Morgunblaðið - 12.02.2010, Page 17

Morgunblaðið - 12.02.2010, Page 17
Daglegt líf 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010 www.noatun.is GRÍSALUNDIR MEÐ SÆLKERA- FYLLINGU KR./KG 1799 Ö ll ve rð er u bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill u og /e ða m yn da br en gl BOLLURNAR GOTT Í FP SULTUR OG MARMELAÐI 4 TEGUNDIR 239KR./STK. GALLO RISOTTO 2 TEGUNDIR 598KR./PK. KELLOGG’S CORN FLAKES 500 G 549KR./PK. ALLRA HVEITI, 2 KG 199 KR./PK. BBESTIR Í KJÖTI ÚRKJÖTBOR ÐI ÚR KJÖTBORÐI ÓDÝRT Við gerum meira fyrir þig 40% afsláttur 2998 DÖNSK HERRA- GARÐSÖND, 2,6 KG KR./STK.1999 3998 50% afsláttur „Ég hef safnað að mér græjum í gegnum árin því ég komst að því að þegar ég þurfti að treysta á aðra til að taka upp þá gerðist ekki neitt. Maður var búinn að búa til helling af lögum en komst aldrei í stúdíó,“ segir rapparinn Guðjón Örn Ingólfsson, sem kall- ar sig Ramses þegar kemur að tónlistinni. Guðjón treystir á einstaklings- framtakið og er núna í þann mund að fara að gefa út sína þriðju plötu á netinu með frumsaminni hipp- hopptónlist. Guðjón tekur allt efn- ið upp sjálfur í stúdíói sem hann og félagi hans hafa komið sér upp í skúr. Hann mælir tvímælalaust með því að áhugasamir tónlist- armenn geri slíkt hið sama og taki málin í eigin hendur til að koma sér á framfæri. Útgáfupartí á Prikinu „Við erum tveir félagar með þetta. Þetta kostar sitt en það borgar sig, það er líka dýrt að fara aðrar leiðir, fá upptökustjóra og láta mastera þetta. Af hverju ekki bara að læra þetta sjálfur fyrst þetta er áhugamálið, ef menn treysta sér til þess?“ Það gerði Guðjón, sem hefur verið að fikta við hipphoppið frá árinu 2000 og sent ýmislegt frá sér. Nýja platan, sem kemur út í næstu viku, heitir Viltu það og verður fáanleg ókeypis á netinu. Tónlistin er öll eftir Guðjón, undir nafni Ramses- ar, en sumir textarnir eru samdir með hjálp félaga hans auk þess sem nokkrir gestir koma fram í sumum lögum. Seinna á árinu gerir Guðjón svo ráð fyrir að gefa út aðra og veiga- meiri plötu sem seld verður í verslunum. Hann segir hipp- hoppið hins vegar vera hálfgerðan útlaga hjá íslenskum plötuútgáf- um og -sölum því það þyki ekki eins söluvænt og „sveitaballa- vælupoppið“. Í tilefni nýju plötunnar ætlar Guðjón að hafa útgáfupartí á Prikinu fimmtudaginn 18. febr- úar. „Þar verður dj-teymi og svo verða góðir gestir auk þess sem ég flyt einhver lög. Þetta verður gott partí og allir sem hafa aldur til velkomnir.“ una@mbl.is Viltu það með Ramses? Morgunblaðið/Árni Sæberg Ramses Guðjón hefur sankað að sér græjum. Hann mælir hiklaust með því að þeir, sem dreymir um að gera tónlist, taki málin í eigin hendur. www.myspace.com/ herraskitsama TIMBURMENN eru sjálf- skaparvíti sem flestir þekkja og allir hata. „Ég ætla aldrei að drekka aftur“ er loforð sem margir gefa sér í hádeginu á sunnu- degi eftir stíft skemmt- anahald. Metnaðarfullt, en þú veist að það mun senni- lega ekki ganga eftir. Hinsvegar er eitt og ann- að sem hægt er að gera bæði til að fyrirbyggja timb- urmenn og láta þá hverfa hraðar. Í grunninn er þetta ekkert flókið, aðalatriðin eru að borða nóg, drekka nóg og sofa nóg. Hér eru samt nokkur atriði sem hjálpa verulega til. Fyrirbyggjandi: – Ekki drekka áfengi (það er prinsippatriði að nefna þetta). – Ekki fara á djammið á fastandi maga. Góður kvöldmatur hægir á alkóhóláhrifunum. – Drekktu rólega, ekki sturta í þig. – Drekktu eitt glas af vatni á móti hverju glasi af áfengi eftir að þú byrjar að drekka. Ein af helstu ástæðum timburmanna er vökvaskortur í kerfinu, vatnið vinnur gegn því. – Fáðu þér eitthvað í gogginn áður en þú sofn- ar þegar þú kemur heim af djamminu. Það hjálp- ar litla lifrargreyinu að takast á við erfiði nætur- innar og gefu þér orku til að opna augun þegar þú vaknar. Eftir á: – Reyndu að ná góðum svefni. Þegar þú vakn- ar, láttu það verða þitt fyrsta verk að fá þér orkuríkan morgunmat. – Bananar eru góð þynnkufæða, þeir vinna gegn kalíumskorti sem eftir óteljandi klósett- ferðir vegna þvagræsandi áhrifa áfengis. – Ekki fá þér kaffi. Það vekur þig kannski tímabundið, en vinnur gegn þegar ofþornuðum líkama. – Ávextir og ávaxtasafi hafa reynst mörgum vel til að tempra vanlíðan. Að sigrast á timburmönnum Timbur Það má lappa upp á þetta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.