Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.12.1962, Side 23

Skólablaðið - 01.12.1962, Side 23
-115 - Voru ferðir þessar stórfróðlegar og gerðu ráðstefnuna bæði lifandi og skemmtilega. Einnig kynntumst við borg- inni miklu betur á þennan hátt en annars hefði orðið. Ekki reyndu ítalarnir neitt að leiða fram hjá okkur það, sem miður fer í borginni, heldur sýndu okkur ýmislegt, sem maður skyldi halda, að ekki væri hægt að sýna útlendingum kinnroðalaust. Virðist fátæktin vera gífurleg á mörgum stöðum þarna, einkum þó í Borgata fá- tækrahverfunum. Þó vakti það athygli okkar, að upp úr mörgum hrörlegum kof- anum teygði sig sjónvarpsloftnet eða gljáfægður Fiat stóð fyrir framan. Þegar við spurðum að því, hvers vegna fólkið byggi í svona hjöllum, ef það hefði efni á að eiga bíl og sjónvarp, þá fengum við það svar, að það væri ánægt með að búa svona og kærði sig ekkert um að flytja í nýbyggingar þær, sem ítalska ríkis- stjórnin er að láta reisa í stórum stíl í Róm, til að reyna að bæta úr húsnæðis- skortinum. Eru byggingarframkvæmdir svo miklar, að byggingariðnaðurinn er stærsta atvinnugreinin í borginni. Sem dæmi um hina öru stækkun borgarinnar má nefna, að meir en 300 nýjum götum er gefið þar nafn á ári hverju. Ekki er þó öllum byggingum sinnt sem skyldi, t. d. er skorturinn á skóla- húsnæði gífurlegur. Þannig vantaði árið 1961 1700 skólastofur fyrir börn á barna- skólaaldri og 950 fyrir gagnfræðaskóla- stigið. Einnig er öll þjonusta eins og strætisvagnaferðir og verzlanir mjög ófullkomin í þessum nýju hverfum enn sem komið er. A þessum ferðum okkar um Róm kom- um við á alla merkustu staði borgar- innar: Forum Romanum, Capitolium, Colosseum, kirkju heila^s Péturs o. s.frv., en til að lengj'a ekki frasgögnina um of ætla ég ekki að fara nánar út í þá sálma hér. Kvöld eitt var okkur öllum boðið í útióperuna Terme de Caracalla. Um tíma leit þó helzt út fyrir, að ekkert yrði úr för þangað, því um sjöleytið um kvöldið skall á þrumuveður með tilheyr- andi eldingum og rigningu. Það stóð þó ekki lengi yfir og eftir á var loftið hreint og tært og hin kæfandi hitamolla, sem gerir manni þungt um andardrátt, horfin. Skilyrði voru því hin ákjósan- legustu. Héldum við til rústanna af böð- um Caracalla keisara, en á þeim er úti- óperan reist. Inn á milli hálfhruninna turna og veggja umvöfðum grænum vafn- ingsviði, er sviðinu, því stærsta í heimi, komið fyrir. Allt í kring teygja krónu- mikil tré sig upp í stjörnubjartan nætur- himininn og ljóskastarar, sem komið er fyrir af einstakri smekkvísi, varpa þægi- legum töfrablæ á umhverfið. Og í þess- um fagra og sérkennilega ramma sáum við óperuna La Traviata. Það er kvöld, sem seint gleymist. Þrjár opinberar móttökur voru hafðar fyrir okkur. Að kvöldi hins 31. ágúst hafði Segni Italíuforseti boð inni fyrir hluta þátttakenda, og 2. sept. veitti páf- inn okkur áheyrn í móttökusal sínum í Vatikaninu. Síðasti dagur ráðstefnunnar var 4. sept. Þá um kvöldið bauð vara- utanríkisráðherra Italíu okkur til stór- glæsilegrar móttöku í Villa Madame Martedi, sem stendur utan í hlíð Monte Mario í Róm. Þegar það sama kvöld héldu þeir fyrstu af stað heimleiðis, en daginn eftir var almennur heimfarardag- ur. Þá tvístraðist þessi glaði hópur, sem hafði lifað og starfað saman níu dásamlega daga í borginni eilífu. Var ekki laust við, að skilnaðurinn yrði sum- um sár og mátti sjá höfug tár hrynja af meyjarhvörmum. Allir hurðu þó á braut með þá von í brjósti, að mega hittast síðar á lífsleiðinni. Af mínum högum er það að segja, að ég dvaldist enn nokkra daga á ítaliu. Lagði ég land undir fót og hélt suður til Napóli, Pompeii og Caprí. Ekki ætla ég að rekja þá ferðasögu hér. Það verður að bíða betri tíma. Italíu yfirgaf ég svo þann 9. sept. og hóf ferð mína yfir þvera Evrópu með fyrsta áfangastað í Sviss og svo koll af kolli unz ég kom aftur til Reykjavíkur þann 19.sept. Það var sannarlega þægi- legt að stíga aftur á íslenzka grund eftir langt og strangt ferðalag og þrýsta hendur kátra bekkjarfélaga, sem tóku mér opnum örmum á flugvellinum. Sigurgeir Steingrímsson

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.