Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 10.11.1962, Síða 19

Skólablaðið - 10.11.1962, Síða 19
- 83 - I. Myndir. LLMARGAR myndir settu svip sinn á fyrsta skólablað vetr- arins. Telja má víst, að lítt stoði að mæla gegn þeirri þróun, að ritað mál víki fyrir myndum á síðum blaðsins. Því á þess- ari öld vaxandi hraða vinnst æ sjaldnar tími til þess að lesa bækur, blöð eða annað ritað mál niður í kjölinn. Kemur það gleggst 1 ljós, hvað snertir lestur dagblaða. Má skjóta því að til gamans, að einn hinn ágætasti íslenzkukennara okkar var staðinn að hrapallegum mis- Sem fyrr segir voru margar myndir í fyrsta blaðinu í haust. Voru margar dregnar af mikilli kunnáttu, svo að vel mátti þekkja af þeim helztu embættis- ; menn skólans. En forljótar og ósmekk- legar fundust mér teikningar, er voru látnar fylgja greininni "íþróttir". Bera þær með sér, að höfundur þeirra, nem- andi x fjórða bekk, sé undir tvenns konar mjög ólíkum áhrifum. Eru þar annars vegar áhrif úr Egilssögu, er hann les um þessar mundir, en hins vegar ómenn- ingarrit amerískt, er Mad héitir, en það er réttnefni. Má vart á milli sjá,hvort má sín meir í huga listamannsins. skilningi á grein í íslenzku dagblaði, er hann hafði lesið svo flausturslega. Sézt af því, að flestir eru breyzkir, hvað þessu viðvíkur. Til þess að svara þeirri kröfu tím- ans, að allur lestur skuli taka stuttan tíma, er gripið til tveggja óyndisúrræða. Annað er að stytta ritaðar heimildir, svo sem framast má verða eða jafnvel umrita þær frá upphafi, því að höfundur er sagð- ur of orðmargur, tína til aukaatriði x stað þess að stikla á stærstu steinum, Heitir slíkt á nútímamáli að færa.í 1 sam- þjappað form". Hitt er að láta myndir koma í lesmáls stað að einhverju eða öllu leyti. Gott dæmi um hvorugtveggja er dagblað, er gefið var út í Reykjavík á liðnu sumri. Auk þess, að blaðið hét MYND, var það yfirlýst stefna útgefenda þess að birta stuttorðar fréttir og frá- sagnir, engu af rúmi blaðsins skyldi var- ið í óþarfa sparðatíning. En þessi nýlunda hlaut ekki slíkar við- tökur sem til var vonazt, og bendir það til þess, að enn séu íslendingar ekki orðn- ir þessari uggvænlegu þróun að bráð. Er þess þá að minnast, að hin víðfræga frá- sagnarlist, er varðveitzt hefur með ís- lendingum um aldaraðir, er allt annars eðlis eja þessi nýi og framandi frásagnar- háttur. Snorri eða lærisveinar Neumanns hins ameríska. Mörgum mun og hafa komið spánskt fyrir sjonir, er þeir sáu Skalla- Grím með hár x herðar niður á mynd hins unga snillings. II. Esperantó. A þessu ári eru 75 ár liðin síðan út komu x Póllandi x bókarformi tildrög að alþjóðamáli. Höfundur nefndi sig Doktoro Esperanto. Nú veit hvert mannsbarn, að þessi maður var pólski Gyðingurinn og læknirinn Zamenhof ( 1859-1917 ), og að dulnefnið hefur flutzt yfir á málið, sem heitir esperantó. Zamenhof mun ekki fyrstur manna hafa fengið hugmynd um alþjóðamál, heldur hafa bæði fyrr og síðar ýmsar al- þjóðatungur skotið upp kollinum, en eng- in þeirra hefur hlotið slíkar vinsældir og almenna útbreiðslu sem esperantó. Um víða veröld starfa félög áhugamanna um esperantó, og esperantistar hafa með sér alheimsþing. Ymis alþjóðasamtök hafa farið að dæmi Þjóðabandalagsins gamla og tekið esperantó x þjónustu sína. Víða er esperantó kennt í skólum, þó að svo sé ekki hér. Um gildi alþjóðamáls hefur meira

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.