Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.12.1962, Page 18

Skólablaðið - 01.12.1962, Page 18
110 - URÐULEGUR var sá sam- setningur, ser birtist um áfengi í l.tbl. Skólablaðsins og enn furðulegri sú "þakk- argjörð", sem höfundur hans helgar mér í síðasta Skóla- blaði. Tilefni þessa eftirmála var rit- dómur, er ég reit að beiðni Júníusar í 2.tbl. Drap ég þar m. a. á framan- greindan áfengispistil eftir G. K. og deildi a óviðurkvæmilegt orðbragð höfundar. Gegn dómi þessum reis G. K. öndverð- ur, geystist fram á ritvöllinn og mátti vart vatni halda af reiði og vandlæting. Nefndi hann orð ritdómarans "örlaga- dóm" og kvað hann sprottinn af "annar- legum hvötum" og "niðurrifsgirnd". Tomst honum sú atlaga heldur óbjörgu- lega, því að skammaryrði til handa rit- dómaranum virtust skipta meginmáli, svo að vart mátti í milli sjá, hvort væri hættulegra ritdómarinn eða áfengið. Að sjálfsögðu mun svo alvarlegt mál ekki látið liggja í þagnargildi og mun ég nú, að skrifuðum þessum inngangsorðum, vikja nánar að umræddri athugasemd G.K. Hann kemst m. a. svo að orði, að "feigðarglíma" mín "við pennann" gangi út á það að "vega aftan að ímynduðum annmörkum í tjáningu", en af málefninu, þ. e. áfenginu, standi mér beygur. Hvað hina "ímynduðu annmarka í tján- ingu" áhrærir, vil ég hvetja menn til að lesa þessa margfrægu grein ( bls. 8 ) og dæma svo sjálfir. Mun þá ekki mörgum sýnast, að talsverða dirfsku þurfi til að lata annað eins fyrir alþýðu sjónir? Ekki ber samt að skilja ritdóm minn þann veg, að ég sé að mæla áfenginu bót. Jafnvel favísir menn gera sér það ljóst, að þar er bölvaldur á ferð, ef neyzla þess fer út fyrir skymsamleg tak- mörk. Ég mótmælti aðeins þeirri hroðalegu meðferð, sem málefnið fékk hjá greinarhöfundi. Ef G. K. heldur, að hægt sé með ofstæki og ruddalegu orð- bragði að "eyða þessum óskapnaði", þá skjátlast honum hrapallega. Reyndin er sú, að menn láta sér slík skrif í léttu rúmi liggja. í þessu sambandi vil ég vekja athygð manna á ágætri grein eftir J. S. ö. í 2. tbl. undir yfirskriftinni "Galeiðan". Þar er sama málefni á dagskrá ( að vísu ekki sneitt að nemendum skólans ), en sá er munurinn, að þar er það sett fram á snjallan og áhrifaríkan hátt, sem vekur alþýðu til umhugsunar. Þeirri staðhæfingu G. K. , að mikill meirihluti nemenda drekki að meira eða minna leyti, leyfi ég mér að mótmæla. Þetta eru vítaverð osannindi og um leið vafasöm auglýsing fyrir skólann út á við. Ennfremur segir hann, að þar sem nem- endur komi fram utan skólans sé hegðun þeirra að jafnaði lakari en annarra. Eftir próf segir hann, að þeir hagi sér eins og skynlausar skepnur. Þessi um- mæli eru hrein móðgun við okkur nem- endur. Reyndar efa é^ stórlega, að G. K. sé skynbær á þessi mal, - a.m.k. hef ég ekki orðið hans var á skemmtisamkom- um, sem menntaskólanemar hafa prýtt með nærveru sinni. Því skal ekki neitað, að finnast munu svartir sauðir meðal hinna 850 nemenda skólans, en það er sem betur fer fá- menn hjörð, og hefur hún hingað til rúm- ast öll á Skalla með góðu móti. Menn hljóta að sjá, hversu fráleitt það er og ósmekklegt að dæma heildina eftir fram- komu örfarra undantekninga. Ekki ætla ég að elta ólar við þær ill- kvittnislegu glósur í minn garð, sem G. K. telur vænlegar til fylgis málstað sínum. Er slíkt athæfi fremur illa þokk- að af alþýðu. Alvarlegast er þó, að greinarhöfundur segir ekki til nafns, en í skjóli þess er vissulega hægt að láta allt fjúka. Vissi ég engin deili á mann- inum, fyrr en óljúgfróður maður tjáði mér, að hér ætti í hlut valinkunnur frið- semdarmaður með háa greindarvísitölu, að nafni Gylfi Knudsen í 5. -D. Hafa honum kunnugir menn látið í ljós undrun

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.