Morgunblaðið - 12.02.2010, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 12.02.2010, Qupperneq 32
32 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010 Með Steingrími er fallinn frá einn ástsæl- asti leiðtogi þjóðarinn- ar. Það er að bera í bakkafullan lækinn að telja upp öll þau afrek sem honum auðnaðist að vinna á stjórnmálatíð sinni, bæði sem leiðtogi þjóðarinnar og Fram- sóknarflokksins. Þó vil ég sérstak- lega tiltaka þátt hans í að koma á þjóðarsáttinni svokölluðu sem lagði grunn að löngu og farsælu velferð- arskeiði á Íslandi. Margir hafa viljað eigna sér hlut í þessari þjóðarsátt, en hlutur Steingríms í henni var af- gerandi og skipti öllu máli. Það var einmitt einkennandi fyrir Steingrím hversu auðvelt hann átti með að sætta ólík sjónarmið. Manngildi ofar auðgildi voru ein- kennisorð Steingríms og hann lagði mikla áherslu á jöfnuð. Steingrími kynntist ég hratt og örugglega ef svo má að orði komast. Það var árið 1990 þegar ég varð bæði bæjar- fulltrúi og stuttu síðar formaður Sambands ungra framsóknarmanna (SUF). Þá var Steingrímur formað- ur flokksins og því tilhlýðilegt að nýr formaður SUF færi á öll kjör- dæmisþing framsóknarmanna í fylgd formannsins. Margar slíkar ferðir voru eftirminnilegar, s.s. þeg- ar formaðurinn ók okkur austur fyr- ir fjall í blindþoku til að ná á kjör- dæmisþing á Suðurlandi. Ekki sáust handa skil í þokunni, en Steingrím- ur var einbeittur og kom okkur á þingið á réttum tíma og heilum. Á þessu þingum hélt hann stórsnjallar ræður og furðaði ég mig ávallt á því hvernig hann gat haldið uppi dampi í löngum, öflugum og innihaldsrík- um ræðum, án þess að þurfa að líta á blað í nokkurt einasta skipti. Ekki grunaði mig þá að ég ætti eftir að taka við kyndlinum af Steingrími fyrir hönd flokksins í kjördæminu. Steingrímur var ávallt í góðum tengslum við flokksmenn þótt hann hefði látið af formennsku og lét ekki sitt eftir liggja í kosningabaráttu eða öðrum stórviðburðum í flokks- starfinu. Nú síðast í alþingiskosn- ingunum í fyrravor var hann á framboðslista okkar, í heiðurssæti og mætti galvaskur til leiks þrátt fyrir veikindi. Veitti hann okkur ávallt innblástur með nærveru sinni. Steingrímur var mjög stoltur þegar Guðmundur, sonur hans, tók sæti á Alþingi fyrir hönd framsókn- armanna. Orðatiltækið sjaldan fell- ur eplið langt frá eikinni á vel við um þá feðga, enda minnir Guð- mundur oft ótrúlega mikið á Stein- grím á sínum yngri árum. Stein- grímur var þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga góðan maka, hana Eddu, sem stóð ávallt við hlið hans í blíðu og stríðu. Virðing þeirra beggja hvors fyrir öðru fór ekki fram hjá neinum sem til þeirra þekktu. Þau voru höfðingjar heim að sækja og voru ávallt reiðubúin að taka á móti flokksmönnum á heimili sínu. Nú þegar komið er að leiðarlokum vil ég þakka Steingrími fyrir að hafa gefið svo mikið af sér fyrir al- mannaheill. Hann lét aldrei deigan síga og unni þjóð sinni og landi svo heitt að störf í þjóðarþágu mótuðu allt hans lífshlaup. Ég votta Eddu, börnum, barnabörnum og öðrum ættingjum og vinum mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu Stein- gríms Hermannssonar. Siv Friðleifsdóttir. „Ertu móður“? spurði nýi utan- ríkisráðherrann mig glettnislega þegar við lukum stigagöngunni upp Steingrímur Hermannsson ✝ Steingrímur Her-mannsson fæddist í Reykjavík 22. júní 1928. Hann lést á heimili sínu í Máva- nesi í Garðabæ 1. febrúar 2010. Útför Steingríms fór fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík 9. febrúar 2010. á efstu