Morgunblaðið - 12.02.2010, Side 10

Morgunblaðið - 12.02.2010, Side 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010 Arion banki er ekki búinn aðbíta úr nálinni með ósvífna ákvörðun til að hygla stærstu skuldurum Íslandssögunnar     Páll Vilhjálmsson blaðamaðurskrifar í gær: „Fréttir af fjár- málahryðjuverkum Baugsfeðga halda áfram að leka út. Þeim Jóni Ásgeiri og Jóhannesi Jónssyni leiðst að taka snúning ofan á snúning meðan útrásargalskap- urinn stóð sem hæst. Ætla mætti að eftir hrun, þegar fáheyrð ósvífni þessara manna stendur afhjúpuð, myndu ábyrgir aðilar sameinast um að úthýsa feðgunum úr íslensku viðskiptalífi. En því er ekki að heilsa og Baugsfeðgar njóta stuðnings á ólíklegustu stöðum.     Arion banki sem á milljarða úti-standandi hjá feðgunum lítur bersýnilega á það sem sérstakt hlutverk sitt að þeir fái áfram að stunda sína iðju. Amx vekur athygli á frétt í RÚV um að yfirveðsettur 400 fer- metra fjallakofi Jóhannesar Jóns- sonar í Eyjafirði verði mögulega yfirtekinn af Arion banka vegna þess að ekki er greitt af 370 millj- óna króna skuld sem hvílir á setr- inu. Hversdagsfólk kemst ekki upp með að borga ekki af húsnæði sínu en fá sérmeðferð með aðrar eigur sínar, líkt og Arion býður Baugsfeðgum hvað versl- unarveldið Haga áhrærir. Arion banki þarf að útskýra hvers vegna bankinn leggur slíka fæð á íslenska þjóð að Baugs- feðgar fái stuðning bankans til að stunda áfram fjármálahryðjuverk- in með alræmdum afleiðingum.“     Getur einhver bent á annanbanka í heiminum sem er sama um almenningsálit og traust? Undarlegur erindisrekstur Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 6 skýjað Lúxemborg -4 snjókoma Algarve 17 léttskýjað Bolungarvík 6 súld Brussel -2 skýjað Madríd 5 léttskýjað Akureyri 5 skýjað Dublin 6 léttskýjað Barcelona 7 léttskýjað Egilsstaðir 1 heiðskírt Glasgow 6 heiðskírt Mallorca 8 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 3 skýjað London 2 léttskýjað Róm 7 skýjað Nuuk -1 léttskýjað París -2 snjókoma Aþena 13 skýjað Þórshöfn 4 léttskýjað Amsterdam -1 skýjað Winnipeg -16 skýjað Ósló -10 þoka Hamborg -2 skýjað Montreal -5 léttskýjað Kaupmannahöfn -2 heiðskírt Berlín -2 snjókoma New York 0 heiðskírt Stokkhólmur -8 heiðskírt Vín -2 snjókoma Chicago -7 léttskýjað Helsinki -9 skýjað Moskva -12 léttskýjað Orlando 6 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 12. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5.51 3,7 12.06 0,8 18.06 3,4 9:33 17:52 ÍSAFJÖRÐUR 1.36 0,6 7.47 2,0 14.10 0,5 19.57 1,8 9:50 17:45 SIGLUFJÖRÐUR 3.36 0,5 9.50 1,3 16.15 0,3 22.35 1,1 9:33 17:28 DJÚPIVOGUR 3.10 1,8 9.16 0,5 15.08 1,6 21.16 0,3 9:06 17:18 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á laugardag Suðvestan 8-13 m/s og rigning með köflum eða skúrir, en hæg- ara og úrkomulítið A-lands. Hiti breytist lítið. Á sunnudag Hæg vestlæg átt og smá skúrir eða él. Gengur í allhvassa norð- anátt um kvöldið með snjó- komu N-lands, en léttir til syðra og kólnar ört í veðri. Á mánudag og þriðjudag Ákveðin norðanátt með éljum eða snjókomu N- og A-lands og talsverðu frosti um land allt. Á miðvikudag og fimmtudag Minnandi N-átt og léttir víða til, en áfram frost um land allt. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg átt og stöku skúr- ir, en gengur í suðaustan 8-13 m/s með rigningu S- og V- lands í kvöld. Hiti 2 til 7 stig, en sums staðar vægt frost í inn- sveitum NA-lands. AÐ MISSA eiginkonu úr krabbameini – áhrifa- þættir kvíða og þunglyndis hjá ekklum eftir missi er heiti rannsóknar sem Arna Hauksdóttir gerði meðal sænskra ekkla og kynnt verður nk. mánu- dag. Aðalhluti rannsóknarinnar tók til 907 manna í Svíþjóð sem misst höfðu eiginkonu úr krabba- meini. Að auki var gögnum safnað frá 330 giftum mönnum til samanburðar. Í ljós kom að þeir ekklar sem enn voru ein- hleypir 4-5 árum eftir missinn áttu frekar á hættu að þurfa að kljást við sálræna og líkamlega erf- iðleika en ekklar sem voru komnir í nýtt ástarsam- band á sama tíma. Mesta áhættan mældist fyrir þunglyndi, tilfinningadoða og að vakna upp á næt- urnar með kvíða. Ekklar sem komnir voru í nýtt ástarsamband voru ekki í frekari áhættuhópi en giftir menn. 86% ekklanna töldu að upplýsa ætti nánasta ættingja strax og ljóst væri orðið að krabbameinið yrði ekki læknað. 80% þeirra hafði verið sagt að krabbamein eiginkonu þeirra væri ólæknandi, þar af fjórðungi í vikunni fyrir andlátið. Markaðir voru nokkrir forspárþættir fyrir und- irbúning, sem mögulega má hafa áhrif á innan heilbrigðiskerfisins. Bætt umönnun manna sem eiga deyjandi eiginkonur vegna krabbameins myndi minnka áhættu ekkla á langvinnum heilsu- farsvandamálum. Í niðurstöðum Örnu segir m.a. að nota mætti rannsóknina í inngripsrannsókn sem hefði það að markmiði að hafa áhrif á undirbúning fyrir ást- vinamissi. Slíkt inngrip gæti haft lýðheilsuleg áhrif með því að minnka sálræn og líkamleg heilsuvandamál ekkla. Málstofan er mánudaginn 15. febrúar kl. 12:10- 12:50 í stofu 201, 2. hæð, Eirbergi, Eiríksgötu 34. Hætta á þunglyndi í kjölfar fráfalls  Ekklum sem eru einhleypir 4-5 árum eftir missi hættara við erfiðleikum NIÐURSTAÐA hefur náðst um þann ágreining sem ríkt hefur um fram- kvæmd forvals Vinstri grænna í Reykjavík milli stjórnar og efstu fram- bjóðenda, segir í yfirlýsingu frá VG í Reykjavík. En frambjóðendur fengu misvísandi upplýsingar um túlkun forvalsreglnanna frá kjörstjórn. Kjörstjórn hefur í framhaldinu ákveðið að víkja og segja af sér embætti, en við tekur ný uppstillingarnefnd. Til að tryggja gagnsæi og taka af allan vafa verða þau atkvæði sem greidd voru bréflega endurtalin að við- stöddum umboðsmönnum frambjóðenda og fulltrúum stjórnar VG. Tölurnar verða birtar sérstaklega á www.vg.is. Kjörstjórn VG víkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.