Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.12.1962, Side 19

Skólablaðið - 01.12.1962, Side 19
- 111 sína yfir þessum skrifum hans og telja þau gefa ranga mynd af hans innsta eðli. Ég vil ekki trúa öðru, því að ekki sæmir gáfuðum unglingi að láta hafa eftir sér annan eins munnsöfnuð á prenti. Þegar Gylfi hefur tamið sér hófsemi í málflutningi sínum, munu menn hlýða á mál hans með athygð. Gífuryrði og ásakanir eru miður heppileg hvatningar- orð og lítt vænleg til árangurs nema síður sé. Reykjavík, l.desember 1962. Andrés Indriðason JOLAHUGLEIÐING, frh. af bls. ÍOÍ. á allan þennan barnaskap um útópíuna ofar skýjum, til þess að gera guði sín- um fremur hátt undir höfði í desember- lok en aðra daga ársins. Skulu þeir ekki lifa í nánu samneyti við hann hvern dag, hverja stund ævi sinnar, jafnt um jólin sem endranær? 'Sfmsum kann að þykja sem fulllangt sé gengið í jólagleðskapnum nú orðið. Þó að það sé góðra gjalda vert að fá einu sinni rækilega magafylli og það veiti innri fullnægju að sjá rándýr leik- föng speglast í björtum barnaaugum, þá getur það verið hollt, bæði pyngjunni og öðrum líkamshlutum, að stinga við fót- um annað slagið og hyggja að, hvort ekki sé rétt að gæta nokkurrar stilling- ar, jafnvel þótt jól séu í nánd. Fjöldi manna er mér sagt að lifi um efni fram yfir hátíðarnar, aðallega sakir höfðing- legra jólagjafa þeirra. Þeir um það, þó illt sé til að vita, naumast er ástæða til að fetta fingur út í háttsemi þeirra, ef þeim líður betur eftir en áður. Ég á tvo ágæta menn að vinum, annan þeirra henti það á aðfangadagskvöld jóla eitt sinn, að hann fékk til matar ásamt fjölskjrldu sinni soðna ýsu. Hja hinum er það fastur liður í helgi- haldinu hverju sinni, að hann liggur með hljóðum á fleti sfnu sakir magaverkja mestan hluta jóladags. Megi ykkur auðnast að finna meðal- veginn. 11. desember 1962. Þorbjörn Broddason

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.