Morgunblaðið - 08.02.2010, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 08.02.2010, Qupperneq 13
Daglegt líf 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2010 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Að eiga svona hjól og ferðastá því er ákveðinn lífsstíll.Þessu sportifylgir svo mikið frelsi, útivera og góður félagsskapur,“ segja þeir Guðmundur Björnsson læknir og Axel Eiríksson úrsmíðameistari, en þeir eiga báðir glæsta mótorfáka af BMW-gerð. Þeir eru félagar í BMW-hjólaklúbbi Íslands og ætla ásamt nokkrum félögum sínum úr þeim klúbbi að leggja upp í hjólaferð í Skotlandi í vor. „Það er mikil tilhlökkun í hópnum enda gengur ferðin undir nafninu „Unstoppable“ eða óstöðvandi. Við erum rúmlega tuttugu manns sem leggjum upp í þessa ferð í lok apríl. Flestir senda hjólin sín í gámum til Bretlands með Samskipum en ein- hverjir ætla að leigja sér hjól úti. Við fljúgum til London en þaðan tökum við rútu til Grimsby og skoð- um eitthvað af flottum stöðum í leið- inni. Síðan hjólum við í tíu daga um Skotland og munum leggja 2.500 kílómetra að baki, sem jafngildir því að fara tvisvar sinnum kringum Ís- land. Við hjólum öll af stað saman en svo skiptum við okkur í smærri hópa því það ætla ekki allir að gera það sama. Fólk verður að hafa sitt frelsi til að fara og sjá það sem það hefur áhuga á. Við leggjum áherslu á að all- ir séu sjálfstæðir í svona hjólaferð. En við ætlum að hittast þrisvar sinn- um allur hópurinn.“ Meiri hluti ferðalanganna er karl- ar en þó munu fjórar konur slást í för. Þær verða farþegar aftan á hjá körlum sínum og kallast því hnakka- skraut. Kynnum Ísland í leiðinni Til stendur að hjóla um norð- ursvæði Skotlands og meðal annars ætlar hópurinn að sigla út í eyjarnar Harris og Lewis og hjóla þar. „Við verðum á þannig vegum að hámarks- hraði verður í lægra lagi sem er gott því þá njótum við náttúrunnar betur. Við hjólum um skosku hálöndin, skoðum kastala, gamla bæi og fleira áhugavert. Og það má vel vera að við leyfum okkur að smakka alvöru skoskt maltviskí,“ segja þeir félagar og líta sposkir hvor á annan. Svona hjólaferð í útlandinu má nýta til margs og meðal annars ætla sumir að nota tækifærið og fá að stinga hjólum sínum í samband við bilunargreingatölvu, en slík tölva er ekki til hér á landi. „Við ætlum líka að kynna ferðalag- ið okkar vel og landið okkar Ísland sem hagkvæman kost fyrir hjóla- ferðalög, en mikill fjöldi BMW-hjóla kemur með Norrænu til Íslands ár- lega, þar sem útlendingar ferðast á þeim um landið okkar. Við verðum í viðtali hjá Grimsby Telegraph í byrj- un ferðar og einnig verðum við í myndatöku hjá Evning News í Ed- inborg og í Glasgow Daily Times. Við erum búnir að selja auglýsingar á töskurnar okkar, svo við verðum hjólandi auglýsingar fyrir Samskip, Bluemountain.is og Icelandair, sem eru styrktaraðilar okkar.“ Kraftmikil flaggskip Flest hjólin í ferðinni eru svokölluð GS-hjól, en þau eru gerð til þess að aka bæði á malbiki sem og utanvegar á malarvegum. Þessi flaggskip eru þung og kraftmikil hjól sem fara upp í 100 kílómetra hraða á þremur sek- úndum. Og þau er hægt að keyra á yfir 200 km hraða á klukkustund. „En það er sjaldnast sem við leyfum okkur að aka á slíkum hraða. Það er eitthvað sem maður prófar, en ekki sá hraði sem við hjólum á almennt. Hjólið er um 200 kíló og enginn vill detta og verða undir því. Við höfum vissulega dottið, rifbrotnað og putta- brotnað.