Morgunblaðið - 12.02.2010, Qupperneq 39
Þjóðmenningarhúsið – The Culture House
National Centre for Cultural Heritage
Hverfisgötu 15 · 101 Reykjavík
Sími 545 1400 · www.thjodmenning.is
Sýningar · leiðsögn · verslun
Opið daglega kl. 11.00 – 17.00
Aðrar sýningar:
Póstkortaár, Flora Islandica, Handritin.
Leiðsögn án endurgjalds í boði fyrir skólahópa.
Veitingar á virkum dögum.
SÝNINGAR Á
ÖLLUM HÆÐUM
©
B
LU
E
E
Y
E
S
P
R
O
D
U
C
TI
O
N
S
Sýningin ÍSLAND :: KVIKMYNDIR framlengd
til hausts! 100 íslenskar kvikmyndir frá 1904-
2009 í fullri lengd auk myndbrota úr völdum
myndum á skjám, sjá thjodmenning.is
ÓÞEKKTUR HÖFUNDUR.
Gestir geta endurraðað íslenskri hugsun liðinna alda
að eigin skapi með orðum úr hundruðum lausavísna
óþekktra höfunda. Dagskrárgerð: Þorvaldur Þorsteinsson
myndlistarmaður og rithöfundur. Bókasalur kl. 19-24
ÍSLENDINGAR
Sýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur
á ljósmyndum úr samnefndri bók. Unnur skrafar við gesti
á sýningunni milli kl. 21 og 22 og leikur með vinkonum á
harmónikku.
ÍSLAND :: KVIKMYNDIR 1904-2009
11. skjárinn – Frumsýning
100 kvikmyndir í fullri lengd og nýr skjár með myndbrotum
úr The Good Heart, Sólskinsdreng, Sveitabrúðkaupi og
Brúðgumanum. VÍNBAR og von er á gestum úr kvikmynda-
geiranum. Í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands.
Kl. 19-24.
ÓLÖF ARNALDS
Sólótónleikar í Bókasal kl. 22:30-23:15.
SAFNANÓTT
12. FEBRÚAR KL. 19-24
Ókeypis á Safnanótt – Allir velkomnir! – Safnanæturleikur – Veitingasala
Menning 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
VETRARJAZZHÁTÍÐ í Reykjavík
stendur nú sem hæst og meðal atriða
eru tónleikar Sigurðar Flosasonar í
Þjóðmenningarhúsinu sunnudaginn
14. febrúar þar sem hann kynnir
diskinn Það sem hverfur. Á honum
eru lög Sigurðar við ljóð Aðalsteins
Ásbergs Sigurðssonar úr ljóða- og
ljósmyndabókinni Eyðibýli, en í
þeirri bók yrkir Aðalsteinn um horf-
inn heim, aðskilnað, söknuð og landið
sem er sífellt að breytast.
Þeir Sigurður og Aðalsteinn Ás-
berg hafa brallað margt saman í
gegnum tíðina og Aðalsteinn segir að
þessi nýjasti ávöxtur samstarfs
þeirra eigi sér býsna langa sögu.
„Sigurður hefur verið að semja tón-
list við allmörg af ljóðunum mínum
síðustu fimm árin og ég líka samið
ljóð við lög eftir hann. Árið 2006 gaf
Dimma út tvöfaldan disk þar sem
Kristjana Stefánsdóttir söng lög Sig-
urðar við texta eftir mig.
Dagskrá á Jazzhátíð
Í hittiðfyrra vorum við svo enn
komnir með dálítið safn af lögum sem
við völdum tvo söngvara til að glíma
við, Ragnheiði Gröndal og Egil Ólafs-
son, og settum saman dagskrá sem
flutt var í Iðnó á Jazzhátíð í Reykja-
vík og gekk mjög vel. Það má segja
að það hafi verið einskonar framhald
á samstarfi okkar eins og það birtist í
disknum með Kristjönu,“ segir Að-
alsteinn en bætir svo við eftir smá
þögn: „… en samt allt öðruvísi.“
Eins og Aðalsteinn rekur söguna
settist Sigurður aftur yfir laga- og
ljóðasafnið eftir Iðnótónleikana og
fannst hann komast í feitt þegar hann
komst yfir bókina Eyðibýlið og samdi
mörg lög við ljóð þaðan. Fyrir ári hóf-
ust svo upptökur en þeir áttuðu sig
fljótlega á því að þeir væru með of
mikinn efnivið í höndunum. „Þegar
við fórum að raða lögunum saman
sáum við að eyðibýlaljóðin voru rauð-
ur þráður í öllu saman svo við fórum
aftur í stúdíó til að gera plötu sem
byggðist bara á ljóðum úr þeirri
bók.“
Allt tók þetta sinn tíma og því kom
platan ekki út fyrr en í miðju plötu-
flóði jólanna og ekki gafst tími til að
kynna hana fyrr en núna.
Gefandi samstarf
Aðalsteinn Ásberg lætur vel af
samstarfinu við Sigurð, segir að það
sé mjög gefandi enda teygi það sig
einhvern veginn í margar áttir, eins
og hann orðar það. „Hann kemur
mér mjög oft á óvart með það sem
hann er að gera, er oft kominn með
tónverk við ljóð sem ég hef aldrei
hugsað mér að ættu að eftir að tengj-
ast tónlist. Á móti reyni ég líka að
koma honum á óvart, hef lagt fyrir
hann gildrur eða próf sem hann hefur
staðist. Eitt af því sem gerir þessa
tónlist Sigurðar svo skemmtilega er
að hún er mjög ólík því sem hann hef-
ur áður gert, enda er þetta ekki hefð-
bundinn djass heldur tónlist sem
dansar á mörkum margra greina.“
Öðruvísi Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Sigurður Flosason.
Dansað á mörkum
margra greina
Sigurður Flosason
kynnir plötu
með lögum við
ljóð um eyðibýli
Ljóðabókin Eyðibýli sem getið er
um hér til hliðar kom út 2004 og
var sjöunda ljóðabók Aðalsteins
Ásbergs, en hann hefur líka gefið
út þýðingar á ljóðum Paal-Helge
Haugen, Karl-Erik Bergman,
George Mackay Brown og Hal
Sirowitz, átt texta á mörgum
plötum og þýtt og samið fjölda
söngtexta. Ljóðabækur hans eru:
Ósánar lendur 1977
Förunótt 1978
Gálgafrestur 1980
Fugl 1982
Jarðljóð 1985
Draumkvæði 1992
Eyðibýli 2004 (væntanleg í
aukinni útáfu)
Ljóð (úrval m. tónskreyt-
ingum) 2005
Hvar er tunglið? 2006
Hjartaborg 2007
Ljóð á ljóð ofan
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Best er að panta sem fyrst til að
tryggja sér góðan stað í blaðinu!
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
.
Morgunblaðið gefur út sérblað
tileinkað Food and Fun matar-
hátíðinni með sérlega glæsi-
legri umfjöllun um mat, vín og
veitingastaði
laugardaginn 20.febrúar.
Food and Fun verður haldið í
Reykjavík í níunda skipti
dagana 24.-28. feb.
MEÐAL EFNIS:
Umfjöllun um veitingastaðina
Umfjöllun um erlendu
sérfræðingana sem taka þátt
Sælkerauppskriftir
Lambakjöt
Villibráð
Sjávarfang
Sætir réttir
Matarmenning Íslendinga
Rætt við keppendur
Og fullt af öðru
spennandi efni
Food and Fun
P NTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS FYRIR 16. FEBRÚR
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, þriðjudaginn 16. febrúar
Morgunblaðið/Árni Sæberg