Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.12.1962, Page 5

Skólablaðið - 01.12.1962, Page 5
- 97 - smáborulega heimskuleg er hverjum manni skylt að vera vel á verði, því ótalmörg dæmi færa okkur heim sanninn um,að slikt atferli getur verið mikils vísir. En lotning fyrir hernaðarstyrk stór- veldanna er ekki það eina, sem smáþjóð ber að forðast. Of náin tengsl við tungu eða menningu stórþjóðar er jafn- vel ennþá hættulegra, því slíkt varðar ekki aðeins hégómagirnd og tildur- mennsku, eins og hernaðardýrkunin, held- ur snertir sjálfa undirstöðuna, þjóðar- sálina, menningarástand og hugsanagang allan. Það er alls ekki út í hött, að mörg stórveldi hafa lagt kapp á að upp- ræta tungu og menningu þeirra þjóða, er þau hafa undirokað. Þeim hefur verið kunn sú staðreynd, að bezta ráðið til fullkominnar ánauðar, var að gleypa smáþjóðina blátt áfram með huð og hári, láta hana hverfa inn í aragrúa milljón- ana og samlagast þeim. Þetta er hin algjöra tortíming. Hætturnar, sem eru samfara nánum menningartengslum stórr- ar þjóðar og lítillar, eru margvíslegar. Hin skrautlega pjáturumbúðamenning stórveldana gengur auðveldlega í augun á þeim veikgeðjuðu og getur áður en varir helsýkt mestalla þjóðina, einnig er sú hætta við of einhliða samskipti, að menning hins smáa staðni, er listastefn- ur og menntastraumar eru móttekin án úrvinnslu og gagnrýni. Þegar allt þetta kemur saman, er þjóðerninu hinn mesti háski búinn. Hugarfarið spillist, svo menn sætta sig við að lifa af náðar- brauði stórþjóðarinnar, ef ekki hreinum snikjum. Hugsanahátturinn verður furðu- legt sambland af ósannri þjóðerniskennd og skriðdýrahætti fyrir hinum erlenda ofjarli, allt einkennist af því að þiggja og þakka, en trú á eiginn mátt og getu dofnar að sama skapi. Illa er su þjóð komin, er slíkt hendir. Hún er raun- verulega í andaslitrunum. Enda þótt hún hafi allt ytra form sjálfstæðis og lands- réttinda, er hún dauðadæmd. Þegar hið innra sjálfstæði er horfið, er undir hæl- inn lagt, hvenær hún bætist í tölu þeirra þjóða, er voru til en eru það ekki leng- ur, nema í gömlum sögubókum. II. Ég hef nú lauslega lýst þeim helztu hættum, er smáþjóð stafar af of náinni sambúð við erlent stórveldi, og kem ég þá að því atriði, sem raunar er kjarni þessa greinarkorns. Þ. e.a. s. aðsíaða íslendinga og þau vandamál, sem risið hafa við þróun undanfarinna ára. Við íslendingar erum í hópi þeirra smáþjóða, er hafa nána sambúð við er- lent herlið. Um aðdraganda eða nauðsyn þess óhappaverks, að leigja íslenzkt land undir erlend strfðstæki, ætla ég ekki að ræða að sinni, enda ekki vettvangur fyr- ir slxkar umræður hér. Hins vegar ætla ég að drepa á þær uggvænlegu afleiðing- ar, sem dvöl hinna amerísku dáta, svo og of náin tengsl við Bandaríkin, hefur haft á íslenzkan hugsanahátt og menn- ingu. Það má með sanni segja, að á tíma- bilinu eftir heimsstyrjöldina fyrri hafi Islendingar verið einna sjálfstæðastir. Enda þótt þeir hefðu ennþá konungs- samband við Danmörku, var það nánast formsatriði, sem litlu máli skipti fyrir innlenda þróun. A þessu timabili var hin mesta grózka í menningarlífi okkar, nýir straumar að utan veittu lífslofti inn í íslenzkar bókmenntir, Þá áttum við marga afbragðs listamenn, er þá hófu listabraut sína og hafa allt til okkar daga borið höfuð og herðar yfir yngri félaga sína, sem standa á ótraustari grunni. Að vísu voru atvinnumál okkar ekki í sem beztu lagi, en straumar þjóðlífsins voru frjóir og vöktu menn til félagslegrar þátttöku og umhugsunar. En þegar upp úr seinni heimsstyrjöld- inni fór að síga á ógæfuhliðina. Við fór- um f æ ríkara mæli að halla okkur í vesturátt, bæði hvað viðskipti og menn- ingartengsl snerti, og hefur þetta sam- band orðið okkur til hinna mestu óheilla. Þessi nýja stefna, sem bæði birtist í hugsanagangi okkar og hegðun, hefur verið kölluð ameríkanismi. Ameríkan- isminn er raunverulega alþjóðlegt vanda- mál, sem gengur þó aðallega ljósum log- um í Vestur-Evrópu. Helztu einkenni hans eru pukrunarlaus gróðahyggja, þar sem ekkert er heilagt eða óhult fyrir löngum fingrum kaupfinnana, auglýsinga- skrum, þar sem spilað er á alla hugs- anlega strengi mannlegra tilfinninga. Nægja þessi einkenni ein til þess að sýna fram á, að hin alþjóðlega eða öllu

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.