Morgunblaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
STJÓRN og stjórnarandstaða hafa
komið sér saman um helstu áherslu-
atriði í nýjum samningaviðræðum við
Breta og Hollendinga um Icesave, ef
af nýjum viðræðum verður.
Af hálfu Íslendinga verður lögð
höfuðáhersla á að við þurfum ekki að
taka lán fyrir þeim kostnaði sem
Bretar og Hollendingar hafa lagt út
vegna tapaðra innistæðna á Icesave-
reikningunum, heldur verði reynt að
láta þrotabú Landsbankans duga.
Þessi breyting hefði í för með sér
að ríkissjóður Íslands þyrfti ekki að
greiða neina vexti vegna Icesave. Að
sögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar, formanns Framsóknarflokks-
ins, er ljóst að þetta myndi spara að
minnsta kosti 300 milljarða. Jón Daní-
elsson, prófessor við London School
of Economics, telur að vaxtakostnað-
ur ríkissjóðs af fyrri Icesave-samn-
ingnum hefði numið 387 milljörðum.
Þessi hugmynd er þó m.a. þeim
vandkvæðum háð að það er ekki alfar-
ið undir Íslendingum, Bretum og Hol-
lendingum komið hvernig farið er
með þrotabú Landsbankans, heldur
ákveður slitastjórn það að teknu tilliti
til allra kröfuhafa.
Meginkröfur Breta og Hollendinga
eru annars vegar þær, að þeir fái til
baka 20 þúsund evrur fyrir hvern
reikning, en það er lágmarksinni-
stæðutrygging á Evrópska efnahags-
svæðinu, og hins vegar þær að sátt
hafi náðst hér á landi.
„Ég tel að við séum búin að stilla
saman strengi varðandi veganesti inn
í nýtt viðræðuferli ef það kemst af
stað,“ segir Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra. Ekki sé hægt að
segja til um hvort farið verði í form-
legar viðræður í næstu viku.
Sigmundur Davíð segir næstu skref
í málinu vera að hitta aftur þá sér-
fræðinga sem stjórnvöld hafa fengið
til liðs við sig. Í samvinnu við þá verði
unnið að tæknilegum útfærslum og
drögum að samningsmarkmiðum Ís-
lands. Enn sé töluvert langt í land áð-
ur en slík drög liggi fyrir.
Sparar yfir 300 milljarða
Samkomulag um að engin lán verði tekin vegna Icesave, en þrotabú Landsbank-
ans gangi upp í kostnaðinn Búin að stilla saman strengi, segir fjármálaráðherra
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Steingrímur J.
Sigfússon
GRASAGARÐURINN í Laugardalnum í Reykja-
vík er lifandi safn undir berum himni og paradís
göngumannsins og besta vinar hans, hundsins.
Grasagarðurinn var stofnaður árið 1961 og hlut-
verk hans er að varðveita plöntutegundir og efla
skilning manna á mikilvægi gróðurs. Í garðinum
eru varðveittar um 5.000 tegundir plantna sem
gefa hugmynd um fjölbreytni gróðurs í tempr-
aða beltinu nyrðra.
VINIR Á GÖNGU UM GRASAGARÐINN
Morgunblaðið/Ómar
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær karlmann í tveggja ára
fangelsi fyrir margvísleg hegningarlaga- og barnavernd-
arlagabrot gegn þremur ungum börnum sínum, sem hon-
um hafði verið treyst fyrir. Brotin voru framin á sameig-
inlegu heimili þeirra á tæplega þriggja ára tímabili. Í
dómi Hæstiréttar segir að málið sé án fordæmis og að
maðurinn eigi sér engar málsbætur.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt manninn í
18 mánaða fangelsi, en Hæstiréttur þyngdi dóminn í tvö
ár. Þá var staðfest að maðurinn skyldi greiða börnunum
bætur – einu 1,2 milljónir kr. og hinum tveimur 600.000
kr. hvoru. Uppeldisaðstæður barnanna, áður en til vist-
unar á fósturheimili kom, hafa haft alvarlegar afleiðingar
á andlega líðan þeirra.
