Morgunblaðið - 08.02.2010, Page 13
Daglegt líf 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2010
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Að eiga svona hjól og ferðastá því er ákveðinn lífsstíll.Þessu sportifylgir svo mikið frelsi,
útivera og góður félagsskapur,“ segja
þeir Guðmundur Björnsson læknir
og Axel Eiríksson úrsmíðameistari,
en þeir eiga báðir glæsta mótorfáka
af BMW-gerð. Þeir eru félagar í
BMW-hjólaklúbbi Íslands og ætla
ásamt nokkrum félögum sínum úr
þeim klúbbi að leggja upp í hjólaferð
í Skotlandi í vor.
„Það er mikil tilhlökkun í hópnum
enda gengur ferðin undir nafninu
„Unstoppable“ eða óstöðvandi. Við
erum rúmlega tuttugu manns sem
leggjum upp í þessa ferð í lok apríl.
Flestir senda hjólin sín í gámum til
Bretlands með Samskipum en ein-
hverjir ætla að leigja sér hjól úti.
Við fljúgum til London en þaðan
tökum við rútu til Grimsby og skoð-
um eitthvað af flottum stöðum í leið-
inni. Síðan hjólum við í tíu daga um
Skotland og munum leggja 2.500
kílómetra að baki, sem jafngildir því
að fara tvisvar sinnum kringum Ís-
land. Við hjólum öll af stað saman en
svo skiptum við okkur í smærri hópa
því það ætla ekki allir að gera það
sama. Fólk verður að hafa sitt frelsi
til að fara og sjá það sem það hefur
áhuga á. Við leggjum áherslu á að all-
ir séu sjálfstæðir í svona hjólaferð.
En við ætlum að hittast þrisvar sinn-
um allur hópurinn.“
Meiri hluti ferðalanganna er karl-
ar en þó munu fjórar konur slást í
för. Þær verða farþegar aftan á hjá
körlum sínum og kallast því hnakka-
skraut.
Kynnum Ísland í leiðinni
Til stendur að hjóla um norð-
ursvæði Skotlands og meðal annars
ætlar hópurinn að sigla út í eyjarnar
Harris og Lewis og hjóla þar. „Við
verðum á þannig vegum að hámarks-
hraði verður í lægra lagi sem er gott
því þá njótum við náttúrunnar betur.
Við hjólum um skosku hálöndin,
skoðum kastala, gamla bæi og fleira
áhugavert. Og það má vel vera að við
leyfum okkur að smakka alvöru
skoskt maltviskí,“ segja þeir félagar
og líta sposkir hvor á annan.
Svona hjólaferð í útlandinu má
nýta til margs og meðal annars ætla
sumir að nota tækifærið og fá að
stinga hjólum sínum í samband við
bilunargreingatölvu, en slík tölva er
ekki til hér á landi.
„Við ætlum líka að kynna ferðalag-
ið okkar vel og landið okkar Ísland
sem hagkvæman kost fyrir hjóla-
ferðalög, en mikill fjöldi BMW-hjóla
kemur með Norrænu til Íslands ár-
lega, þar sem útlendingar ferðast á
þeim um landið okkar. Við verðum í
viðtali hjá Grimsby Telegraph í byrj-
un ferðar og einnig verðum við í
myndatöku hjá Evning News í Ed-
inborg og í Glasgow Daily Times. Við
erum búnir að selja auglýsingar á
töskurnar okkar, svo við verðum
hjólandi auglýsingar fyrir Samskip,
Bluemountain.is og Icelandair, sem
eru styrktaraðilar okkar.“
Kraftmikil flaggskip
Flest hjólin í ferðinni eru svokölluð
GS-hjól, en þau eru gerð til þess að
aka bæði á malbiki sem og utanvegar
á malarvegum. Þessi flaggskip eru
þung og kraftmikil hjól sem fara upp
í 100 kílómetra hraða á þremur sek-
úndum. Og þau er hægt að keyra á
yfir 200 km hraða á klukkustund.
„En það er sjaldnast sem við leyfum
okkur að aka á slíkum hraða. Það er
eitthvað sem maður prófar, en ekki
sá hraði sem við hjólum á almennt.
Hjólið er um 200 kíló og enginn vill
detta og verða undir því. Við höfum
vissulega dottið, rifbrotnað og putta-
brotnað.“
Litlir kóngar elskir að vélum
Guðmundur á tvö hjól, eitt á Ís-
landi og annað úti í Bandaríkjunum,
en hann hefur átt mótorhjól frá því
hann var 13 ára og játar fúslega að
hann sé með hjólabakteríuna.
