Morgunblaðið - 08.02.2010, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.02.2010, Blaðsíða 17
Minningar 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2010 ✝ Elín Svava Sigurð-ardóttir húsmóðir fæddist í Reykjavík 7. ágúst 1920 og lést hún á Landsspítala í Foss- vogi 31. janúar 2010. Foreldrar hennar voru Sigurður Hall- dórsson frá Gegn- ishólaparti í Gaul- verjabæjarhreppi, verkstjóri hjá Reykja- víkurborg, f. 11. ágúst 1894, d. 16. mars 1978 og Marólína Guðrún Erlendsdóttir hús- móðir frá Hópi í Grindavík, f. 13. nóvember 1900, d. 23. mars 1973. Systkini Elínar eru Halldór Grét- ar f. 12. október 1921, d. 30. desem- ber 1982, Erlendur f. 12. apríl 1924. d. 5. apríl 1995, Jóna Lísbet f. 8. ágúst 1925, Oddgeir f. 7. febrúar 1932 og Margrét f. 26. maí 1944. Elín Svava giftist 2. desember 1939 Magnúsi Bergsteinssyni húsa- smíðameistara f. 14. janúar 1915 í Reykjavík og d. 10. mars 1999. For- eldrar hans voru Bergsteinn Jó- barnabörnin 17. Elín fæddist á Lindargötu 36, í Rvík og ólst þar upp hjá foreldrum sínum ásamt systkinum, auk þess bjuggu í sama húsi föðurforeldrar hennar Halldór og Margrét og tveir föðurbræður ásamt fjölskyldum, enda var húsið oftast kallað „Halldórshús“ af ætt- ingjum og vinum. Elín var ung að árum þegar hún giftist Magnúsi og hófu þau búskap á Snorrabraut 48, fluttu þaðan á Karlagötu en byggðu sér síðan hús að Blönduhlíð 12. Leiðin lá aftur á Snorrabrautina þar sem þau keyptu lítið hús á Snorrabraut 24 sem Magnús byggði hæð ofan á. Árið 1985 fluttust þau að Skaftahlíð 42 og bjuggu þar síð- ustu ár ævinnar. Sumarhús byggðu þau sér í Grímsnesi þar sem þau voru meðan heilsan leyfði. Elín var einstök eiginkona, móð- ir, amma og langamma. Húsmóðir af guðs náð og var mikill gesta- gangur á hennar heimili, hún hjálp- aði og studdi alla sem til hennar leituðu og stóð heimili hennar alltaf opið. Snyrtimennska var henni í blóð borin, enda fylgdi því að klæð- ast að morgni að snyrta sig og greiða. Útför Elínar Svövu fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 8. febrúar 2010, og hefst athöfnin kl. 13. hannesson múr- arameistari í Reykjavík, f. 6. jan 1878 í Litlagerði í landi Stórólfshvolfs, Hvolhr., Rang., d. 21. maí 1940 og Ragn- hildur Magnúsdóttir húsmóðir, f. 20. nóv- ember 1879 í Holts- múla í Landsveit, Rang., d. 27. desem- ber 1935. Börn Elínar og Magnúsar eru: 1) drengur f. 7. nóv- ember 1939, d. 18. janúar 1940. 2) Bergsteinn Ragnar f. 31. mars 1941, maki Else Möllnits Magnússon. 3) Marólína Arnheiður f. 24. júlí 1942, d. 6. nóvember 2006, maki Bogi Sig- urðsson. 4) Ragnhildur Magnúsdóttir f. 29. desember 1947, maki Kristinn Eymundsson. 5) Sigrún f. 4. febrúar 1950. 6) Magnús Svavar f. 6. janúar 1954, maki Hafdís Magnúsdóttir. 