Kastaði hnífum að syni sínum
Málið kom upp í byrjun árs 2008 og eftir könnun
barnaverndaryfirvalda var því skotið til lögreglu. Mað-
urinn neitaði staðfastlega sök en börnin, sem eru fædd á
árunum 1993, 1995 og 1999, báru öll vitni gegn honum.
Var maðurinn m.a. ákærður fyrir að hafa kastað hníf-
um að syni sínum og valdið honum með því sári og hótað
drengnum með eftirlíkingu af skammbyssu sem hann
hélt að væri hlaðin byssa.
Lokaði dóttur sína úti á náttfötum í vetrarkulda
Maðurinn var og ákærður fyrir að hafa handjárnað
eldri dóttur sína við ofn og handleikið síðan hníf fyrir
framan hana og fyrir að hafa í nokkur skipti slegið hana í
andlitið. Einnig var hann ákærður fyrir að hafa í nokkur
skipti slegið yngri dóttur sína í andlitið og klipið fast í
kinnar hennar. Þá var hann ákærður fyrir að hafa hrint
stúlkunni fullklæddri ofan í baðkar sem var fullt af köldu
vatni og haldið henni þar stutta stund. Þá lokaði hann
stúlkuna úti í skamman tíma að vetri til, er kalt var í
veðri, og barnið á náttfötunum einum fata.
Þá var maðurinn ákærður fyrir að hafa drepið heim-
ilisköttinn að tveimur barna sinna ásjáandi og fyrir að
vekja þau drukkinn í nokkur skipti til að láta þau vinna
ýmis húsverk. annaei@mbl.is
Tveggja ára fangelsi fyrir
brot gegn börnum sínum
Mál sem er án fordæmis að mati Hæstaréttar Hand-
járnaði dóttur sína og hótaði syninum með eftirlíkingu byssu
DRÖGIN að
samningum við
Breta og Hol-
lendinga frá því í
desember 2008
eru að mati Ingi-
bjargar Sólrúnar
Gísladóttur, fyrr-
verandi formanns
Samfylkingar-
innar, merking-
arlaust plagg.
„Þetta hefur enga þýðingu og er eitt
af mörgum plöggum sem framleidd
voru af Hollendingum og send til
okkar,“ segir Ingibjörg.
Drögin hafi aldrei komið á hinn
pólitíska vettvang. „Þetta kom ekki
inn á mitt borð og ábyggilega ekki
heldur til annarra ráðherra.“
Spurningar vakni þó um það hvort
einhver fleiri gögn hafi ekki verið
lögð fyrir þingið. „Þegar menn segj-
ast hafa lagt fram öll gögn málsins þá
eiga þeir að hafa lagt fram öll gögn.
Því hlýtur sú spurning að vakna af
hverju þetta var ekki kynnt þinginu
fyrr og hvernig sé með annað tengt
samningaferlinu.“ annaei@mbl.is
Drögin eru
merkingar-
laust plagg
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Spyr hvort öll gögn
tengd samningaferl-
inu séu komin fram
„Það er mjög dapurlegt að
menn skuli núna enn eina ferð-
ina vera tilbúnir að tjalda til
hverju sem er til að verja eigin
stöðu, jafnvel þótt það geti
valdið stórkostlegum skaða í
viðræðunum,“ segir Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson um grein
sem Indriði Þorláksson, aðstoð-
armaður fjármálaráðherra,
skrifar í Fréttablaðið og birtingu
fjármálaráðuneytisins á drög-
um að samningum við Breta og
Hollendinga frá því í desember
2008.
„Það er með ólíkindum að
komið sé fram með þessum
hætti. Og ekki í fyrsta skipti.
Oft áður hefur á viðkvæmum
tímapunktum komið eitthvað
frá forystumönnum ríkisstjórn-
arinnar sem er skaðlegt hags-
munum Íslands,“ segir hann.
Dapurleg hegðun