Morgunblaðið - 12.02.2010, Síða 1

Morgunblaðið - 12.02.2010, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 2. F E B R Ú A R 2 0 1 0 STOFNAÐ 1913 35. tölublað 98. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is DAGLEGT LÍF VINSÆLAR TÁNINGSMÆÐUR, VILTU ÞAÐ MEÐ RAMSES? «MENNINGFÓLK Einlægni lykill að góðu stefnumóti 6 Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is HOLLENSKI seðlabankinn lagðist gegn því að Kaupþing opnaði útibú fyrir sparireikning sinn Kaupthing Edge í Hollandi sumarið 2008 vegna áhyggna af ótraustri stöðu íslensks efnahagslífs, skömmu eftir að Lands- bankinn opnaði Icesave-reikninginn í Hollandi í maí sama ár. Um líkt leyti lýstu seðlabankar Ítalíu og Spánar yfir sambærilegum áhyggjum þegar Kaupþing hafði þar uppi sömu áform, sem svo runnu út í sandinn við hrun bankans. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins kom það skýrt fram á fund- um Kaupþings með Seðlabanka Hol- lands að ekki kæmi til greina að opna útibú Kaupthing Edge í Hollandi þar sem íslenski innistæðutrygginga- sjóðurinn ábyrgðist tryggingar. Ís- land væri ekki talið standa undir því. Jafnframt kom fram á þessum fundum að Seðlabanki Hollands ætti í viðræðum við Landsbankann þar sem lýst hefði verið sömu áhyggjum. Nokkur útibú í startholunum Þegar þarna var komið sögu var Kaupþing búið að ráða starfsfólk til starfa við útibúið í Hollandi, en bank- inn hafði einnig ráðið fólk til starfa við fyrirhuguð útibú á Ítalíu og Spáni. Kaupþing hvarf hins vegar frá áformum um stofnun útibús Kaup- thing Edge í Hollandi eftir að ljóst varð að seðlabanki landsins myndi ekki leggja blessun sína yfir það. Hafði bankinn þá íhugað að stofna dótturfélag í Hollandi þannig að útibúið nyti baktryggingar hollenska innistæðutryggingasjóðsins, ellegar að reka það í gegnum breska dóttur- félagið Singer & Friedlander þannig að innistæður yrðu tryggðar af breska tryggingasjóðnum. Komu í veg fyrir stofnun Kaupthing Edge í Hollandi » Hollenski seðlabankinn treysti ekki Íslandi » Kaupþing íhugaði stofnun dótturfélags » Bankinn hafði sömu áform á Spáni og Ítalíu Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is STÓRU íslensku bankarnir, Kaupþing, Landsbankinn og Glitnir, áttu umfangsmikil endurhverf viðskipti við Evr- ópska seðlabankann (ECB) fram á mitt sumar 2008. Alls sóttu bankarnir sér um fimm milljarða evra þangað, eða sem nemur 880 milljörðum króna á gengi dagsins í dag. Öll viðskiptin áttu sér stað í gegnum starfsstöð ECB í Lúxemborg, en ís- lensku bankarnir voru allir með útibú þar. Ná- kvæm skipting lánanna á hvern banka fyrir sig liggur ekki fyrir, en samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins sótti Glitnir sér 1,2 milljarða evra, um 211 milljarða króna, til ECB. Upphaflega stunduðu íslensku bankarnir hin „klassísku“ ástarbréfaviðskipti þar sem þeir lögðu bréf hver annars að veði gegn láni hjá ECB. Um mitt sumar 2008 gætti hins vegar aukinnar hörku hjá peningamálayfirvöldum í Evrópu gagnvart ís- lensku bönkunum, og þeim gert skylt að leggja fram önnur og sterkari veð. Við því