Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.12.1962, Qupperneq 27

Skólablaðið - 01.12.1962, Qupperneq 27
119 - auk þess að vera miklu algengara. "Fyrst sviðnar en seinna logar" er athyglisverð smásaga eftir s.j. , sem mér er tjáð að sé stúlka. Þessi saga virðist mér tvímælalaust bezt unnin af sögum þessa blaðs. Auk þess eru góðir glampar i frásögninni, ádeilan hörð" og hugleiðingar um lífið góðar. Ef skóla- systur okkar búa yfir fleiri slxkum sög- um, er sannarlega tími til kominn að þær birtist lesendum Skólablaðsins. Ljóð virðast hafa orðið útundan hjá þeim, er í þetta blað rituðu. Þó eru þar þrjú samákvæði og skal nú vikið að þeim. "í kirkjugarðinum" heitir kvæði Sig- urðar Richters. Höfundur virðist vart ætla sér af við efnis- og formsval. Efn- ið minnir mann nokkuð á kvæði Fjalla- skáldsins, Kristjáns Jónssonar, einkum "Grafarsöng". En ekki er þar leiðum að lxkjast. Nokkuð gætir þess, að höf- undur ræður ekki við háttinn og verður fyrir þær sakir ósamræmi í lengd vfsu- orða. Jón Sigurðsson semur Islandssögu 1 ljóðum. Hvernig var það, var ekki Steinn Steinar búinn að gera nógu vel í kvæðum sínum "Landnámsmaður ísland^' og "Mannkynssaga handa byrjöndum" ? Þ. P. H. hefir minnimáttarkennd og ger- ir þar af nokkrar vísur. Vísur þessar eru allvel gerðar, og efnið ekki sem verst. Kviðlingar fjuka fyrir litið. Mér virð- ist sem gildi hið sama um höfunda þeirra og bændurna- forðum : "þeir eru að slá og þeir eru að slá, þó þeir slái ekki. " Auk þessa eru í blaðinu auglýsingar og fimmaurabrandarar. Þótt ég hafi lítið að gert, nema rífa niður, er ekki þar með sagt, að ég sé óánægður með blaðið. "í heild sinni var ræðan góð", sagði karlinn, og sama gildir um Skólablaðið, séð frá mínum bæjardyrum. Að efni til er það fjöl- breytt, og þótt mér þyki ekki allt jafn- gott, kann ég ritstjóra og stjórn, svo og öðrum, er blaðið rita, beztu þakkir. Reykjavík, 4. des. 1962. Heimir Pálsson £ NOKKRRR PER-PfltllMNINCrHR FRtf li-DNU SUMÍl' A Ð þykir ekki tíðindum sæta, þótt lilÉ 7] skroppið sé yfir pollinn, svo hér verður sagt lítillega mfrá ferð um Fjallabaksleið, sem undirritaður fór með starfshóp einum, ásamt nokkrum menntl- ingxun s.l. sumar. Að sólbjörtu kvöldi, 6. júlí, var lagt af stað frá Skátaheimilinu í 5 langferða- bílum, en auk þeirra var einn vörubíll. Ekið var austur á Kambabrún, þar var dumbungsveður. - A Selfossi var stig- ið út úr bilunum, og arkað í Tryggva- skála. A Selfossi vorum við sambílung- ar litnir undrunaraugum ; og einhver jir innfæddra hölluðu meir að segja undir flatt. ( Hvað kom til? Viku fyrr hafði þessi bxll farið í kaf í Jökulgilsárkvísl hjá Landmannalaugum, og voru sæta- svamparnir ekki fyllilega þornaðir. ) Frá Selfossi var haldið austur yfir Suðurlandsundirlendið og numið staðar að ýmsum fögrum, friðsælum stöðum ( s. s. Seljalandsfossi ). Vestan Víkur í Mýrdal eru margar brattar brekkur og krappar beygjur, sem ýmsum hafa orðið að fjörtjóni. - Einhver hafði verið svo hugulsamur að panta kaffi að Hótel Vík, en þar var sezt að (kaffi )drykkju um miðnæturskeið. - Og þá var eftir sfð- asti áfanginn í gistingu, að Hrífunesi í Skaftártungu. Mýrdalssandurinn var lagður undir hjól, dökkur, með stöku

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.