engar
framkvæmdir heimila. Eini maður-
inn, sem sagt er að samfylkingar-
þingmenn og -ráðherrar treysti, er
Steingrímur J. Sigfússon, en hann
hafi ekki þá stjórn á eigin flokki sem
hann hafði áður.
Enginn úr þingliði VG mun hafa
tekið þátt í þessum óformlegu þreif-
ingum, en forsvarsmönnum flokks-
ins mun þó síðustu daga hafa verið
kunnugt um slíkar þreifingar.
Reyndar sagði þingmaður Fram-
sóknarflokksins í gær að VG hefði
fyrir einhverjum vikum gefið það í
skyn að rúm væri fyrir Framsókn-
arflokkinn í ríkisstjórninni og aug-
ljóst væri að þreyta og pirringur í
stjórnarflokkunum væru gagn-
kvæm.
Þingmaður Framsóknar, sem rætt
var við í gær, sagði að rætt hefði ver-
ið við sig og hann vissi um aðra félaga
sína í Framsókn sem einnig hefði
verið rætt við. „Við framsóknarmenn
höfum vitanlega engan áhuga á að
koma inn í slíkt stjórnarsamstarf til
þess að verða einhver hækja fyrir
Samfylkingu og VG,“ sagði hann.
„Sporin frá í fyrra, þegar við vörðum
minnihlutastjórn þessara flokka falli,
hræða.“
Gerir hosur
sínar grænar
fyrir Framsókn
Samfylkingin kannar möguleika á að fá
Framsóknarflokkinn inn í stjórnina
» VG gefur til kynna
ákveðin þreytumerki
» Telja að Framsókn
gæti orðið góður liðs-
auki stjórnarinnar
RÚMLEGA 500 keppendur sýndu tilþrif og takta á Íslandsmótinu í hópfim-
leikum sem fram fór í Versölum í Kópavogi um helgina. Hópfimleikar hafa
sótt í sig veðrið á undanförnum árum og voru áhorfendabekkirnir í hinu
glæsilega fimleikahúsi Gerplu í Kópavogi þéttsetnir alla helgina. Kepp-
endur komu frá flestum þéttbýlisstöðum landsins. Í hópfimleikum er keppt
í hópdansi, dýnuæfingum og stökki á trampólíni. | Íþróttir
Morgunblaðið/Kristinn
TILÞRIF Í VERSÖLUM
ÓLAFUR Jóhannesson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu karla, sagðist
í samtali við Morgunblaðið vera
mjög ánægður með riðil Íslands í
undankeppni EM 2012.
ÍÞRÓTTIR
Ólafur er hrifinn
af Portúgölum
SUMAR tegundir fjármálaráð-
gjafar eru ekki leyfisskyldar og
lúta ekki eftirliti FME. Þannig
þurfa þeir sem veita ráðgjöf bæði
um lántökur og innlán ekki sérstakt
leyfi né eru þeir undir eftirliti hjá
FME ef þeir starfa sjálfstætt en
ekki innan fjármálafyrirtækja. Á
síðustu árum tóku margir rangar
ákvarðanir um fjármál sín á grund-
velli ráðgjafar frá fólki sem í ljósi
sérfræðiþekkingar sinnar hefði átt
að vera hægt að treysta. »14
Þurfa ekki opinbert leyfi til
að veita fjármálaráðgjöf