7) Margrét Halla f. 9. desember 1954, maki Hafsteinn Kristjánsson. Barnabörnin eru 14 og barna- Elskulega amma okkar, sem hefur verið miðpunktur heimsókna okkar til Reykjavíkur lengi, hefur kvatt eftir stutt veikindi. Við nutum ekki í upp- vextinum nema að litlu leyti samvista við föðurömmu og afa okkar. Foreldr- ar okkar fluttu þegar við vorum ung til Svíþjóðar og skildu svo nokkrum árum síðar. Eftir skilnaðinn flutti móðir okkar með okkur systkinin til Íslands aftur en faðir okkar varð eftir í Svíþjóð. Eins og oft vill verða var ekki samgangur við föðurfólkið á Ís- landi nema að litlu leyti, ekki síst vegna þess að faðir okkar varð eftir í Svíþjóð. Auk þess fluttum við systk- inin öll burt frá Reykjavík löngu fyrir tvítugsaldurinn og í dag búa þrjú í Svíþjóð og eitt á Austurlandi. Á ung- lingsaldrinum þegar við systkinin urðum sjálfstæðari tókum við sjálf upp á því að líta við hjá þeim ömmu og afa þegar við áttum leið um Snorra- brautina, þar sem þau bjuggu lengst af. Alltaf var tekið vel á móti okkur og áttum við margar ljúfar og góðar stundir með ömmu og afa yfir mjólk- urglasi og súkkulaðikexi frá Frón. Elsta dóttir þeirra hjóna, Malla frænka, reyndist okkur systkinunum vel í gegnum árin og sá hún til þess að sambandið héldist þar til hún sjálf veiktist og féll frá fyrir nokkrum ár- um. Eftir að Malla frænka féll frá hef- ur Raggý systir hennar fyllt það skarð. Það þykir okkur vænt um. Auk þess höfum við nokkur barnabörnin haldið sambandi og hist af og til og vonandi tekst okkur að halda því áfram. Amma var hlý og góð kona sem alla tíð sinnti sínu fallega heimili afar vel. Hún var alltaf í sama góða skapinu og lét afa, sem var afar stríðinn, ekki trufla það. Amma var vön því að hafa vinnukonu sem sá um þrifin og mun- um við vel eftir henni í hagkaups- sloppnum með skupluna á höfðinu. Amma var alltaf vel til höfð og glæsi- leg kona. Hún var vinamörg og var stöðugur straumur gesta á heimilinu. Hafði hún gaman af því að spjalla við alla um það sem helst var á döfinni hverju sinni enda fylgdist hún vel með þjóðfélagsmálunum. Hún hélt skýrri hugsun til síðustu stundar og mundi hún alltaf vel nöfn barnabarna sinna og hvar þau eru stödd í lífinu. Spurði hún alltaf um þau í hverri heimsókn okkar ef þau voru ekki með. Spurði hún fregna af móður okkar sem henni þótti vænt um. Hún lét sér einnig annt um yngstu systkini okkar, sam- mæðra, þau Bjarka Má og Ester Birnu. Þau hjónin voru afar samrýnd og sáum við vel hversu mikinn hlýhug og virðingu þau báru fyrir hvort öðru. Þegar afi dó var stutt í 60 ára brúð- kaupsafmæli þeirra og var afi búinn að kaupa gjöfina handa ömmu. Amma sagði að hann hefði fundið það á sér í hvað stefndi. Hann sofnaði svefninum langa eina nóttina við hlið ömmu. Hún saknaði hans ávallt afar sárt og nú er hún komin til hans og tveggja barna þeirra sem líka eru farin. Reykjavík verður ekki söm nú þeg- ar við höfum ekki okkar elskulegu ömmu til að líta til og eiga gott spjall við hana og Sigrúnu frænku og dóttur hennar sem bjó hjá henni. Elsku amma, við kveðjum þig með söknuði. Megi minning þín lifa. Elín, Magnús, Sólveig og Björg Bergsteinsbörn. Aðfaranótt sunnudagsins 31. jan- úar hélt ástkær amma okkar, Elín Svava Sigurðardóttir í langþráða ferð sína til fundar við Magnús afa eftir langvinn og erfið veikindi. Elín amma lést á 90. aldursári sínu og má með sanni segja að ævi hennar hafi verið bæði fyllt af djúpri gleði jafnt sem djúpri sorg á löngu æviskeiði hennar. Minningarnar flæða þegar litið er til baka yfir farinn veg. Ást, kærleikur og hlýja eru helstu minningar okkar