“ Litlir kóngar elskir að vélum Guðmundur á tvö hjól, eitt á Ís- landi og annað úti í Bandaríkjunum, en hann hefur átt mótorhjól frá því hann var 13 ára og játar fúslega að hann sé með hjólabakteríuna. Mótorhjóladellan virðist vera þó nokkuð karllæg því flestir félagar hér á landi í BMW-klúbbnum eru karl- kyns. „Ætli það sé ekki alveg óhætt að játa að flestir þeirra sem eigi svona hjól séu litlir kóngar,“ segja þeir Guðmundur og Axel og bæta við að menn sem eigi svona hjól séu vissulega elskir að vélum. „Þetta eru vel smíðaðir hlutir og fallega gerðir. Svo er það líka ánægjan að vera með tæki og tól sem fylgja þessu, eins og til dæmis GPS-staðsetningartækin en þau auðvelda okkur að rata á rétta blettinn í útlandinu til að hitta hina í hópnum.“ Dverggeiturnar trufluðu Fyrsta GS-BMW-hjólið kom fyrir sjö árum hingað til lands en núna eru þau orðin um eitt hundrað. Þetta eru vönduð og tæknilega mjög fullkomin hjól og þau fara vel með knapann sem situr þau. „Einmitt þess vegna eru þetta vin- sælustu hjólin í heimreisum og safaríferðum,“ segir Guðmundur sem hefur hjólað mikið bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Hluti af klúbb- félögunum fór til Þýskalands fyrir tveimur árum og þá voru þeir að læra að hjóla í torfærum. „Þá þurftum við að standa á hjól- unum og vorum í raun að dansa við hjólið, það var mjög skemmtilegt. Við hjóluðum yfir hóla og hæðir, í fjár- götum og í sandi og vissulega duttum við stundum af baki, en það er partur af þessu. Axel datt til dæmis af því hann var að horfa á dverggeitur. Maður má ekki gleyma sér,“ segir Guðmundur og hlær. „Við fórum í sumar í nokkrar ferð- ir hérlendis, ýmist dagsferðir eða lengri ferðir. Meðal annars fórum við á Vestfirði, hringveginn og í Jökul- heima við Vatnajökul og í kringum Þórisvatn. Það var heilmikil svaðilför og auðvitað er mest gaman þegar eitthvað óvænt kemur upp á, þá verð- ur þetta ævintýr. En við leggjum mikið upp úr því að fara ekki útfyrir slóða, við höfum engan áhuga á því að skemma landið.“ Flakkað um á mót- orfákum Morgunblaðið/Ómar Svalir Þeir Guðmundur og Axel eru veikir fyrir hjólum og taka sig vel út í vetrarsólinni í fjörunni við Álftanes. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tilbúnir í slaginn Þrír af ferðalöngunum sem ætla til Skotlands í vor. F.v Guðmundur Ragnarsson, Gunnar Jónsson og Logi Guðjónsson. Um tuttugu manna hóp- ur ætlar að fara með fimmtán mótorfáka til Skotlands í vor og hjóla þar um í tíu daga. www.bmwhjol.is • Heildverslun með neytendavörur og góða markaðshlutdeild. Velta 200 mkr. EBITDA 30 mkr. • Hluthafi óskast að rótgrónu framleiðslu- og innflutningsfyrirtæki með eigin verslanir. EBITDA 40 mkr. Litlar skuldir. • Rótgróið bakarí með góðan hagnað. • Heildverslun með fatnað og vefnaðarvörur. Ársvelta 100 mkr. • Innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir heimili. Ársvelta 70 mkr. • Lítil heildverslun með snyrtivörur. • Heildverslun með neytendavörur. Ársvelta 250 mkr. • Þekkt iðnfyrirtæki sem selur að stórum hluta beint til almennings. Ársvelta 350 mkr. • Rótgróið byggingafyrirtæki í Noregi sem sérhæfir sig í viðhaldi og endurnýjun. Ársvelta 24 millj. EUR. EBITDA 2,8 millj. EUR. • Innflutnings- og þjónustufyrirtæki. Ársvelta 220 mkr. • Rótgróið útgáfafyrirtæki tengt ferðaþjónustu. EBITDA 5 mkr. • MOTORS. Tískuverslun á Laugavegi með sterk vörumerki í einkasölu og sérvörur fyrir mótorhjólafólk. Gæti hentað vel til sameiningar. • Rótgróið iðnfyrirtæki með bygginga- og viðhaldsvörur. Ársvelta 90 mkr. • Lítið innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með álprófíla og plexigler. Ársvelta 50 mkr. • Lítið framleiðslufyrirtæki með örugga viðskiptavini. Tvö stöðugildi. Ársvelta 55 mkr. EBITDA 15 mkr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.