Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1962, Síða 33

Skólablaðið - 01.12.1962, Síða 33
- 125 - Mikið þótti þá sem nú til orðheppni hans koma, og hrukku oftla gullkorn af vörum hans. Eitt var á þessa leið: "Stað- reynd er staðreynd. - Það er staðreynd. Þar af leiðir, að ég er alls ekki ég sjálfur, - ég er staðreynd. " Tryggvi stofnaði m. a. félag, sem hann nefndi Hugsjón. Sjálfur lýsti hann markmiði félagsins þannig: "Félagið var stofnað á þeim grundvelli að stuðla að auknum félagslegum þroska landsprófs- nemenda". Þvi miður var viðleitni hans misskilin og má segja, að félagsskapur- inn hafi fæðst x líkklæðunum. Til að sanna mikilhæfni hans á þessum tíma, skal þess getið, að eitt tölublað skólablaðsins var helgað honum. I 24 síðna blaði kemur nafnið Tryggvi fyrir 27 sinnum. Þegar Tryggvi settist í þriðja bekk Menntaskólans uppgötvuðu "efribekking- ar" hann mjög fljótt, og þess var getið í Skólablaðinu, að mikill spámaður væri í hópi busa. Orðskviðir hans voru óspart færðir í letur í Skólablaðinu. Hann hefur haft mjög mikinn áhuga á félagslífi nemenda og hefur gegnt ýms-^ um embættum, m.a. var hann questor" Framtíðarinnar í 4.bekk varð Tryggvi fyrir þátt Skíðaskálans góða, en þrátt fyrir stál- vilja tókst honum ekki að afsanna máls- háttinn gamalkunna, að "enginn er spá- maður í sínu föðurlandi". Einnig ber að geta þess, að engum skólafundi er slitið, án þess að Tryggvi hafi eitthvað til málanna lagt. Fimmta marz s.l. eignaðist Tryggvi son, sem skírður hefur verið Valdemar Karl. Tryggvi varð fyrir þeirri li'fs- reynslu að missa föður sinn ungur. Hann hefur búið hjá móður sinni,en systir hans, sem er gift, er farin að heiman. Þegar spurt er, hver séu helztu á- hugamál Tryggva, verður manni svara- fátt. Með sanni má segja, að þau séu allt á milli himins og jarðar. Ef reynt er að draga þau helztu fram í dagsljós- ið, verður án efa efst á blaði félagsmál siðan söngur, skíðaiðkun, kvenfólk, knattspyrna og það að láta bera á sér. Ekki þarf Tryggvi að neyta örvandi lyfja til að láta bera á sér - eins og sumir -, enda er hann bindindismaður, bæði á vín Frægastur sinn í "byggingu" og tóbak, án þess að vera ofstækisfullur. Mörg orð hafa verið látin falla um Tryggva Karlsson, en flest heldur ómerkileg að mínum dómi, enda dettur mér alltaf Guð í hug, þegar ég hugsa um fyrirbærisskilgreiningu, en vegir hans voru einnig órannsakanlegir. Ég hefi af þessum sökum fengið í lið með mér nokkra kunningja hans. ölafur Jónsson segir : "Tryggvi er óendanlega löng keðja af komplexum, sem mynda antí-komplexa gegn sjálfum sér, svo að þeir breytast og nýir koma fram. Þannig gengur þetta endalaust. " Silja Aðalsteinsdóttir hefur orðið: "Fænomeninu Tryggva Karlssyni má líkja við sítrónustein í glasi með gini og greip: - Steinninn rokkar upp og niður í drxxkkn- um ( sveiflast á milli öfganna ), en heldur sig þó lengst af á botninum. " ölafur Gíslason sendir línu: "Nú eru af þeir gömlu og góðu dagar, þegar við Tryggvi Karlsson fórum saman á skíði upp á Hellisheiði. Ég ætla mér ekki þá dul að segja kost og löst þess mæta manns á opinberum vettvangi, sérlega þar sem ég finn mig ófæran um að veita hon- um þann vitnisburð, sem ég óskaði og verður væri, en mér og vonandi honum að meinalausu máttu hafa eftir mér þessi orð Þórhildar skáldkonu: "Era gapriplar góðir, nema síðr sé". " Tryggvi orkar á mig sem vatnsmikill, beljandi foss, sem með stórleik sínum sker sig úr auðninni. Hann er óbeizlað- ur og ótaminn, enda flæðir áin stundum yfir bakka sína fyrir neðan hann - þá bölva bændur -, en í góðu veðri, þegar regnboginn hangir yfir honum sem geislabaugur eða fallegur hattur, - þá lofa ferðamenn hann -. r framtíðinni hyggst Tryggvi nema verkfræði, og hver veit, nema að þá takist honum að virkja fossinn? Hér hef ég reynt að kunngera Tryggva Karlsson eftir beztu getu, en vera má að eitthvað vanti hér á , til þess að honum verði gerð verðug skil. Þess vegna vil ég slá varnagla í botn grein- arstúfs míns með orðum skörungsins sjálfs : " Því er alveg stolið úr mér, sem - ii eg man. Friðrik Sophusson

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.