hæð ráðuneyt- isins í lögreglustöð- inni við Hverfisgötu skömmu eftir að hann kom til starfa. Ég bar mig mannalega, en var fullljóst að ég hefði gott af því að fylgja fordæmi hans og ganga oftar upp stigann og sniðganga lyftuna. Nokkrum dögum síðar færði hann mér litla bók um heilsurækt og heil- brigt mataræði sem ég tók sem mark um umhyggju í minn garð og leitaðist við um of stuttan tíma að fylgja. Steingrímur Hermannsson nálg- aðist starf sitt sem utanríkisráð- herra af kostgæfni. Hann lét sér annt um góða stjórnun ráðuneyt- isins og sinnti störfum sínum af ná- kvæmni, ábyrgð og fyrirhyggju þar sem hann skoraðist hvergi undan forystu þótt oft væri við erfið við- fangsefni að glíma. Starf mitt sem skrifstofustjóri ráðuneytisins og yf- irmaður alþjóðadeildar þess kallaði á náin dagleg samskipti þar sem á stundum þurfti að marka stefnu í alþjóðamálum sem ekki var sjálf- gefið að væri í samræmi við stefnu ýmissa bandalagsþjóða okkar svo sem gagnvart Ísrael, gamalli vina- þjóð sem Steingrímur taldi koma afar illa fram gagnvart Palestínu- mönnum. Hann fylgdi sannfæringu sinni vel eftir í samtölum við sendi- herra Ísrael og lagði fyrir að und- irritaður léti ekki sitt eftir liggja. Tæpum áratug síðar fól Matthías Á. Mathiesen, utanríkisráðherra, okkur Jóni Hákoni Magnússyni um- sjón með framkvæmd þeirra þátta sem sneri að þjónustu við erlent fjölmiðlafólk sem fjallaði um leið- togafundinn í Reykjavík 1986. Afar skammur tími var til undirbúnings og Steingrímur, sem þá var for- sætisráðherra, leiddi þetta áhlaups- verkefni okkar Íslendinga sköru- lega svo land og þjóð hafði mikinn sóma af og góða kynningu. Mér er minnistætt hversu skemmtilega hann svaraði frétta- hauki CBS-sjónvarpsstöðvarinnar, Dan Rather, sem í beinni útsend- ingu spurði í lokin hvort hann tryði á álfa og huldufólk eins og hann hefði heyrt að margir Íslendingar gerðu. Steingrími vafðist ekki tunga um tönn og svaraði því til að amma hans hefði nú gert það og líklega væri best að fylgja fordæmi hennar. Svarið batt enda á þetta góða viðtal. Það er bjart yfir minningunni um samstarfið við Steingrím sem þró- aðist til góðrar vináttu við þau hjón- in. Steingrímur átti tvisvar á ári er- indi til Washington, D.C. þar sem hann sat í stjórn framtíðarstofn- unar sem fjallaði um alþjóðamál og var um tíma stjórnarformaður fyrir. Á árunum 2002 – 2006 átti ég sem sendiherra þess kost að kynnast samstarfsmönnum hans þar og finna hversu mikils þeir mátu fram- lag hans og forystuhæfileika. Þess- ar samverustundir á erlendri grund voru ævinlega ánægjulegar og lifa í minningunni um einlægan, hrein- skiptinn og góðan mann. Við hjónin vottum Eddu og fjöl- skyldunni innilega samúð okkar. Helgi Ágústsson. Steingrímur og móðir mín voru systkini og voru samrýnd sem börn, enda aðeins eitt ár á milli þeirra. Minningar um Steingrím, ekki síst um hann ungan, eru gjarnan um hversu kraftmikill og fyrirferðar- mikill hann var. Hann sagði reynd- ar frá því sjálfur í ævisögu sinni að hann hefði dregið móður mína á hárinu um Ráðherrabústaðinn og lét sig þá ekki endilega varða hvort mamma hefði verið sátt við þann ferðamáta. Þetta voru bernskubrek, en samt honum lík. Alltaf á fleygi- ferð. Þessi einbeitti kraftur, sem kom fram í æsku, einkenndi hann með einum eða öðrum hætti alla tíð. Ég minnist Steingríms einkum fyrir eitt; óþrjótandi lífsþrótt. Þeg- ar ég var á barns- og unglingsaldri heyrði ég gjarnan sögur af lygilegu úthaldi og þreki hans, oft úr fram- boðsferðum á Vestfjörðum. Þessum vilja og þessum þrótti fékk ég