Morgunblaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 27
Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010 Sigsteins og Helgu, um að taka á móti varaforsetafrúnni og fylgdar- liði hennar sem þau að sjálfsögðu gerðu með sínum einstaka myndar- brag. Sigsteinn var hreppstjóri í Mos- fellshreppi frá árinu 1964 til ársins 1984. Hann var formaður sóknar- nefndar Lágafellssóknar 1973-78. Sigsteinn lét einnig að sér kveða í félagsstarfi. Hann var til að mynda einn af stofnendum Lionsklúbbs Kjalarnesþings árið 1965 og var með fyrstu félögunum í karlakórnum Stefni. Eiginkona Sigsteins, Helga, var fyrsta konan sem gegndi starfi odd- vita í hreppsnefndum á Íslandi og fyrsta konan sem kosin var í hrepps- nefnd. Fæðingardagur Helgu, 18. september, var nýverið gerður að árlegum jafnréttisdegi Mosfellsbæj- ar. Helga lést árið 1999. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast þeim hjónum persónu- lega. Mér er t.d. minnisstætt þegar ég flutti sem drengur með ömmu minni á Hulduhóla í Mosfellssveit að ekki leið nema um einn sólarhringur þar til Sigsteinn hreppstjóri bankaði upp á og bauð okkur velkomin með sínum höfðingsskap í sveitina. Ég sendi börnum Sigsteins og Helgu, Magnúsi og Kristínu, tengdabörnum, Mörtu og Grétari og fjölskyldunni allri mínar innilegustu samúðarkveðjur. Með Sigsteini Pálssyni er genginn mikill heiðurs- maður sem setti mikinn svip á sína sveit og bar hag hennar alla tíð fyrir brjósti. Haraldur Sverrisson, bæj- arstjóri Mosfellsbæjar. Mörgum sumrum á sjöunda tug síðustu aldar eyddi ég í skjóli þeirra Sigsteins Pálssonar og Helgu Magn- úsdóttur á Blikastöðum. Þetta voru árin sem maður var önnum kafinn við að skilja við æskuna, tileinka sér heim hinna fullorðnu og það er óhætt að segja að Blikastaðaheimilið hafi verið háskóli fyrir ungan mann í þeim erindagjörðum. Þarna kynntist maður ungum sem öldnum hvaðan- æva úr samfélaginu og líka frá öðr- um löndum, einkum Danmörku. En það var aldrei vafi hverjir voru við stjórnvölinn í þessum háskóla lífs- ins. Helga og Sigsteinn stýrðu þessu stóra heimili og vinnustað af næmni og röggsemi. Það sem einkenndi Sigstein Páls- son mest í mínum huga var það að fara vel með. Ég man það ætíð að það var ekkert sérstaklega spenn- andi að vera í þeim hópnum sem fylgdi síðasta heyvagni heim eftir langan dag. Maður sat oftast undir stýri á „Fergusyninum“ oftast í fyrsta gír í lága drifinu og Sigsteinn fylgdi gangandi með hrífuna sína í hönd og safnaði saman öllu heyi sem slæðst hafði á veginn yfir daginn. Sigsteinn var líka óþreytandi við að segja okkur sögur um efni sem gæti komið sér vel í lífinu. Sérstak- lega man ég eftir söguna um gömlu konuna sem hafði það fyrir sið að draga alltaf hrífuna á eftir sér á túninu í hvert skipti er farið var heim í mat og kaffi. Þessi kona sagði Sigsteinn, safnaði í svuntuna sína heyfóðri sem dugað hefði fyrir geml- ing í heilan vetur. Ein minning er mér afar minn- isstæð sem lýsir Sigsteini mjög vel. Það var einhverju sinni að mikið af heyi var flatt en tilbúið til hirðingar en veðurspáin slæm þannig að menn þurftu að hafa snör handtök til að bjarga heyjum í hús. Mitt hlutverk var að moka heyi á vagn og keyra á móti þeim sem sáu um að moka af