Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1962, Síða 7

Skólablaðið - 01.12.1962, Síða 7
- 99 - sé stefnt í voða, ef við stöndum utan þessara samtaka. Ég ætla mér ekki að fara að bera fram röksemdir um hina peningalegu hlið þessa máls, það er þegar margrætt, en hins vegar ætti hverjum manni að vera ljóst, að engin af aðildarþjóðum banda- lagsins er líkleg til þess að veita fs- lendingum ívilnanir sér til óhagræðis, heldur munu þær vernda alla hagsmuni sína, sem þeim framast er unnt, og ekki skirrast við að grípa hvert tækifæri, sem þeim gefst til þess að bæta aðstöðu sina, og jafnvel beita kúgunum og þvingunum, ef svo bæri undir. Ég tel, að sérhver veruleg tengsl fs- lands við Efnahagsbandalag Evrópu séu hreinasta glapræði. Auk þeirrar stað- reyndar, að einhliða samskipti við stór- veldi hljóta að verða smáþjóð hættuleg, er eðli bandalagsins á þann veg, að það eitt væri nægileg ástæða til þess að forðast samskipti við það. Þar að auki yrðum við, með tengslum við bandalagið, að skerða sjálfstæði okkar og afsala okkur landsréttindum, og enda þótt fjár- hagslegur ávinningur yrði einhver í svip- inn, ættu þau réttindi að vera heilagri en svo, að þau séu föl hæstbjóðanda. IV. íslenzkt þjóðerni er í meiri hættu nú en nokkru sinni fyrr í sögunni. Við höf- um að vísu lifað hin mestu hörmungar- tímabil, svo erfið, að við lá að þjóðin þurrkaðist út af völdum hungurs og harð- réttis. Það er hvorki hungur né harð- rétti á íslandi núna. Við dveljum við kjötkatlana, og sú dvöl virðist ætla að reynast okkur hættulegri en nokkur gat ímyndað sér. Nú höldum við jól, mammonshátíðina miklu. Nú er gósentími prjálprangar- anna. Nú seðjum við hungur smásálanna. Við leikum á hörpu og syngjum léttúðug kvæði meðan háskinn vofir yfir. Við kýlum vömbina og dæsum meðan jörð- in brennur undir fótum okkar. Við liggjum í bælinu og hrjótum, fljótum sofandi að feigðarósi. Islendingar! Það er helþytur í lofti. Skýin dragast að höfðum okkar. Vxgspár ^ a" Reykjavík, 9. des. 1962. Júníus H. Kristinsson SKÖLABLAÐIÐ Gefið út í Menntaskólanum í Reykjavík Ritstjóri : Júníus H. Kristinsson 5. -B Ritnefnd : Þorbjörn Broddason 6. -X Kristín Waage 5. -E Björn Björnsson 4. -Y Vésteinn Lúðviksson 4. -B Þráinn Bertelsson 4. -B Jón Örn Marínósson 3. -H Abyrgðarmaður : Örnólfur Thorlacius, kennari Forsíðu teiknaði ölafur Gíslason og nefnist hún Gleðileg jól. Skaupdrætti gerðu þeir Hermann Jóhannesson og örlygur Richter. Skreytingar annaðist Björn Björnsson. Náttúrufræði í 5. -B Eyþór : . . . sé of litið af þessum hor- mónum, er hætt við að menn verði hálfgerðir idiótar, þ. e. andlegir aumingjar. En þetta er hægt að lækna. Guðlaugur skellir upp úr. Eyþór : Já, það er ástæða til að gleðjast yfir því ! N o t i ð jólaleyfið til þess að skrifa SKÖLABLAÐIÐ

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.