að kynnast nú síðustu árin þegar Steingrímur barðist jöfnum hönd- um við tvo illvíga sjúkdóma. Nýlegt atvik frá Kletti rifjast upp. Niður við Reykjadalsá er girðing og yfir þá girðingu lágu maukfúnar tröpp- ur. Leið okkar lá yfir þessar tröpp- ur sem reyndust Steingrími vægast sagt ekki auðveldar yfirferðar. En það var ekki um það að ræða að ég mætti svo mikið sem snerta hann til þess að auðvelda honum klifrið, sem var honum í reynd stórhættulegt. Að fá ofurlitla aðstoð, þó ekki væri nema við fáránlegt klifur, jafngilti því í hans huga að viðurkenna að sjúkdómurinn hefði náð tökum. Það var óhugsandi. Reyndar gekk hann lengra, reif tröppurnar í burt, og smíðaði forláta hlið í staðinn úr timbri úr skóginum. Skógrækt, smíðar og aðrar fram- kvæmdir á Kletti voru honum mikill innblástur. Hann hætti aldrei. Allt- af kominn í gallann og út að ham- ast. Fólk á besta aldri hristi höf- uðið: Ætlar hann aldrei að slaka á? Annað var eftir því. Þó hreyfigetan væri orðin verulega takmörkuð fór hann á skíði til Austurríkis. Nokkru síðar, á tvísýnu tímabili í sjúkdóms- glímunni, heyrði ég af honum í Int- ersport að kaupa klifurvél. Nú í haust dreif hann sig til Spánar í golf. Jafnvel þegar verulega var farið að halla undan fæti síðla hausts, og hann hefði átt að vera í návígi við sjúkrahús, fór hann á rjúpnaveiðar í Ísafjarðardjúp. Um það leyti hitti ég 100 ára gamla tengdamóður hans, Hlíf Böðvars- dóttur, sem hristi bara höfuðið yfir því að það væri alveg borin von að koma tengdasyninum í skilning um að kannski væri ráðlegt að fara að- eins hægar. Og viku fyrir andlátið reif hann sig upp að Kletti að ná í viðarboli fyrir panel. Lenti í slarki við að ná kerru upp á veg. Það þótti honum ekki leiðinlegt og glotti alla leið í bæinn. Framundir það síðasta reif hann sig fram úr á hverjum morgni og stundaði líkamsrækt og smíðar og var stöðugt að gera áform um verk sem þyrfti að vinna. Í glímu við tvo illvíga sjúkdóma virðist sem í hans huga hafi það aldrei komið til greina að svo mikið sem leggjast fyrir. Lífsþrótturinn og lífsviljinn virtist alveg takmarkalaus. Fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar færi ég fjölskyldu Stein- gríms innilegar samúðarkveðjur. Dagfinnur Sveinbjörnsson. Steingrímur Hermannsson, frv. forsætisráðherra, er látinn, 81 árs að aldri. Með honum er fallinn í val- inn mikilhæfur maður, leiðtogi og æskuvinur. Við lát hans koma í hugann ótal svipmyndir frá liðnum áratugum: leikir og íþróttir á Landakotstúni og Hávallagötu, störf í Röskum Drengjum, bíltúrar á R-25, námsár við tækniháskólann í Chicago og líf „Íslendinganýlendunnar“ þar, störf við byggingu Áburðarverksmiðj- unnar og gangsetningu hennar, há- lendisferðir á R-3030, laxveiði í Grímsá, silungsveiði í Reykjadalsá og dvöl á Kletti, húsbygging á Laugarásveginum, bridsspil og þannig mætti lengi rifja upp minn- ingar sem ylja á þessari stundu. En það er þó minningin um manninn sjálfan og hans miklu mannkosti sem er sterkust. Steingrímur var fæddur foringi. Kom þetta snemma í ljós er hann varð formaður okkar Röskra Drengja og á menntaskólaárunum var hann í forystu síns árgangs sem Inspector. Seinna gegndi hann for- mennsku í Surtseyjarfélaginu í ára- tugi og svo að lokum formennsku í Framsóknarflokknum með miklum glæsibrag. Annars stóð hugur hans ekki til stjórnmálastarfa fyrsta hluta starfsævinnar, en enginn má sköpum renna. Hann var í áhuga- verðu starfi sem framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins er hann var kallaður til forystu í ungliðahreyf- ingu