Morgunblaðið - 12.02.2010, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 12.02.2010, Qupperneq 40
Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ÍSLENDINGAR hafa ekki verið þekktir fyrir stefnu- mótamenningu á borð við þá sem finna má í Banda- ríkjunum en það er allt að breytast. Stefnumóta- og skemmtiþátturinn Djúpa laugin, sem hóf göngu sína árið 2000, er nú kominn aftur á dagskrá SkjásEins og fyrsti þátturinn verður sýndur í kvöld með nýjum laugarvörðum, Röggu og Tobbu, þ.e. Ragnhildi Magnúsdóttur, dagskrár- og kvikmyndagerðarmanni, og Þorbjörgu Marinósdóttur, blaðamanni, bloggara og nú einnig dagskrárgerðarmanni. Þættirnir verða sýndir í beinni útsendingu á föstudagskvöldum kl. 21. Mikilvægt að hafa gott flæði Blaðamaður hringdi í Röggu og spurði hvernig þátturinn yrði hjá þeim Tobbu. „Í fyrsta lagi þá eru tvö sett af þátttakendum, í stað eins líkt og áður var, það mætti segja að tempóið væri hraðara í þættinum,“ segir Ragga. Það sé mikilvægt að hafa gott flæði í þættinum. „Einnig er ýmislegt sem við munum bæta við þáttinn. Annars vegar er það fræðslutengt efni, auðvitað mjög létt, og hins vegar persónulegt efni þar sem við ætlum að fá Íslendinga til að koma og opna sig um ástarmál sín og reynslu af stefnumótum.“ Ragga segir nú breytta tíma hvað stefnumóta- menningu varðar. Á þeim tíma er foreldrar hennar voru að draga sig saman hafi fólk kynnst á dans- leikjum. Nú sé tíðin önnur, stefnumótamenningin hafi færst frá börunum út í hið daglega líf, nú kynnist fólk á netinu, á námskeiðum, í líkamsræktinni og víðar. „Það þykir ekkert hallærislegt lengur að kynnast makanum á Facebook eða Einkamál.is,“ segir Ragga. Þær Tobba ætli að skoða þessa þróun og vera ófeimn- ar við að ræða þessi mál. „Við höfum verið að vinna efni fyrir þáttinn og ég get alveg lofað því að ég mun fá fólk til að opna sig um þessi mál í þættinum.“ Ragga segir markmið þáttarins að draga fólk sam- an og koma því á stefnumót. Þær Tobba vilji gjarnan að þátttakendur verði á öllum aldri, ekki aðeins fólk undir þrítugu og hvetja fólk til að skrá sig á vefsíðu Skjásins, skjarinn.is. Áhuginn hefur verið mikill og margir sótt um að taka þátt. Ragga og Tobba fá svo að glíma við þá þraut að velja fólk í þættina, að skoða umsóknir og ákveða hver eigi mögulega vel við hvern. Fólk á djamminu ekki flott dagskrárgerð – Fer fólk svo á stefnumót líkt og í fyrri þáttum? „Já, já, það eru alltaf stefnumót en helsta breyt- ingin hvað þau varðar er sú að viljum taka þau inn í af- þreyinguna, af börunum. Auðvitað fer fólk út að borða og kannski á bar en við ætlum ekki að fara að mynda fólk á djamminu, við ætlum að breyta því, hafa þetta meira í takt við þessa breyttu menningu. Þar að auki er það ekki flott dagskrárgerð að mynda fólk á djamminu, að mínu mati,“ segir Ragga. Þá væri æð- islegt að fá eitt brúðkaup út úr þessu öllu saman. – En að lokum, smáheilræði frá sérfræðingnum: Hvað á fólk ekki að gera á fyrsta stefnumóti? „Ekki drekka þig pissfulla eða -fullan, ekki tala um fyrrverandi kærasta eða kærustu og ekki tala bara um þig sjálfa eða sjálfan,“ segir Ragga og hlær inni- lega. „Einlægni er lykillinn, þú getur notað það sem fyrirsögn,“ segir hún að lokum um þáttinn og blaða- maður tekur hana á orðinu. „Einlægni er lykillinn“  Djúpa laugin hefur göngu sína á ný í kvöld, eftir fimm ára hlé  Átta þátttakendur verða í hverjum þætti og tvö pör send á stefnumót hverju sinni Ljósmynd/Sigurjón Ragnar Sigurjónsson Djúpa laugin Tobba vinstra megin og Ragga hægra megin, í rosalegu stuði að spila billjard. 40 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010  Og meira af hinu ágæta,og greinilega Íslandsvæna riti Clash. Í viðtali við Mugison segir hann frá nýja hljóðfærinu sínu, talar um væntanlegan Bretlandstúr og raf- tónlistarplötu sem hann hyggst kalla Music For Cafes And Com- mercials. Allir vildu Mugga gamla kveðið hafa, líka Bretar … Sonur Súðavíkur heillar Breta Fólk Eftir Hólmfríði Gísladóttur holmfridur@mbl.is DAUÐAROKKSHLJÓMSVEITIN Beneath efnir í kvöld og á laug- ardaginn til útgáfutónleika til að fagna útkomu nýrrar sex laga þröngskífu. Platan hefur hlotið nafnið Hollow Empty Void, en hún var tekin upp í Stúdíó Fosslandi og Jóhann Ingi Sigurðsson, gítarleik- ari sveitarinnar, mixaði