heima í hlöðu. Það var kapp í fólki og metnaður minn var sá að vera sem fljótastur að moka á vagninn og komast sem lengst með vagninn á móti þeim sem mokuðu af. Í þessum hamagangi gætti ég ekki alltaf nægilega að því að ganga vel frá hverjum farmi þannig að ekki slæddist hey í flutningunum. Þegar dagur var að kveldi kominn og margir vagnar farið um slóðina og sá fyrir endann á að ná öllu heyi í hús birtist Sigsteinn á vegarslóðinni skammt fyrir vestan þurrkhjallinn með hrífuna sína og ekki var kalli skemmt. Undir niðri held ég þó að hann hafi verið feginn að tekist hafði að bjarga heyjum undan rigningu. En frá því er skemmst að segja að Sigsteinn tók sér stöðu fyrir framan dráttarvélina sem ég ók þannig að ég varð að stöðva. Hann las mér pistil um hvernig menn eiga að um- gangast hey og lét síðan hrífuna hvína yfir „húddið“ á vélinni með þeim afleiðingum að hrífan brotnaði. Ég man það eins og það hefði gerst í gær hvernig honum rann reiðinn þarna á vegarslóðinni. Þarna fékk hann útrás fyrir það að hafa þurft að horfa upp á það heilan dag hversu mikið hefði slæðst af heyi og svo held ég líka að hann hafi séð svolítið eftir hrífunni. Sigsteinn átti mikið, barst ekki á og var trúr því sem honum var treyst fyrir. Í stuttu máli þá var hann traustur heiðursmaður. Bless- uð sé minning Sigsteins Pálssonar. Jón Sigurðsson. Sigsteinn vinur minn og Lions- félagi er fallinn í valinn. Það er gæfa hvers manns að eignast tryggan vin. Við suma standa kynnin stutt og skilja lítið eftir, aðrir eru þannig að mann langar að lengja kynnin og efla. Sigsteinn var einn þeirra. Heið- arleiki og hreinskilni voru að mínu mati hans aðalsmerki. Með þessum orðum get ég sagt að Sigsteinn var mikill áhrifavaldur í mínu lífi. Hann var meðmælandi minn inn í Lions- hreyfinguna á Íslandi. Hann veitti mér sannarlega af örlæti hjartans og leiðbeindi eins og honum var ein- um lagið. Sigsteinn var glæsilegur fulltrúi Lions og sinnti flestum trúnaðar- störfum í klúbbi sínum. Hann vann þar fórnfúst starf og árangursríkt. Ég minnist söluferða okkar með rauða fjöður í Mosfellsbæ þar sem hann þekkti marga og kynnti mig fyrir þeim. Einnig fórum við í út- reiðartúra saman um Mosfellsbæ. Hann var einstakur félagi, til hans var gott að leita. Fyrir ungan mann var einstakt að fá að kynnast Sig- steini, eiga hann að sem vin og ráð- gjafa. Símtöl okkar, kaffifundir og umræður um sameiginleg áhugamál voru einstaklega gefandi. Ætíð kom maður fróðari frá fundum hans. Hann var oft dulur um eigin hagi, en mjög næmur á annarra aðstæður. Við gátum rætt málefni af hrein- skilni og skipst á skoðunum, sem var mér mjög gagnlegt. Við félagarnir í Lionsklúbbi Mos- fellsbæjar kveðjum Sigstein vin okkar með miklum söknuði. Lions- hreyfingin á Íslandi hefur misst einn sinn tryggasta og jafnframt elsta starfandi Lionsfélaga í heimi, 104 ára að aldri. Nú hefur hann fengið verðskuldaða hvíld. Ég votta fjöl- skyldu hans og vinum mína dýpstu samúð. Minning Sigsteins mun lifa með mér um alla tíð. Jón Bjarni Þorsteinsson. Sigsteinn Pálsson, bóndi frá Blikastöðum, er fallinn frá í hárri elli. Sigsteinn og Helga Magnús- dóttir, eiginkona hans, mörkuðu djúp spor í sögu okkar Mosfellinga. Bæði tóku þau virkan þátt í