Framsóknarflokksins og þar með var teningunum kastað. Hann var síðan kosinn á þing fyrir Vest- firði 1971 og gegndi þingmennsku til 1994. Var hann tvisvar forsæt- isáðherra á þessu tímabili auk ann- arra ráðherraembætta. Stjórnmál áttu vel við Steingrím. Naut hann þar áreiðanlega uppeldisins í Ráð- herrabústaðnum og áhrifa frá föður sínum, Hermanni Jónassyni, en þeir feðgar voru mjög samrýmdir og miklir félagar. Steingrímur hafði ákveðnar skoðanir og hélt þeim fast fram en var þó sveigjanlegur og góður málamiðlari. Það hefur verið sagt að stjórnmál séu list hins mögulega á hverjum tíma. Á því sviði var hann maður mikilla hæfi- leika. Hann var alltaf óþvingaður og alúðlegur í framkomu og tilgerð- arlaus við alla enda naut hann virð- ingar og vinsælda allrar alþýðu manna. Steingrímur unni Íslandi og nátt- úru þess og var mikill útivistarmað- ur. Á yngri árum vann hann að fyrstu stóriðjuframkvæmdum á Ís- landi sem byggðust á beislun vatns- orku landsins en þegar honum fannst keyra úr hófi í þeim efnum hikaði hann ekki við að aðvara þjóð sína og benda á að fara þyrfti var- lega með náttúruna. Þá var hann og eindreginn andstæðingur inngöngu Íslands í Evrópusambandið með til- heyrandi skerðingu á fullveldi landsins. Hann studdi Landvernd og Heimssýn dyggilega. Að lokum sendi ég Eddu og börn- um hans öllum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um mikilhæfan mann mun lifa og hans er gott að minnast. Runólfur Þórðarson. Mannlífið hefur sinn gang, það tekur og það gefur og allir verða að lúta því. Bekkjarbróðir minn og aldavinur er nú horfinn sjónum og er sárt til þess að hugsa. Stein- grímur Hermannsson hefur víða látið að sér kveða og mörgu komið til leiðar til hagsbóta fyrir land og lýð. Það er ekki ofmælt að hann hafi verið einn af áhrifamestu for- ingjum þjóðarinnar í stjórnmála- baráttu á síðustu þremur áratugum liðinnar aldar. Mér segir líka svo hugur þegar grannt er skoðað að hann hafi verið einna farsælastur þeirra stjórnmálaforingja, sem stóðu í orrahríðinni miðri á þeim tímum. Við Steingrímur vorum jafnaldra og sex vetur samfleytt sessunautar í Menntaskólanum í Reykjavík. Tvö sumur lögðum við veg um Vatns- skarð og vorum eitt sumar á síld eða við síldarvinnslu á Siglufirði. Öðru hverju vorum við spilafélagar þar til yfir lauk. Hér gefst ekki rými til að bregða upp svipmyndum af einstökum löngu liðnum atvikum en lítið eitt skal sagt frá Steingrími skólaár- anna. Hann var snemma mikill maður fyrir sér svo að hann dró ósjálfrátt að sér athygli nær- staddra, hvort sem hann varpaði kúlu á lóð skólans eða mælti á sal. Forsjónin var Steingrími gjöful og gaf honum afl og vit í ríkum mæli eins og til háttar með höfð- ingja í fornum sögum. Hann hafði bæði metnað og dug til að leggja rækt við þessa eðlisþætti. Hann efldi krafta sína með þrekraunum og hvers kyns íþróttum, sem of langt yrði að gera grein fyrir. Þessu sinnti hann af alúð, skipulega og markvisst alla sína skólatíð, mældi og vó og árangurinn lét ekki á sér standa. Steingrímur var mikið mannsefni og félagslyndur, vel liðinn, einlægur í viðmóti og orðheldinn. Hann lærði að treysta öðrum og hlaut sjálfur traust og trúnað. Af þessu má ráða að Steingrímur var miklum hæfi- leikum búinn. Foringjaefnið var í mótun. Af þessum mannkostum leiddi að Steingrímur var í sjötta bekk kjörinn inspector scholae. Stúdentaárgangurinn ’48 hefur með þökkum notið leiðsagnar hans og forystu allar götur til þessa dags. Vart þarf að taka fram að sam- band Steingríms og árgangs ’48 hefur ætíð verið með miklum