Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 10.11.1962, Blaðsíða 4

Skólablaðið - 10.11.1962, Blaðsíða 4
- 68 - uppfræðsia gerir þá að menntamönnum með hinum sanna lærdómsanda, eða hvort þeir verða aðeins þyrrkingslegir geymslustaðir endursagna og yfirborðs- atriða fræðslunnar. Það skal játað, að hið síðara er miklu algengara og gildir það jafnt um hina æðri skóla. Við könn- umst öll við þessi fyrirbrigði, barbarana, sem £eta oft og tíðum verið sprengfullir af froðleik, en hugarfarið er eitt gap- andi tóm. Þeir drattast áfram í skólan- um, ýmist knúðir af skyldurækni eða nauði ættingja. Ahugamálin eru af lág- kúrulegustu tegund, ef þau eru þá nokk- ur. Bíladella, snobbdrykkjuskapur, slæpingsháttur eða sjúklegur íþróttaáhugi eru mest áberandi, eða þetta blandast allt saman og úr verður hinn algjöri barbari. Samfara þessum ósköpum kem- ur fyrirlitning á öllu því, er félagar þeirra, sem ekki stahda á sama þrepi niðurlægin^unnar, taka sér fyrir hendur. Ahugi á bokmenntum, listum og yfirleitt ástundan andlegra hugðarefna, er þeim þyrnir í augum. Þeir hæðast að þess- um félögum sínum og skopast, ata þá saur fyrirlitningarinnar og'telja sig meiri menn, ef þeir geta gert þeim óskunda eða valdið þeim tjóni. Það er hryggileg staðreynd, að margir af þessari manngerð skuli vera á meðal okkar. Ég efast um að þetta hafi verið svo áður fyrri, enda tíðar- andi þá annar og betri. II. Það væri hæpin fullyrðing að segja, að menn gengju í skóla af námsfýsi ein- vörðungu. Það er margt fleira en hin beina fræðsla, sem hefur aðdráttarafl. Félagar okkar, sem við umgöngumst daglega, skipta miklu máli og félagsskap- ur þeirra hefur jafnvel eins mikil áhrif á okkur og námsefnið sjálft. Það er því þýðingarmikið, að gott og heilbrigt félagslíf skapist, að það sé til þess að þroska okkar beztu eiginleika, kenna okkur framkomu, er sæmir félagsverum og venji okkur af þeim einyrkjahætti og innilokun, sem gerir öll dagleg sam- skipti stórum erfiðari og leiðinlegri. III. Það sem af er vetharins hefur félags- lífið hér í skólanum veriðiallmikið. Að - venju er það starfsemi Framtiðarinnar, SKÖLABLAÐIÐ Gefið út í Menntaskólanum í Reykjavík Ritstjóri : Júníus H. Kristinsson 5. -B Ritnefnd : Þorbjörn Broddason 6. -X Kristín Waage 5. -E Björn Björnsson 4. -Y Þráinn Bertelsson 4. -B Jón Örn Marinósson 3. -H Abyrgðarmaður : örnólfur Thorlacius, kennari Forsíðumynd gerði Karólína Lárusdóttir Skreytingar annaðist Björn Björnsson sem hefur mest verið áberandi. Tveir mál- fundir hafa verið haldnir og tvær málsvarn- ir, einnig klúbbkvöld og kynningar. Það sem mesta athygli vekur við starfsemi Framtíðarinnar, svo og annarra félaga,er, hversu þátttaka er léleg. Allur meginþorri nemenda virðist vera gjörsneyddur áhuga á félagslífinu. A málfundi og listkynningar kemur venjulega 40-50 manna hópur og er það yfirleitt sama fólkið. Astæðan til þessa ófremdarástands er eflaust margþætt. Alltof mikill fjöldi nemenda í skolanum veldur því að nokkru, þvx skemmtilegur fé- lagsandi skapast síður í slíkum grúa. En höfuðorsökin er eflauSt sú lognmóða og deyfð, sem alls staðar ríkir og gildir það jafnt um þjóðina alla sem Menntaskólann. Það væri því full þörf á því að stokka upp alla félagsstarfsemi hér í skólanum. Það á að þrengja starfsemi félaganna, tak- marka inngöngu í þau og kappkosta að hafa þar aðeins þá meðlimi, er taka fullan þátt í starfseminni. Það er alltof mikið reynt að gera öllum til hæfis. Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd, að alltof mikill hluti nemenda vill enga samleið hafa með félögum sfnum,eða er svo innantómux; að engin félagsstarfsemi fellur þeim í geð. Ef tryggt væri, að aðeins þeir, er sannan áhuga hafa,fái að taka þátt í félagslifi okk- ar, er ég viss um, að allur skólabragur myndi breytast til batnaðar og eins og allir mega sjá, er ekki vanþörf á slíku. Reykjavík, 18.nóvember 1962. Júníus H. Kristinssorx

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.