mótun samfélagsins með störfum sínum fyrir sveitarfélagið og félagsstörfum af ýmsum toga. Áhugi þeirra á vel- ferð og uppgangi Mosfellshrepps var afgerandi og einlægur. Allt frá barnæsku man ég vel eftir því hversu mikilvirk Sigsteinn og Helga voru í okkar fallegu sveit. Persónu- leg kynni mín af Sigsteini hófust ekki fyrr en hann var orðinn aldr- aður maður en þá var hann enn eld- hress og fullur lífsorku. Ég vitna oft til þessara kynna, enda eru þau mér sérstaklega minnisstæð. Það var tónlistaráhugi minn sem leiddi okk- ur saman. Fyrsta heimsóknin var ákveðin með nokkurra daga fyrir- vara og þau hjónin tóku á móti mér með glæsilegu kaffihlaðborði. Þess- um móttökum gleymi ég aldrei. Eft- ir að Sigsteinn hafði spurt mig ýt- arlega um líðan ættingja minna innti hann mig eftir erindinu. Ég tjáði honum að ég hefði um nokkurt skeið haft augastað á gamla fjósinu á Blikastöðum sem æfingahúsnæði fyrir hljómsveit sem ég lék með. Sigsteinn tók vel í erindið en bað mig að koma aftur á sinn fund nokkru síðar til að skoða aðstæður. Ekkert óðagot frekar en fyrri dag- inn hjá Blikastaðabóndanum. Þegar ég mætti öðru sinni tjáði bóndinn mér að hann væri ákveðinn í því að leigja hljómsveitinni aðstöðuna en hann gæti ekki afhent hana fyrr en eftir nokkrar vikur. Ég áttaði mig ekki á því hvað var því til fyrirstöðu að við gætum flutt inn strax en Sig- steinn sagðist hafa samband við mig þegar húsnæðið væri tilbúið. Allt stóð eins og stafur á bók. Hann boð- aði mig á sinn fund í fjósinu gamla nokkru síðar. Þegar ég mætti þang- að fullur eftirvæntingar gekk ég inn í þau glæsilegustu salarkynni sem nokkur hljómsveit getur ímyndað sér. Búið að steypa nýtt gólf, leggja nýtt rafmagn og hitalögn, nýir gluggar og gler. Okkur leið vel í Blikastaðafjósinu og þar sömdum við vinsælustu lögin okkar. Húsa- leiguna greiddum við ætíð á gjald- daga, það hvarflaði aldrei neitt ann- að að okkur. Hjá Sigsteini höfðum við fengið þá bestu kennslustund sem völ var á í nákvæmni manna á milli og í viðskiptum. Síðar starf- rækti Björgvin, bróðir minn, orgel- verkstæði í rúman áratug í fjósinu og smíðaði þar 22 pípuorgel sem hljóma nú í kirkjum vítt og breitt um landið. Ég kveð Sigstein á Blikastöðum með virðingu og þökk. Blessuð sé minning hans. Karl Tómasson. Kveðja frá Lionshreyfingunni Í dag kveðjum við Sigstein Páls- son, mikinn höfðingja og vin og einn af frumkvöðlum Lionshreyfingar- innar. Þó Sigsteinn væri orðinn há- aldraður og tilbúinn til að kveðja þennan heim, kom andlátsfréttin um hann á óvart. Hann var alltaf til staðar og maður reiknaði með Sig- steini um aldur og ævi. Sigsteinn var stofnfélagi í Lions- klúbbi Mosfellsbæjar og var hann virkur félagi í Lionshreyfingunni í tæp 45 ár. Starfið í Lions var Sig- steini mikilvægt, naut hann sam- vista við félagana og að leggja lið þeim sem minna mega sín. Sigsteinn var einn af máttarstólpunum í sinni sveit og einnig í Lions. Hann naut virðingar vegna þekkingar sinnar og reynslu og vegna sinna góðu eig- inleika. Hann var mikill leiðtogi, yf- irvegaður og fastur fyrir, höfðingi heim að sækja, glaðvær og hlýr. Það var hógværð og virðing, sem mér fannst einkenna hann öðru fremur. Sigsteinn var ekki bara elsti karl- maður á Íslandi, hann