ágæt- um, enda hvílir það á traustum stoðum vináttunnar. MR hefur löngum verið akur vin- skapar. Í merkri þriggja binda ævi- sögu sinni víkur Steingrímur að vin- áttunni á þann hátt að árgangur ’48 kemst við: „Í Menntaskólanum eignaðist ég mína bestu vini … það er undarlegt til þess að hugsa að vinabönd úr æskunni og frá þessum árum hafa reynst mun traustari en allur vinskapur frá stjórnmálaferli mínum samanlögðum. Þessir fé- lagar mínir urðu sannkallaðir vinir fyrir lífstíð“ (I, 99). Árgangurinn ’48 saknar nú vinar í stað, leiðtogans sem áratugum saman greiddi götu hans til minn- isstæðra mannfagnaða og ferðalaga bæði innanlands og utan. Við skóla- systkinin sendum Eddu og fjöl- skyldu hennar innilegar samúðar- kveðjur. Bjarni Guðnason. Með Steingrími Hermannssyni er fallinn frá einn litríkasti stjórnmála- maður síðari ára. Hann var eft- irminnilegur foringi okkar fram- sóknarmanna, og sérstaklega minnisstæður okkur sem áttum samleið með honum á Alþingi og í flokksstarfinu um árabil. Um það leyti sem ég kom fyrst inn á Alþingi, sem varamaður, var Steingrímur að taka við for- mennsku í Framsóknarflokknum af Ólafi Jóhannessyni, þeim trausta og eftirminnilega foringja. Stíll þeirra var ólíkur, enda fóru nú breyttir tímar í hönd í stjórnmálum. Ekki var langt í hina miklu fjölmiðlabylt- ingu hér á landi sem gjörbreytti starfsumhverfi stjórnmálamanna. Þegar litið er til baka má segja að Steingrímur hafi farið í gegn um þessar breytingar eins og fiskur í vatni. Persónuleiki hans var þannig. Aðgengi fjölmiðla að honum var gott, hvaða stöðu sem hann gegndi, og hann var einlægur og hreinskil- inn í viðtölum. Hann var forkur til vinnu og vel skipulagður og kom verkfræðimenntunin honum þar til góða. Hann gat skipulagt störf sín þannig að eiga afgangs tíma til þess að létta sér upp við útivist eða smíðar og hvíla hugann þannig frá átökum daganna. Hann var lipur í samskiptum og laginn samninga- maður. Á góðum stundum gat hann kastað af sér amstri hversdagsins og farið í strákslega leiki með okk- ur samþingsmönnum sínum, farið í sjómann eða keppt í því hver gat kastað símastaurum lengst. Úr gömlum símastaurum var hann að smíða bjálkahús sem átti að þjóna sem gufubað uppi á Kletti í Borg- arfirði þar sem fjölskyldan átti sælureit. Þingflokkurinn stóð fast að baki honum. Á því var ein undantekning í upphafi tíunda áratugarins þegar fjallað var um EES-samninginn, þegar skildi leiðir og hluti þing- flokksins sat hjá. Þennan aðskilnað tók hann nær sér en við áttuðum okkur þá á. Afstaða okkar beindist ekki gegn hans persónu að neinu leyti. Steingrímur sat um árabil á frið- arstóli eftir að hann hvarf úr ráð- herradómi og þingstörfum. Við þessi þáttaskil eru mér efst í huga þakkir fyrir samstarfið fyrr og síð- ar. Ekki síst vil ég minnast þess þegar ég var kominn í heilbrigð- isráðuneytið og fundum okkar bar saman hve vinsamlegur hann var og talaði jákvætt um störf mín þar. Það var hvetjandi og uppörvandi. Steingrímur var mikill fjölskyldu- maður og Edda Guðmundsdóttir kona hans og fjölskyldan var hon- um sá trausti bakhjarl sem nauð- synlegur er í þeim vindum sem fylgja forustu í stjórnmálum. Við Margrét sendum henni og fjölskyld- unni allri innilegar samúðarkveðjur. Jón Kristjánsson. Náin samfylgd með Steingrími til margra ára hefur bæði verið lær- dómsrík og gefandi. Hann lét sig margt varða á viðburðaríkri ævi, var vel liðinn sem yfirmaður á vinnustað, árrisull, nákvæmur, ein- lægur og úrræðagóður. Afar auð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.