Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 29

Skólablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 29
VIÐTAL VIÐ ÖLAF ODDSSON SA Ð er slagveður úti. ^ ■, Kolsvartir skýjabólstrarnir þjóta um himininn. Bílarnir fgfV sletta á mig forinni. Ég er á leið^// til ölafs Oddssonar og ætla að hafa við hann viðtal fyrir Skólablaðið. Er ég geng eftir Lækjargötunni berast til mín háværir tónar rokkhljómsveitar ofan frá Iþöku. Það er ljóslaust í skólanum. Skrækur rómur söng konu tekur skyndi- lega undir kvein- andi tóna saxofóns ins. Ég legg við hlustirnar: "Everything is twisting down .... everything is twisting down....." Menntaskólanemar halda upp á full- veldisdaginn. Eg hraða mér áfram. "Komdu til mín klukkan níu, " sagði ólafur, þegar ég falaði af honum við talið, "mér er illa við óstundvxsi. " Já, það er fullveldisdagur íslendinga. Nokkrir illa klæddir línglingar standa i höm fyrir utan sjoppu og virðast bíða eftir einhverju. Ég er orðinn hundblautur, þegar ég kem auga á húsið, fallegt hús í Haskóla- hverfinu. Ég drep á dyr. "Já, það er margs að minnast úr skólanum, " segir ölafur, þegar við höfum komið okkur vel fyrir, og ég inni hann eftir skóla- dvölinni. "Ég man ennþá eftir hinni miklu eftir- væntingu, sem ríkti hjá okkur busum, þegar við settumst í skólann. Við bjugg- umst við mestu herlegheitum, en urðum að sjálfsögðu fyrir vonbrigð*- um. Ekki var okkar árgangur nein undan- tekning, hvað busa- komplexa snerti. Við sáum drauga í hverju horni, sem vildu ræna okkur þýðingar- miklum mann- réttindum, og okkur svall móð- ur í brjósti, er við heyrðum slettur efribekk- inga. Maður stóð jafnvel upp á fund- um til þess að mótmæla og hefur það verið bokað mér til háðungar. Við vorum eins og busar hafa alltaf ver- ið, fullir af minni- máttarkennd, sem birtist í því, að okk- ur fannst stöðugt einhver vera að of- sækja okkur og sner- umst þá vitaskuld til varnar. Þó var töluverð alvara í þessu, þegar ég var í 3. bekk, því þá var kosninga- réttur busa takmarkaður. Við Haukur Henderson börðumst einna hraust- legast á móti þessari kúgun og var oft lif í tuskunum. Vmislegt skoplegt kom oft fyrir, t.d. man ég eftir þvi, að Ölaf- ur Grímsson, þá nýkominn í 4. bekk,tók upp á þvi að kalla mig unga manninn,

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.