Morgunblaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Vestia
ehf., dótturfyrirtæki Landsbankans,
fer nú með allt hlutafé í Icelandic
Group hf. í kjölfar þess að bankinn
hefur tekið yfir eignarhald á móð-
urfélagi þess, Eignarhaldsfélaginu
IG ehf. Í kjölfarið verður sú breyt-
ing á stjórn fyrirtækisins að stjórn-
arformaðurinn, Friðrik Jóhannsson,
mun víkja sæti en í staðinn mun
Steinþór Baldursson, framkvæmda-
stjóri Vestia, taka sæti í stjórn Ice-
landic.
Steinþór segir ákvörðun um tíma-
setningu og fyrirkomulag sölu fyr-
irtækisins ekki verða tekna fyrr en
við lok þriðja ársfjórðungs á þessu
ári. „Næstu mánuði mun Vestia
styðja við stjórnendur þess svo
hægt sé að fullnýta tækifæri í
rekstrinum og hámarka verðmæti
hlutafjár þess. Vestia mun, þegar
aðstæður skapast, bjóða Icelandic
Group til sölu í opnu ferli eða skrá
hlutabréf félagsins á skipulegan
verðbréfamarkað í því skyni að
tryggja jafnræði fjárfesta,“ segir
Steinþór.
Í tilkynningu frá Vestia segir að
tilfærsla eignarhaldsins sé unnin í
góðu samráði og samstarfi við fyrri
eigendur félagsins. Hún muni ekki
hafa nein áhrif á stefnu eða dag-
legan rekstur Icelandic Group held-
ur styðja við yfirstjórn fyrirtækisins
og renna frekari stoðum undir þau
verðmæti sem í rekstri félagsins fel-
ast.
Skuldir greiddar niður
Eignarhaldsfélagið IG var stofnað
í október 2008 til að fara með eign-
arhald á Icelandic Group. Lands-
bankinn vildi á þessum tíma ekki
taka þá áhættu að færa félagið inn í
eignasafn sitt, enda höfðu eigur
bankans erlendis verið frystar að til-
skipan breska fjármálaráðuneytis-
ins. Bankinn lánaði þannig IG ehf.,
sem var í eigu útgerðarfélaganna
Hraðfrystihússins Gunnvarar og
Brims, 160 milljónir evra, eða sem
nemur 29 milljörðum króna á nú-
virði, til að setja inn í Icelandic Gro-
up til að skuldastaða félagsins liti
betur út í augum erlendra kröfuhafa
þess. En fjármunirnir voru notaðir
til að greiða niður skuldir Icelandic
Group.
Vegna þessa gjörnings var kleift
að halda áfram rekstri Icelandic
Group, en bæði Gunnvör og Brim
eru stórir birgjar félagsins. Láninu
sem veitt var IG ehf. verður nú
breytt í hlutafé, eins og áður sagði.
Icelandic Group
í hendur Vestia
Friðrik hættir sem stjórnarformaður og Steinþór tekur við
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vestia Landsbankinn hefur nú tekið yfir hlutafé í Icelandic Group og fært
til eignaumsýslufélagsins Vestia. Ákvörðun um sölu verður tekin á árinu.
FYRIRTÆKIÐ
A. Karlsson
hefur verið
lýst gjaldþrota.
Þorsteinn Ein-
arsson skipta-
stjóri segir að
reynt verði að
selja fyr-
irtækið sem
fyrst, í einu lagi eða í bútum.
Verslun fyrirtækisins er opin í
dag. 36 stöðugildi eru hjá fyr-
irtækinu.
A. Karlsson hefur verið rekið
með tapi undanfarin ár, en tapið
á árinu 2008 nam 477 milljónum
króna. Skuldir fyrirtækisins í árs-
lok 2008 námu tæplega 900 millj-
ónum, um helmingur skamm-
tímaskuldir. Stærsti kröfuhafinn
er Landsbanki Íslands.
