Morgunblaðið - 12.02.2010, Side 28

Morgunblaðið - 12.02.2010, Side 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010 ✝ Halldóra Bene-diktsdóttir fædd- ist í Reykjavík 8.10. 1964. Hún lést af slysförum 30.1. 2010. Halldóra var gift Kristjáni Gunn- arssyni, deild- arstjóra hjá Lands- virkjun. Kristján fæddist 14.5. 1961. Börn Halldóru og Kristjáns eru: Bene- dikt, f. 20.2. 1990, Kristín Edda, f. 19.1. 1995, og Gunnar, f. 11.8. 2002. Þau búa í Brekkubyggð 28, Garðabæ. Foreldrar Halldóru eru Bene- dikt Steindórsson, f. 18.7. 1939 í Brautarlandi í Víðidal í V- Húnavatnssýslu, og Þórey Eyj- ólfsdóttir, f. 21.6. 1942 á Klypp- stað í Loðmundarfirði. Systkini Halldóru eru: a) Sigurbjörg, f. 4.10. 1967, hún var í sambúð með Bjarna Þór Þórhallssyni sem lést 1997. Þau eiga einn dreng, Þór- hall Breka, f. 7.11. 1992. b) Stein- dór, f. 5.12. 1969, hann var í sam- búð með Báru Helgadóttur sem lést 2004. Þeirra börn eru Eva Þórey, f. 18.12. 1991, Sara Rós, f. 5.9. 1994, og Benedikt Samúel, f. 1.11. 1997. Foreldrar Krist- jáns eru Gunnar Skaftason, f. 22.2. 1927 í Reykjavík, og Kristín Edda Korn- erup-Hansen f. 5.12. 1932 í Reykjavík. Systkini Kristjáns eru a) Skafti, f. 5.12. 1959, maki hans er Súsanna Davíðsdóttir, f. 6.9. 1958, börn Berglind Björk, f. 9.4. 1992, Birta Dögg, f. 25.12. 1994, og Ásdís Hrund, f. 26.11. 1997, b) Guðrún Edda, f. 24.8. 1966, maki hennar er Amid Dera- yat, f. 5.6. 1964, börn Eva Mítra, f. 20.9. 2003, og Ívar Armin, f. 4.12. 2005. Halldóra vann við teikningar í þróunardeild Öss- urar hf. Útförin Halldóru fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag, 12. febrúar 2010, kl. 15. Elsku Dóra mín. Það er mér óendanlega erfitt að setja eitthvað vitrænt niður á blað við þessar aðstæður. Þetta er allt enn svo óraunverulegt, óréttlátt og sorglegt. Að þú skulir ekki vera hjá mér og krökkunum lengur er hræði- leg tilfinning og tilhugsun. Þú, svo yndislega góð og falleg persóna og besta mamma í heimi. Þú sem alltaf vildir allt fyrir alla gera. Elsku Þór- ey, Benedikt, Silla og Steindór, það er mikið lagt á okkur. Spurningar eru margar en fátt er um svör. Við vorum búin að hlakka til þess- arar helgarferðar með vinahópnum og áttum saman notalega stund á föstudagskvöldinu í Húsafelli. Laug- ardagurinn rann upp bjartur og fag- ur og var ferðinni heitið í stuttan bíltúr á Langjökul. Á bakaleiðinni lentum við á sprungusvæði og síðan verður atburðarás sem enginn mannlegur máttur getur útskýrt. Þú og litli sonur okkar eru hrifsuð frá mér á sekúndubroti og fallegur dagur breytist í verstu martröð sem hægt er að hugsa sér. Næstu klukkustundir eru óendanlega lengi að líða, biðin eftir að endurheimta ykkur er óbærileg. Síðan kom frétt- in um að þú værir látin og svart- nættið helltist yfir. Hugurinn fer í hringi, vonleysi, reiði og samvisku- bit gera vart við sig. Síðan grípur sorgin mann heljartökum. En á sama tíma er gleðilegt að fá vitn- eskju um að litli drengurinn okkar er enn að berjast hetjulega fyrir lífi sínu. Þegar hann loksins er laus úr iðrum jökulsins tekur við önnur óbærilega löng bið milli vonar og ótta um líðan hans. Til allrar ham- ingju tekst að bjarga honum við ill- an leik. Sorgartárin breytast í gleði- tár og fagnaðarfundir eru þegar systkinin hittast öll á ný. En sorgin er ekki lengi að banka upp á þegar heim er komið og miskunnarlaus raunveruleikinn kemur í ljós. Mér er löngu orðið ljóst að hér var ekkert nema kraftaverk um að ræða að drengurinn okkar sé nú aft- ur með okkur. Ég vildi óska að þú hefðir getað séð hversu yfirvegaður og sterkur hann hefur verið. Þvílíkt æðruleysi við svo óhugnanlegar og erfiðar aðstæður. Ég veit að þú hélst verndarhendi yfir honum. Benedikt og Kristín Edda hafa staðið sig ótrúlega vel eftir að hafa mátt þola að bíða í óvissu og síðan að meðtaka sorgarfréttina. Ég veit að