um ömmu. Amma var boðberi blíðu og umhyggju hvort sem það ein- kenndist í áhyggjum hennar af heilsu okkar eða áhuga hennar á lífi okkar, leik og starfi. Má með sanni segja að Ella amma og Maggi afi hafi verið okkur einna stærsta hvatning til þess að feta bæði veg lærdóms og lífs með heiðarleika, seiglu og þrótti. Heimili ömmu og afa var ávallt okkur opið og eigum við systur yndislegar minning- ar frá þeim tímum sem við dvöldum hjá þeim, hvort sem það var hér í bænum eða griðastaðnum þeirra í Skógargerði í Grímsnesi, þar sem afi byggði þeim bústað með alúð og natni sinni og amma gerði að björtum heimi gleði og ævintýra. Amma kenndi okkur öllum hinar ótrúlegustu vísur og sögur og auðgaði trú okkar bæði á æðri mátt sem og hin furðulegustu ævintýri með söng sínum og lífsgleði. Amma var afa bæði góð eiginkona sem og vinur og átti afi ljúfa ævidaga við hlið ömmu enda var ást þeirra hrein unun að verða vitni að. Annað einkennismerki ömmu var ástríða hennar í eldhúsinu þar sem hún fór um sem stormsveipur í bernsku okkar og í huga okkar lifa sælar endurminningar bæði úr eld- húsinu á Snorrabraut jafnt sem í Skaftahlíðinni. Aldrei var komið að tómu búrinu hjá ömmu enda var það yfirleitt yfirfullt af gómsætu heima- bökuðu bakkelsi, kleinum og stór- kostlegum tertum sem betur hefðu farið í listatímariti en í litla gráðuga munna barnabarna sem elskuðu ekk- ert heitar en að komast í snertingu við gómsætu súkkulaðikökurnar hennar ömmu. Má segja að þessi ástríða hennar hafi þó gætt líf hennar ljúfsár- um trega undir það síðasta enda missti amma mestan part sjónar sinn- ar sem og þjáðist af þungum verkjum vegna liðagigtar sem kom í veg fyrir að hendur hennar lékju meistaraleik sinn á þessu sviði undir það síðasta. Elsku hjartans amma okkar, við kveðjum þig með sömu orðum og við kvöddum ástkæran afa okkar og þökkum með öllu hjarta okkar að hafa verið þeirri gjöf gæddar að hafa kynnst þinni einstöku sál. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Ástarkveðja, Dagbjört Erla, Elín Halla, Lilja Dögg og Arnheiður Sif. Elín Svava Sigurðardóttir  Fleiri minningargreinar um Elín Svava Sigurðardóttir bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGIGERÐUR STEINÞÓRSDÓTTIR, áður til heimilis Langagerði 106, lést á Droplaugarstöðum miðvikudaginn 3. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 11. febrúar kl. 13.00. Jórunn Sigurbergsdóttir, Pálmi Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri, RUNÓLFUR ENGILBERTSSON Bifreiðarstjóri, frá Vatnsenda í Skorradal andaðist á LSH Fossvogi föstudaginn 5. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Börn, systkyni og aðrir aðstandendur hins látna. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi ÓLAFUR ÁGÚST VETURLIÐASON múrari, Vesturtúni 38 lést á Landakoti föstudaginn 5. febrúar Kristín Guðmundsdóttir, Andrea Ólafsdóttir, Erlendur G Gunnarsson, Guðrún Ólafsdóttir, Ármann Ólafsson, Árdís Olga Sigurðardóttir, Helga Ólafsdóttir, Bergur Helgason, Ágúst Ólafsson, Rebekka Rut S Carlsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR FRIÐRIKSSON Sunnubraut 6, Þorlákshöfn, verður jarðsunginn frá Þorlákskirkju, Þorlákshöfn