Atorka seldi og lánaði
A. Karlsson er fyrirtæki sem sel-
ur vörur á sviði heilbrigðismála,
húsgögn og fleira. Atorka keypti
fyrirtækið árið 2004 og í fram-
haldi sameinaðist það fyrirtækinu
Besta hf. Í árslok 2007 seldi
Atorka hlut sinn í A. Karlssyni.
Kaupendur voru tveir, Hraun-
hólar ehf. sem keypti 51% og
Beta ehf. sem keypti 49% hlut.
Beta er alfarið í eigu Atorku, en
Hraunhólar eru í eigu Lindu B.
Gunnlaugsdóttur, forstjóra A.
Karlssonar. Atorka lánaði fyrir
kaupverðinu.
A. Karls-
son gjald-
þrota
Reynt verður að
selja sem fyrst
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
ÞEGAR kröfulýsingar Glitnis í
þrotabú fjárfestingafélagsins Fons
urðu opinberar veltu margir vöngum
yfir kröfum vegna samninga sem virt-
ust hafa verið gerðir rétt fyrir hrun
eða jafnvel eftir það.
Við fyrstu sýn virðist sem bankinn
hafi gert framvirka samninga við
Fons, sem var í eigu Pálma Haralds-
sonar og Jóhannesar Kristinssonar,
þann 8. október – degi eftir að Fjár-
málaeftirlitið setti skilanefnd yfir
bankann.
Fons greiddi inn á samning
Morgunblaðið hefur undir höndun-
um gögn sem sýna fram á að sumir
samninganna voru framlengdir allt að
því þrettán sinnum. Upphaflegi
samningurinn er því gerður allt að ári
áður en Fons verður gjaldþrota, en
krafan sem lýst er í þrotabúið byggist
á síðustu framlengingunni, en þá stof-
nast til nýs samnings.
Sem dæmi má nefna að einn samn-
inganna, sem var gerður vegna fram-
virkra viðskipta með hlutabréf í FL
Group, var upphaflega gerður í jan-
úar 2008. Síðasta framlenging er gerð
þann 30. september 2009, en þá greið-
ir Fons 1,9 milljarða inn á samning-
inn. Upphaflegt virði samningsins var
2,9 milljarðar, en lokakrafan bankans
á hendur Fons hljóðar upp á mismun-
inn auk vaxta, 1,3 milljarða. Það er sú
krafa sem Glitnir gerir í þrotabú fé-
lagsins.
Skiptastjóri Fons hefur hafnað öll-
um kröfum Glitnis í Fons vegna fram-
virkra samninga að svo stöddu.
Samningar framlengdir í hruninu
Þegar framvirkir samningar eru fram-
lengdir stofnast til nýrra samninga
Morgunblaðið/Frikki
Glitnir Framvirkir hlutabréfasamn-
ingar við Fons oft framlengdir.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
MARGT bendir til þess að sumar
svokallaðar forex-gjaldeyrisvið-
skiptasíður séu notaðar af eitur-
lyfjahringjum til að þvo illa fengið
fé. Bandaríska eiturlyfjaeftirlitið
(DEA) tók þátt í því þegar reikn-
ingar Finanzas Forex voru frystir
þar í landi.
Panamíska vefsíðan Panamoney-
.net, sem býður einstaklingum upp
á slík forex-viðskipti lofar gríðar-
legum ársvöxtum án áhættu. Nokk-
uð hefur verið um að Íslendingar
hafi fest fé sitt hjá síðunni, en einn-
ig tóku margir Íslendingar þátt í
vefsíðunum Finanzas Forex og
Vanfunds og töpuðu umtalsverðum
fjárhæðum þegar þeim síðum var
lokað. Þær síður voru einnig stað-
settar í Panama.
Gríðarháir vextir
Ómar Þór Ómarsson, sérfræðing-
ur hjá Fjármálaeftirlitinu, segir
fólk eiga að varast vefsíður sem lofi
umtalsvert meiri ávöxtun en gerist
og gengur á markaði, einkum ef
síðurnar taki fram að engin áhætta
sé af viðskiptunum. „Ef eitthvað
hljómar of gott til að vera satt er
ástæða til að fara varlega,“ segir
hann.