hana og masteraði. Aðrir sveitarmeðlimir eru Unnar Sigurðsson, Gísli Rúnar Guðmundsson, Ragnar Sverrisson og Gísli Sigmundsson, fyrrverandi bassaleikari og söngvari Sororicide. „Við gerðum samning við banda- rískt útgáfufyrirtæki í haust, Mord- brann Musikk. Þeir höfðu samband upprunalega við Sororicide út af endurútgáfu á The Entity, sem var svo hafnað, en í framhaldi af því vorum við í sambandi við þá annað kastið,“ segir Gísli. Mordbrann mun gefa skífuna út og dreifa henni í Bandaríkjunum en að sögn Gísla munu strákarnir sjálfir sjá um dreifinguna hérna heima. Sveitin er búin að taka upp stærri plötu sem verið er að vinna í Svíþjóð en það á enn eftir að semja um útgáfu á henni. „Við viljum helst gefa stóru plöt- una út í Bandaríkjunum og í Evrópu og vonandi getum við fylgt henni eitthvað eftir með tónleikahaldi er- lendis. Við erum að fara að spila í Þýskalandi í júní á festivali og við erum svona að skoða hvort við get- um ekki gert eitthvað meira í kring- um það í leiðinni, en það er ekkert komið á hreint ennþá.“ Aðspurður hver munurinn sé á dauðarokkssenunni hér heima núna og fyrir tuttugu árum segir Gísli margt hafa breyst. „Þetta var nátt- úrlega svakalega lokað, við höfðum ekki einu sinni netið. Markaðurinn hérna heima fyrir þessa tegund af tónlist er mjög lítill og það er nátt- úrlega eina vitið að reyna að koma sér á framfæri erlendis,“ segir hann og heldur áfram: „Munurinn er að- allega sá að hljóðfæraleikararnir í dag eru almennt betri, þeir eru teknískari. Þetta er búið að hafa tuttugu ár til að þróast og það hefur gerst svo margt á þessu tímabili að standardinn hefur breyst svo mikið. Senan hérna heima er mjög sterk, það er mikið af góðum þunga- og dauðarokksböndum hérna. En hóp- urinn er ekki stór, þetta eru kannski einhver hundruð manna sem mæta á tónleika nokkuð reglu- lega.“ Tónleikarnir 12. febrúar verða haldnir á Sódómu og hefjast kl. 22 en 13. febrúar verða þeir í Hellinum í Tónlistarþróunarmiðstöðinni og hefjast kl. 19. Beneath kemur sér á framfæri erlendis Beneath Fagnar útkomu nýrrar sex laga þröngskífu.  Nú er kominn sæmilegasti hiti í hinum stóra útheimi fyrir vænt- anlegri sólóplötu Jónsa sem kemur út 5. apríl næstkomandi. Þannig rit- ar hið virta Clash Magazine frétt þess efnis en blaðið skriplar þó herfilega á skötunni þegar Jónsi er kallaður Bergison í tíma og ótíma í langri fréttaskýringu. Einföld upp- fletting í Wikkipedíunni hefði leið- rétt þennan misskilning. Í byrjun vikunnar var tónleikaferð um Norður-Ameríku staðfest en Jónsi mun taka tæpt ár í það að fylgja plötunni eftir. Ítarlegt viðtal við Jón Þór Birgisson verður að finna í Sunnudagsmogganum. Jónsi „Bergison“ gefur út sólóplötu  Allnokkur umræða er um hlut kvenna í stjórnun fyrirtækja um þessar mundir og því ágætt að draga fram þá staðreynd að stjórn- endur Miðjunnar, afþreyingar- og menningarvefsins sem er í mikilli sókn um þessar mundir, eru allir konur. Ritstjóri er Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, eini fasti blaða- maðurinn er Þórhildur Ólafsdóttir, ljósmyndari er Julia M. Staples og vefstjóri er Rósa Stefánsdóttir. Kannski það sé ástæð- an fyrir farsældinni?  Verst að það var ekki föstudag- urinn 13! Alltént, Grasrót- artónleikaröð Grapevine og go- gyoko er með langlífari tónleikaröðum og í kvöld koma fram Dynamo Fog, Tamarin/ (Gunslinger) og eitt leyniband. Tal- ið verður í á Hemma og Valda að venju en þess má geta að tónleika- röðin fagnar árs afmæli nú um stundir. 13. grasrótartónleik- arnir haldnir í kvöld Djúpa laugin hóf göngu sína á SkjáEinum í júní árið 2000. Fyrstu laugarverðir voru Laufey Brá og Kristbjörg Karí, svo tóku við Dóra Takefusa og Mariko Margrét Ragnarsdóttir og haustið 2001 Þórey Eva og Júlíus Hafstein. Á eftir þeim komu Hálfdán Steinþórsson og Kolbrún Björnsdóttir og haustið 2003 urðu laugarverðir þrír, Bryndís Ásmundsdóttir, Auður Lilja Dav- íðsdóttir og Arthúr Karlsson. Djúpa laugin lagðist í dvala árið 2004 en hóf göngu sína á ný í apríl 2005, undir stjórn Helga Þórs Arasonar og Gunnhildar Helgu Gunnarsdóttur. Síðasti þátturinn fór í loftið 27. júní 2005 en nú hafa Ragnhildur og Þorbjörg tekið við kyndlinum. Laugarverðir frá upphafi eru nú orðnir 15 talsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.