miðvikudaginn 10. febrúar kl. 14.00. Guðlaug Guðnadóttir, Ingveldur Pétursdóttir, Andrés Kristjánsson, Sesselja Pétursdóttir, Einar Gíslason, Guðni Pétursson, Hrönn Sverrisdóttir, Friðrik Pétursson, Steinunn Gísladóttir, Magnús Jón Pétursson, Sigurrós Hulda Svanhólm, afa- og langafabörn. Í dag, 8. febrúar 2010, hefði gamall kær vinur minn orðið 45 ára. 45 ár eru ekki hár aldur, en það er kannski langur tími fyrir þann sem var ekki alltaf sáttur með sitt. Ekki það að lífið sé neinn leikur. Það er mikil fyrirhöfn og mikil vinna ef vel á að komast í gegnum það. Það sem einkenndi Hrafn var dugnaður, gleði og orka. Hrafn hreif fólkið með sér, alltaf hress og kátur og skemmtilegur karakter. Hrósaði fólki reglulega þegar því gekk vel. Alltaf síbrosandi og virtist vera mjög hamingjusamur sjálfur. Ég kynntist Hrafni á unglingsár- um. Þá vorum við bæði á fullu í dansi. Hann bjó í Kópavogi og ég í Reykjavík. Hrafn var einn af flott- ustu dönsurum sem ég hef kynnst. Smart strákur, átti marga vini og var alltaf hrókur alls fagnaðar þar sem hann kom. Ég var ekki í miklu sambandi við Hrafn síðustu ár eftir að hann flutti á Ólafsfjörð. En þau fáu skipti sem ég hitti hann var hann alltaf skæl- brosandi og hress, kannski var það „front“ hjá honum, hér skal ekki fullyrða um það. En þegar ég frétti af andláti hans þá runnu tár niður kinnarnar á mér, í raun í nokkra daga á eftir. Og gera það líka þegar ég skifa þessa grein. Fyrir 7 mán- uðum síðan var ég að hugsa um Hrafn Franklin Friðbjörnsson ✝ Hrafn FranklinFriðbjörnsson fæddist í Vest- mannaeyjum 8. febr- úar 1965. Hann lést á heimili sínu, Bylgju- byggð 61 í Ólafsfirði, 28. júní 2009. hvort ég ætti að skrifa um hann nokkur orð, en ég vissi ekki alveg hvað ég ætti að skrifa. Ekki það að ég þyrfti að hugsa mig vel um, heldur er svo margt skemmtilegt og fallegt hægt að skrifa um hann Hrafn. Það var kannski frekar hversu langt það ætti að vera. Minningarnar streymdu fram. Hrafn valdi sér að læra sálfræði, og varð að sjálfsögðu meistari í þeirri grein eins og mörgu öðru. Hann var mikið fyrir að tjá sig og segja sína skoðun, og einnig góður hlustandi þegar við átti. Þetta starf hentaði honum því vel. Síðan fékk hann útrás í dans- inum og líkamsræktinni, sem hann var líka mjög góður í. Þegar Hrafn dó, þá dó einnig ein af okkar aðal-poppstjörnum í heim- inum, Michael Jackson. Ég er ekki frá því að Hrafn hafi verið betri dansari en hann. Ég setti því Mich- ael á fóninn þegar ég skrifaði þessa grein, en skipti þó fljótlega um og setti lagið Cuba á. Hrafn brosir ef- laust núna og kannast vel við þann dans. Sá dans var gjarnan stiginn í gamla daga þegar gamli vinahópur- inn hittist. Með þessum annars fá- tæklegu minningum um góðan dreng vil ég segja að ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að kynn- ast honum. Og ég vona að honum líði vel núna. Hann má vera stoltur af því sem hann náði að gera á sínum stutta líftíma. Vil ég biðja góðan guð að styrkja fjölskyldu hans og börnin hans. Þau mega vera stolt af því að hafa átt hann sem föður og son. Hvíl þú í friði, kæri vinur. Linda Katrín Urbancic

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.