Á vefsíðu Panamoney segir að
ávöxtun á dag geti orðið allt að 2,8
prósent. Fyrirtækið er með öðrum
orðum að lofa hátt í 1.500 prósent
ársávöxtun. Þar er einnig tekið
fram að ef ávöxtun á tilteknum degi
er neikvæð, er ekki dregið af við-
skiptareikningi viðkomandi. Áhætt-
an á því með öðrum orðum að vera
engin – bara gróði, ekkert tap.
Þá er annað hættumerki fólgið í
verðlaunum, sem viðskiptavinir fá
ef þeir beina vinum og vandamönn-
um í viðskipti við síðuna. Slík verð-
laun benda sterklega til þess að um
svokallaða Ponzi-svikamyllu sé að
ræða.
Svikamyllur notaðar við peningaþvætti
Flest bendir til þess að Panamoney.net
sé nýjasta panamíska svikasíðan
Svik Algengt er að svikamyllur á sviði gjaldeyrisviðskipta séu með höf-
uðstöðvar í Panama, enda þarf engin leyfi til að stunda slík viðskipti þar.
● ALÞJÓÐLEGA leikjafyrirtækið Activi-
sion-Blizzard, sem m.a. gefur út leikina
World of Warcraft, Call of Duty of Guit-
ar Hero, skilaði 113 milljóna dollara
hagnaði í fyrra. Jafnast það á við um
14,5 milljarða króna.
Velta á árinu nam 4,3 milljörðum
dala, sem er töluverð aukning frá árinu
2008 þegar veltan nam þremur millj-
örðum dala og fyrirtækið var rekið með
107 milljóna dala tapi.
Útgáfa nýjasta Call of Duty-leiksins,
Modern Warfare 2, skipti miklu fyrir fyr-
irtækið, en hann sló öll sölumet í geir-
anum.
Blizzard græðir
● NASDAQ OMX Iceland hf. hefur
samþykkt að H.F. Verðbréf verði við-
urkenndur ráðgjafi (e. Certified Advi-
ser, CA) á First North Iceland. Hlut-
verk viðurkennds ráðgjafa felst í því
að vera til ráðgjafar og aðstoðar fyr-
irtækjum við skráningu á First North
og á meðan bréf þeirra eru í við-
skiptum á markaðnum. Þórður Frið-
jónsson, forstjóri NASDAQ OMX Ice-
land, segist bjóða H.F. Verðbréf
velkomin til starfa. „Það er mikilvægt
að fyrirtæki í vexti sem hyggja á
skráningu á First North-markaðinn
geti leitað eftir faglegri ráðgjöf og að-
stoð sérfróðra aðila á borð við H.F.
Verðbréfa. Það hjálpar til við að
byggja upp hlutabréfamarkaðinn.“
H.F. Verðbréf ráðgjafi á
First North Iceland
● HILMAR Veigar
Pétursson, forstjóri
CCP, er nýr for-
maður Samtaka
upplýsingatækni-
fyrirtækja (SUT)
og tekur við af Þór-
ólfi Árnasyni.
Samtök upplýs-
ingatæknifyrir-
tækja eru starf-
rækt undir Sam-
tökum iðnaðarins, en innan SUT eru
fimmtíu fyrirtæki í upplýsingatækniiðn-
aði, með á annað þúsund starfs-
mönnum. Hilmar var áður varafor-
maður SUT, en við því embætti tekur
Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri
Trackwell, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Samtökum iðnað-
arins.
Nýr forstjóri SUT
Hilmar Veigar
Pétursson
● ARION banki lækkaði yfirdrátt-
arvexti frá og með deginum í gær, um 1
prósentustig og kjörvexti óverð-
tryggðra skuldabréfa um 0,5 prósentu-
stig. „Kjörvextir eftir breytingu eru
9,25%. Vextir óverðtryggðra innlána
lækka minna eða um 0,4 til 0,5 pró-
sentustig. Vaxtabreytingin er til komin
vegna lækkunar stýrivaxta Seðlabank-
ans í lok janúar,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Arion banka.
Arion lækkar vexti
Stuttar fréttir …