Mótorhjóladellan virðist vera þó
nokkuð karllæg því flestir félagar hér
á landi í BMW-klúbbnum eru karl-
kyns. „Ætli það sé ekki alveg óhætt
að játa að flestir þeirra sem eigi
svona hjól séu litlir kóngar,“ segja
þeir Guðmundur og Axel og bæta við
að menn sem eigi svona hjól séu
vissulega elskir að vélum. „Þetta eru
vel smíðaðir hlutir og fallega gerðir.
Svo er það líka ánægjan að vera með
tæki og tól sem fylgja þessu, eins og
til dæmis GPS-staðsetningartækin
en þau auðvelda okkur að rata á rétta
blettinn í útlandinu til að hitta hina í
hópnum.“
Dverggeiturnar trufluðu
Fyrsta GS-BMW-hjólið kom fyrir
sjö árum hingað til lands en núna eru
þau orðin um eitt hundrað. Þetta eru
vönduð og tæknilega mjög fullkomin
hjól og þau fara vel með knapann
sem situr þau.
„Einmitt þess vegna eru þetta vin-
sælustu hjólin í heimreisum og
safaríferðum,“ segir Guðmundur
sem hefur hjólað mikið bæði í Evrópu
og Bandaríkjunum. Hluti af klúbb-
félögunum fór til Þýskalands fyrir
tveimur árum og þá voru þeir að læra
að hjóla í torfærum.
„Þá þurftum við að standa á hjól-
unum og vorum í raun að dansa við
hjólið, það var mjög skemmtilegt. Við
hjóluðum yfir hóla og hæðir, í fjár-
götum og í sandi og vissulega duttum
við stundum af baki, en það er partur
af þessu. Axel datt til dæmis af því
hann var að horfa á dverggeitur.
Maður má ekki gleyma sér,“ segir
Guðmundur og hlær.
„Við fórum í sumar í nokkrar ferð-
ir hérlendis, ýmist dagsferðir eða
lengri ferðir. Meðal annars fórum við
á Vestfirði, hringveginn og í Jökul-
heima við Vatnajökul og í kringum
Þórisvatn. Það var heilmikil svaðilför
og auðvitað er mest gaman þegar
eitthvað óvænt kemur upp á, þá verð-
ur þetta ævintýr. En við leggjum
mikið upp úr því að fara ekki útfyrir
slóða, við höfum engan áhuga á því að
skemma landið.“
Flakkað
um á mót-
orfákum
Morgunblaðið/Ómar
Svalir Þeir Guðmundur og Axel eru veikir fyrir hjólum og taka sig vel út í vetrarsólinni í fjörunni við Álftanes.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilbúnir í slaginn Þrír af ferðalöngunum sem ætla til Skotlands í vor. F.v Guðmundur Ragnarsson, Gunnar Jónsson
og Logi Guðjónsson.
Um tuttugu manna hóp-
ur ætlar að fara með
fimmtán mótorfáka til
Skotlands í vor og hjóla
þar um í tíu daga.
www.bmwhjol.is
• Heildverslun með neytendavörur og góða markaðshlutdeild. Velta 200 mkr.
EBITDA 30 mkr.
• Hluthafi óskast að rótgrónu framleiðslu- og innflutningsfyrirtæki með eigin
verslanir. EBITDA 40 mkr. Litlar skuldir.
• Rótgróið bakarí með góðan hagnað.
• Heildverslun með fatnað og vefnaðarvörur. Ársvelta 100 mkr.
• Innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir heimili. Ársvelta 70 mkr.
• Lítil heildverslun með snyrtivörur.
• Heildverslun með neytendavörur. Ársvelta 250 mkr.
• Þekkt iðnfyrirtæki sem selur að stórum hluta beint til almennings. Ársvelta 350
mkr.
• Rótgróið byggingafyrirtæki í Noregi sem sérhæfir sig í viðhaldi og endurnýjun.
Ársvelta 24 millj. EUR. EBITDA 2,8 millj. EUR.
• Innflutnings- og þjónustufyrirtæki. Ársvelta 220 mkr.
• Rótgróið útgáfafyrirtæki tengt ferðaþjónustu. EBITDA 5 mkr.
• MOTORS. Tískuverslun á Laugavegi með sterk vörumerki í einkasölu og
sérvörur fyrir mótorhjólafólk. Gæti hentað vel til sameiningar.
• Rótgróið iðnfyrirtæki með bygginga- og viðhaldsvörur. Ársvelta 90 mkr.
• Lítið innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með álprófíla og plexigler. Ársvelta 50
mkr.
• Lítið framleiðslufyrirtæki með örugga viðskiptavini. Tvö stöðugildi. Ársvelta 55
mkr. EBITDA 15 mkr.