þú ert þeim stoð og stytta í sorg- inni. Elsku Dóra mín, þín er sárt sakn- að. Sagt er að tárin lækni sárin og tíminn deyfi sársaukann, en örin sitja eftir. Minningin um þig mun haldast með okkur um ókomna tíð og við vitum að þú munt vaka yfir okkur og halda yfir okkur vernd- arhendi eins og þú gerðir með litla strákinn okkar. Elsku Dóra mín, við áttum saman ómetanlegar samveru- stundir á liðnum árum, áttum sam- an 3 yndisleg börn og þar af eitt endurheimt. Betri lífsförunaut er ekki hægt að hugsa sér. Þakka þér fyrir öll árin sem eru samt allt of fá, en frábærar minningar munu lifa með okkur um aldur og ævi. Engin orð fá lýst okkar söknuði en ég veit að þú ert á góðum stað og við mun- um hittast aftur þó að síðar verði. Guð blessi þig, ástar- og sakn- aðarkveðjur. Kristján, börn og Tinna. Kveðja til mömmu frá Gunnari Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu, halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf, Jesús, vertu hjá mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið. (Ásmundur Eiríksson.) Kristján Gunnarsson og Gunnar Kristjánsson. „Það syrtir að er sumir kveðja.“ Að kveðja barnið sitt sem svo skyndilega er hrifsað burt er ólýs- anleg sorg. Helgarferð í góðra vina hópi, bjartur fallegur vetrardagur. Allt í einu er allt búið, fegursta rósin er fallin. Hún var gegnheill gim- steinn sem sendi frá sér kærleika. Á þessari kveðjustund er okkur orða vant. En ljósið í myrkrinu er litla hetj- an sem bjargað var úr djúpi jökuls- ins. Einhver verndaði litla drenginn sem lá klemmdur í niðamyrkri í jök- ulsprungunni. Hann efaðist aldrei um að björgun bærist og því náði óttinn aldrei tökum á honum, þrátt fyrir þessar skelfilegu aðstæður. Verðum við því ekki að treysta orð- um Matthíasar Jochumssonar þar sem hann segir: „Og gef því ei slysin guði að sök, því guð er sjálfur í hverri vök.“ Gunnar og systkini hans eru alin upp í ást og öryggi af frábærum for- eldrum. Dóra var einstök móðir, eiginkona dóttir og systir. Hún var traustur og fórnfús vinur. Systkin- um sínum var hún skjólið sem hægt var að leita í þegar boðaföll lífsins skullu á þeim. Systkinabörnunum var hún ástrík aukamamma. Hún var styrka stoðin fjölskyldunnar allrar. Alltaf hægt að leita til hennar með hvað sem var. Dóra var listræn kona og ber heimili þeirra Kristjáns glöggt vitni um það. Þau voru sérstaklega sam- hent hjón, og börnunum sínum ein- stakar fyrirmyndir. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endurgjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Minning þín er ljós í lífi okkar. Mamma og pabbi. Elsku Dóra systir. Ég vil ekki trúa því enn að þú sért farin frá okkur, þetta er allt svo skrítið og svo óraunverulegt. Maður finnur það svo sárt núna hvað missir okkar er mikill, og engin orð sem fá því lýst. Alltaf ef eitthvað mikið stóð til í fjölskyldunni eða eitthvað bjátaði á þá leituðu allir til þín. Þú hafðir ráð við öllu, yfirveguð og róleg, og það var allt eitthvað svo lítið mál í þín- um höndum. Þú varst kletturinn í fjölskyldunni, varst alltaf að passa upp á alla í kringum þig. Og þannig hafði það verið alveg frá því við vorum krakkar, þú pass- aðir upp á okkur Steindór bróðir, hlaupandi á eftir okkur út um allt að passa að við færum okkur ekki að voða. Það hlutverk fór þér vel úr hendi eins og öll önnur hlutverk sem þú tókst að þér. Þú hafðir alveg einstaklega góða nærveru enda var heimili ykkar Kristjáns oft á tíðum þéttsetið af vinum og fjölskyldu. Og ekki vant- aði kræsingarnar sem þú fram- reiddir á mettíma, hvert sem tilefnið var. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig sem systur og er rík af góð- um minningum um þig. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (Hallgr. J. Hallgr.) Ég bið góðan guð að styrkja okk- ur öll í þessari miklu sorg. Þín systir, Sigurbjörg. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Elsku systir, við þökkum alla þína hjálp og umhyggju á liðnum árum. Betri systur getur enginn óskað sér. Þú varst gimsteinn sem enginn gleymir. Þín minning lifi. Steindór og börn. Það er af veikum mætti sem við skrifum þessar línur til minningar um Dóru, hjartkæra tengdadóttur okkar Gunnars, sem lét lífið í átak- anlegu slysi laugardaginn 30. janúar síðastliðinn. Það skiptust á von og kvíði þennan örlagaríka laugardag og loks ólýsanleg sorg en jafnframt gleði og þakklæti þegar í ljós kom að tekist hafði að bjarga Gunnari litla, syni Dóru, fyrir kraftaverk. Fjölskyldan stendur í eilífri þakk- arskuld við björgunarmenn sem lögðu sig í hættu við erfiðar að- stæður. Einnig finnum við til með samferðafólki Kristjáns og Dóru á jöklinum. Hugur okkar er í uppnámi þegar minningar um Dóru streyma fram. Þær eru allar á einn veg. Dóra var vel af Guði gerð, mikil mannkosta- kona og gædd mörgum fágætum eiginleikum. Hún kom okkur þannig fyrir sjónir sem glæsileg, heilsteypt, viðmótshlý, með gott hjartalag og einstaklega jákvæð. Hún var list- feng og lagði alúð í heimilið sitt sem og vinnuna. Hún var mikill dýravin- ur og umfram allt umhyggjusöm móðir og eiginkona. Svona mætti lengi telja og ekki ofgert því að þannig er henni rétt lýst. Sonur okkar Kristján hefði ekki getað eignast betri konu. Þau voru sam- heldin hjón í umönnun barnanna og áberandi þáttur í fari þeirra var ræktarsemi við fjölskyldu og vini. Margir eiga um sárt að binda við sviplegt fráfall ungrar konu í blóma lífsins. Eftir lifa eiginmaður og þrjú börn, foreldrar og systkini Dóru. Í sameiningu munu fjölskyldurnar vaka yfir velferð barnanna og föð- urins, hlúa að þeim eftir fremsta mætti og reyna að græða sárustu sorgina. Með hinstu kveðju til þín, elsku Dóra, fylgir þetta ljóð Guðrúnar Jó- hannsdóttur frá Brautarholti: Við burtför þína er sorgin sár af söknuði hjörtun blæða. En horft skal í gegnum tregatár í tilbeiðslu á Drottin hæða og fela honum um ævi ár undina dýpstu að græða. Kristín Edda og Gunnar. Elsku Dóra mín. Á svo óskiljanlegan hátt ertu far- in frá okkur, fallega, sterka kona með blik í augum og hláturinn stutt undan. Með ástúð og hlýju hefurðu mætt fólki á lífsleiðinni og þú átt stað í hjarta okkar sem alltaf mun vera. Þú hélst verndarhendi yfir syni þínum og munt gera það áfram. Þinn hlýi faðmur umvafði fjölskyld- una þína og gerir enn. Þú veitir þeim styrk í sorginni. Elsku bróðir minn. Ekkert á lífsleiðinni hefur búið þig undir þennan missi. Eða þetta kraftaverk. Litli sonur þinn sem var næstum farinn líka er gjöfin þín. Í vanmætti þínum hefur þú þegar fundið styrk sem þú vissir ekki að þú ættir. Og þú munt finna meiri styrk er fram líða stundir einmitt þegar vonin virðist á þrotum. Elsku Benni, Kristín Edda og Gunnar. Engin orð geta lýst því sem burtu frá ykkur hefur verið tekið. En ástin innra með ykkur sem mamma ykkar hlúði að og nærði mun búa með ykk- ur allt ykkar líf. Hún bugar ekki heldur styrkir í óendanleik sínum. Ég get ekkert annað gert en að biðja fyrir öllum þeim er hafa misst svo mikið. Elsku Þórey, Benedikt, Silla og Steindór, megi Guð veita ykkur styrk í sorginni. Drottinn gef- ur og Drottinn tekur og við eigum engin svör. Við sitjum eftir með okkar eigið líf vitandi hve erfitt það er, hve brothætt það er, hve dásam- legt það er. Með djúpu þakklæti til samferða- fólkins á jöklinum og björgunar- manna. Guðrún Edda. Laugardagurinn 30. janúar líður okkur seint úr minni. Ótímabært andlát Dóru, svo ósanngjarnt og sárt. Eftir sitjum við sorgmædd og ráðþrota yfir því að hún var kölluð burt svona fljótt frá eiginmanni og börnum. Guð hefur ætlað henni ann- að hlutverk á öðrum stað. Ljósið í myrkrinu er Gunnar litli sem bjarg- aðist svo farsællega. Þar hefur Dóra umvafið hann sínum verndarvæng. Dóra var einstaklega