urðu bank- arnir að einhverju leyti. Afleiðingar þess má með- al annars merkja á því að ECB í Lúxemborg er líklega með stærstu einstöku krónueigendum í heimi í dag, en bankinn á talsvert magn af skulda- bréfum útgefnum af Íbúðalánasjóði. Landsbank- inn lagði fram þau bréf sem veð gegn láni hjá ECB. Fjármálaráðuneytið, Seðlabanki Íslands og skilanefnd Landsbankans eiga nú í viðræðum um að kaupa bréfin til baka í skiptum fyrir evrur, en nokkuð hefur verið fjallað um þau viðskipti á síð- um Morgunblaðsins. ECB mun að öllum líkindum tapa talsverðu fé á viðskiptum sínum við bankana, líkt og Seðlabanki Íslands sem þurfti að færa 250 milljarða tap á rík- issjóð vegna endurhverfra viðskipta við íslenska banka. Í HNOTSKURN »Bankarnir fengu 880 millj-arða króna hjá ECB í Lúx- emborg. Mest fór til Kaup- þings og Landsbanka. »Bankarnir settu bréf hverannars að veði, þar til ECB herti kröfur. Samið er um kaup ríkisins á íslenskum bréfum sem voru lögð að veði. 880 milljarða fyrirgreiðsla hjá ECB ECB Jean Claude Trichet bankastjóri. Íslenskar álftir dvelja flestar á Bretlandseyjum yfir veturinn, en sumar hafa þó vetursetu hér á landi, þ.á m. þessar álftir á ísi lagðri Reykjavíkurtjörn. Álftir ganga á spegilsléttu vatni Morgunblaðið/Ómar  VESTIA ehf., dótturfyrirtæki Landsbankans, fer nú með allt hlutafé í Icelandic Group hf. í kjöl- far þess að bankinn hefur tekið yfir eignarhald á móðurfélagi þess, Eignarhaldsfélaginu IG ehf. Í kjöl- farið verður sú breyting á stjórn fyrirtækisins að stjórnarformað- urinn, Friðrik Jóhannsson, mun víkja sæti en í staðinn tekur Stein- þór Baldursson, framkvæmdastjóri Vestia, sæti í stjórn Icelandic. »14 Vestia fer nú með allt hlutafé í Icelandic Group  „ÞETTA ER sigur,“ segir Eg- ill Jóhannsson, forstjóri Brim- borgar hf. Sam- göngu- og sveit- arstjórnarráðu- neytið úrskurð- aði í gær að Reykjavíkurborg hefði brotið gegn jafnræðisreglu þegar Brimborg var neitað um að skila lóð sem fyrir- tækið hafði fengið á Esjumelum á Kjalarnesi. Fyrirtækinu var úthlutað lóðinni 2006 en það skilaði henni 9. október 2008, daginn eftir hrunið. Brim- borgarmenn töldu að lítið mál yrði að skila lóðinni, en borgarráð ákvað nokkru síðar að breyta reglum aft- urvirkt og kærði Brimborg þá ákvörðun í fyrra. „Við greiddum 113 milljónir króna í gatnagerðargjöld og að teknu tilliti til verðbóta og vaxta er upphæðin orðin enn hærri,“ segir Egill sem væntir þess að Reykjavíkurborg endurgreiði Brim- borg útlagðan kostnað. sbs@mbl.is Borgin braut á Brimborg í lóðamálinu á Esjumelum Egill Jóhannsson  BILL Clinton, fyrrverandi Bandaríkja- forseti, var í gærkvöldi flutt- ur á sjúkrahús í New York þar sem hann gekkst undir hjartaað- gerð. Að sögn fréttastofu ABC- sjónvarpsstöðvarinnar var Clinton með slæman verk fyrir brjósti. Ráð- gjafi Clintons sagði í viðtölum við fjölmiðla vestra að honum liði vel og hann myndi áfram sinna hjálp- arstörfum í kjölfar skjálftanna á Haítí, en hann er erindreki Samein- uðu þjóðanna þar. Clinton fór í hjartaagerð Bill Clinton

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.