Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 10.11.1962, Síða 15

Skólablaðið - 10.11.1962, Síða 15
-79 - eru það fáeinar athugasemdir. Mér er öldun^is ókleift að skilja hvers vegna ritstjóri leyfir að innstu helgidómar og hinn fegursti arfur félagslífs nemenda séu ausnir auri í Skólablaðinu. Þá má nefna hinn herfilega buning þessarar svívirðu, en hann einkennist af orðunum áðurnefndur, fyrrnefndur, margnefndur og framangreindur. Einnig er sérvizka og fordild í stafsetningu og stíl þessar- ar greinar með öllu óþolandi. Dómur: Viðurstyggð. Blekslettur eru vel skrifaðar af Friðriki Sophussyni. Ég er ekki nálægt því sammála honum alls staðar, en auð- vitað læt ég hann njóta sannmælis sem aðra. Dómur: Þátturinn er skemmtilegur aflestrar. "Afengi" er kvæði eftir H. J. Það er vel kveðið og fyndið. Væri óskandi að fá að heyra meira frá þessum ljóðar- smið, því ljóst er að hér er maður vel hagmæltur á ferð. Dómur : Létt og skemmtilegt. Dandimannaþátturinn er helgaður Maríu Kristjánsdóttur. Það mun vera Vésteinn Lúðvíksson, sem hann ritar. Þátturinn er frábært hrákasmíð og gert lítið úr eins ágætu efni. Ég held,að hinar sönnu sögur um Maríu, séu miklu skemmtilegri en þessi lygi. Dómur: Fremur hvimleitt, þó ör- fáir neistar. r Skólablaði þessu lýkur Andrés Indriðason grein frá fyrra blaði. Grein- in nefnist Herranótt - upphaf íslenzkrar leiklistar. Ekki hefði skaðað að orða titilinn vægar, þar sem vitað er meira um þetta efni en greinin gefur til kynna. Andrés gerir sig sekan um það vafa- sama athæfi að nefna ekki heimildarit sín, en ljóst er, að hann hefur gögn í höndum, sem hann vitnar í, einkum þó í fyrri hluta greinarinnar. Sjálfur veit ég um a.m.k. þrjú þessara heimilda- rita. En vissulega var mér akkur í þessari grein, sérlega þó í því, sem sagt var frá eftir 1871. Upp úr því fer Andrés þó því miður fljótar yfir sögu en áður. Það hefði glatt mig að fá sögu Herranætur á síðustu árum ná- kvæmari. Því skora ég á fróðleiks- manninn Andrés að skrifa^ sérstaka grein um það. Þessi ritgerð þótti mér tekin saman á snoturlegasta hátt annars. Dómur : Hin ágætasta grein. Litill pistill nefndur Menntaskóla- jazz, undirritaður af Birni Björnssyni, tilkynnir mönnum stofnun jazzklúbbs inn- an Framtíðarinnar. Eins og kunnugt er hefur Framtíðin fóstrað vormenn íslands , en byrjar nú með þessu fóstur trumbu- sláttarmanna íslands. Þar eð þessi pistill er nánast auglýsing, felli ég ekki dóm um hann. Galeiðan heitir síðasta grein blaðsins og er vel unnin, þó hugmyndin sé göm- ul. Það er ekki oft sem ég les jafnvel unnar greinar í Skólablaðinu. Dómur : Með ágætum góð grein. Við lestur þessa blaðs þykist ég hafa orðið þess áskynja, að greinahöfundar vinni ekki nóg að sínu. Fer þetta stund- um svo illa, að þeir koma varla kló- drepi á aðalatriðin. Allir geta þeir ef- laust skrifað og ort vel, en hafa mættu þeir hugfast, að það kostar vinnu og aftur vinnu. Ritað að beiðni ritstjóra og eftir beztu samvizku í nóvember 1962. Sveinbjörn Rafnsson CONVERSATION Einar Magnússon ( stendur frammi á gangi og er að skoða laskað skólaborð). Guðlaugur Tryggvi Karlsson ( kemur aðvífandi ). Guðlaugur Tryggvi : Komdu sæll,Einar. Einar : Komdu nú sæll. Guðlaugur Tryggvi : Um hvað hugsar þú svona stíft ? Einar (lyftir plötunni af borðinu og velt- ir fyrir sér ): Ég er að hugsa um þetta borð, hvort ekki megi gera við það. Guðlaugur Tryggvi (þungur á brún): Já, satt er það, örlög heimsins eru vanþakklæti.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.