falleg, ljúf, hlý og einlæg sem vildi allt fyrir alla gera. Það var alltaf svo gott að vera í návist hennar, svo glaðlegrar og jákvæðrar. Hún var börnunum sín- um afar góð móðir og bar mikla um- hyggju fyrir þeim. Allir hennar góðu eiginleikar endurspeglast í börnunum sem munu bera vitnis- burð hennar um ókomna tíð. Við er- um sannfærð um að börnin munu upplifa sína framtíðardrauma sem hún lagði svo traustan grunn að. Dóra hafði sérstakt lag á að gera heimilið notalegt. Hún hafði auga fyrir því sem var fallegt og henni tókst svo einstaklega vel að skapa hlýleika svo eftir var tekið. Það sama á við um garðinn, hann fékk líka á sig þennan hlýlega blæ. Dóru var margt til lista lagt, hún átti svo auðvelt með að skapa fallega hluti. Það rifjast upp margar samveru- stundirnar með Dóru, Kristjáni og börnunum, allar ánægjulegu heim- sóknirnar og ferðirnar. Það var allt- af svo yndislegt að heimsækja Dóru og Kristján. Alltaf var hægt að kíkja inn þegar farið var í gönguferðir og það var gulrótin til að fá stelpurnar okkar með í þær. Þessar ljúfu sam- verustundir með henni munu aldrei líða okkur úr minni. Elsku Dóra, þín er svo sárt sakn- að. Við þökkum þér fyrir að vera sú sem þú varst. Trygglynd og ljúf. Þolinmóð og skilningsrík. Yndisleg- ur ferðafélagi á lífsins leið. Elsku Kristján, Benedikt, Kristín Edda og Gunnar, Þórey og Bene- dikt, Silla og Breki, Steindór og börn. Megi guð styrkja ykkur í sorginni. Skafti, Súsanna, Berglind Björk, Birta Dögg og Ásdís Hrund. Elsku Dóra, það er skrítið að sitja hér og setja þessi orð á blað. Það er svo erfitt að trúa því að þú sért farin og við eigum ekki eftir að hitta þig aftur. Að þér hafi verið kippt burt án nokkurs fyrirvara frá fjölskyldu þinni og vinum. Fallegur dagur á jöklinum breyttist skyndilega í mar- tröð. Mörg minningabrot koma fram í hugann – fyrsta minningin um þig er þegar tvær litlar níu ára stelpur kynntust. Við vorum að koma úr skólanum á leið inn í skólabílinn þegar ég spurði þig hvort við ættum að vera vinkonur. Þú sagðir já og við höfum verið vinkonur alla tíð síð- an. Við gerðum margt saman, fórum í skólaleik, út í leiki og á skíði svo eitthvað sé nefnt. Það er skrítið að geta ekki rifjað aftur upp með þér þegar við ætluðum í Skálafell tæp- lega tvítugar. Það var svo mikil hálka á veginum að þú varst alltaf úti að ýta. Við hlógum oft að því að þú hefðir hlaupið langleiðina í Skálafell en svo þurftum við að snúa við áður en við komumst alla leið þar sem búið var að loka vegna ófærðar. Ég var fyrst í vinkonuhópnum til að eignast barn og naut ég góðs af því hvað pössun varðar. Þú passaðir oft eldri dóttur mína fyrst eftir að ég byrjaði að vinna þegar hún var tæplega eins árs. Oft höfum við hlegið að því þegar þú varst að passa og ætlaðir að nota tækifærið og bjóða Kristjáni í mat þar sem þið höfðuð húsið fyrir ykkur en sú litla var nú ekkert á því. Henni leist ekki á að hleypa þessum karli inn – vildi bara hafa þig í friði og hrakti Krist- ján burt með háværum gráti. Krist- ján fór og keypti sér pylsu og hætti sér ekki aftur til baka fyrr en litla daman var sofnuð. Tilraun dóttur minnar til að stía ykkur í sundur tókst sem betur fer ekki og tveimur árum seinna voruð þið búin að eign- ast Benedikt. Síðan komu Kristín Edda og Gunnar. Þið Kristján voruð einstaklega samhent og góð hjón og voruð búin að búa ykkur og börn- unum fallegt og hlýlegt heimili í Brekkubyggðinni, þangað sem alltaf hefur verið svo notalegt að koma. Það verður stórt skarð í vinkonu- hópnum sem ekki verður fyllt. Ég á eftir að sakna þín mikið Dóra mín. Elsku Þórey, Benedikt, Silla, Steindór, Kristján, Benedikt, Krist- ín Edda og Gunnar, missir ykkar er mikill og bið ég um styrk handa ykkur í þessari miklu sorg. Hvíl í friði kæra vinkona, Karen. Halldóra Benediktsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.