var einnig elsti Lionsfélagi í heimi. Þetta vakti athygli í höfuðstöðvum Lions í Bandaríkjunum, en þeir eru ekki margir Lionsfélagarnir, sem eru eldri en hreyfingin sjálf, sem stofn- uð var 1917. Alþjóðaforsetar Lions sem hafa heimsótt Ísland síðasta áratuginn, hafa sóst eftir að hitta Sigstein, til að sýna honum virðingu og veita viðurkenningar fyrir giftu- samlegt starf. Sigsteinn hefur tekið á móti þeim með virðuleika, hlýju og gleði. Hann hefur sýnt þeim myndir af þeim sem honum þótti vænst um, Helgu sinni, öllum afkomendunum og svo af Blikastöðum. Síðan hefur hann boðið upp á kaffi og konfekt, léttur og kátur og jafnan stutt í húmorinn. Ég hef látið þessa fyrr- verandi forseta vita, að elsti Lions- félagi í heimi sé nú látinn og hafa þeir beðið fyrir samúðarkveðjur til fjölskyldunnar og þakkir fyrir að hafa fengið að hitta þennan höfð- ingja. Er þessum kveðjum frá al- þjóðahreyfingunni hér komið til skila. Lionshreyfingin á Íslandi hefur misst einn af sínum tryggu og virtu félögum. Við erum stolt af því að hafa haft hann í okkar röðum. Við þökkum fyrir gott starf í Lions og mikilvægt framlag til samfélagsins. Börnum Sigsteins, þeim Kristínu og Magnúsi og þeirra fjölskyldum, sendum við innilegar samúðarkveðj- ur. Við minnumst Sigsteins í djúpri þökk og virðingu. Fyrir hönd Lionshreyfingarinnar á Íslandi, Guðrún Björt Yngvadóttir fjölumdæmisstjóri. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför bróður okkar, frænda og vinar, FINNBOGA GUNNARSSONAR, Suðurvíkurvegi 8, Vík. Guð blessi ykkur öll. Magnea, Símon og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, JARÞRÚÐAR GRÉTU JÓNSDÓTTUR, Varmalæk. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra Borgarnesi. Birna Jakobsdóttir, Halldór Bjarnason, Jón Jakobsson, Kristín Guðbrandsdóttir, Helga Jakobsdóttir, Hallgeir Pálmason, Sigurður Jakobsson, Heiðbjört Ósk Ásmundsdóttir, Magnea Jakobsdóttir, Ragnar Andrésson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og virðingu við fráfall ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS G. ÞÓRARINSSONAR fyrrv. söngkennara og orgelleikara, Skúlagötu 40, Reykjavík. sem lést á hjartadeild Landspítalans sunnudaginn 17. janúar. Helga Jónsdóttir, Sigrún Stella Jónsdóttir, Jón Þorvaldsson, Þórarinn Jónsson, Halla Sigurðardóttir, Magnús Þór Jónsson, Þórunn Þórisdóttir og fjölskyldur. ✝ Elskulegur frændi minn, SIGURJÓN ÓLAFSSON frá Hlaðhamri, Hrútafirði, lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 9. febrúar. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju Grafarholti föstu- daginn 19. febrúar kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Ólafur Hjálmarsson. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA EINARSDÓTTIR frá Leirulækjarseli, Arnarkletti 12, Borgarnesi, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 10. febrúar. Útförin verður gerð frá Borgarneskirkju laugar- daginn 20. febrúar kl. 14.00. Börn, tengdabörn, ömmu- og langömmubörn. ✝ Ástkær systir okkar, ANNA KRISTÍN RAGNARSDÓTTIR, Alicante, Spáni, lést á heimili sínu laugardaginn 6. febrúar. Útför hennar verður auglýst síðar. Guðný Ragnarsdóttir, Þórdís Ragnarsdóttir, Jónas Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.