Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.12.1962, Side 36

Skólablaðið - 01.12.1962, Side 36
- 128 - listaverkið og segir : "Þetta getur hver sem er. Heldurðu kannski að það sé einhver vandi að hrúga saman þessu járna og spýtnarusli, eða klessa litum hér og þar á léreft? " Nei, satt er það að vísu, það er eng- inn vandi að hrúga saman járni eða klessa litum, og þarna liggur einmitt hundurinn grafinn. Enginn nema listamaðurinn getur gert þessa hluti þannig, að úr verði listaverk. Þetta fólk virðist því ekki hafa útskýrt fyrir sjálfu sér á ýkja breiðum grund- velli þá hugmynd, sem felst í orðinu list. Þetta vesalings fólk hefur 1 skil- greiningu sinni alls ekki gert ráð fyrir þeim listamönnum, sem hafa kosið að slita af sér þá fjötra, sem natúralism- inn hélt þeim í, og skapa listaverk sín algjörlega eftir eigin höfði. Hvernig á lxka tónskáldið að fara að því að fylgja nákvæmlega eftir útlínum þess umhverfis, sem það semur tónsmíð- ar sínar í og jafnvel um? Nei, þetta fólk er ekki sannir aðdá- endur lista. Þar sem abstraktlistaverk getur ekki hrifið það, hlýtur það einnig að missa af dýpstu áhrifum hins hlutlæga listaverks. Það viðurkennir aðeins hluti, sem það getur skilgreint, það sér ekki nema lítinn hluta verksins, einungis hismið. Þar sem listaverk er sett fram án raunsæishjúpsins, sér þetta fólk ’ 7 i hvorki né finnur. Að vísu hefur and-abstrakt fólkið rétt fyrir sér í einu tilliti. Sem sé þegar það bendir á og fordæmir þær mann- fígúrur, sem hafa það fyrir iðju sína að hella litum á léreft og hjóla síðan yfir á þríhjóli eða viðhafa annan ámóta af- káraskap og kalla sig síðan listamenn. Gallinn er bara sá, að títtnefndur hóp- ur fólks heldur, að hann sé að taka dæmi um raunverulegan abstrakt listamann að verki. Það getur vegna sljóleika síns ekki greint á milli hins falska og þess sanna, og vegna þess að það hefur þetta hryggi- lega dæmi um afglapann fyrir sér, tekur það án umhugsunar afstöðu gegn abstrakt- listinni. Því skjátlast. Ég get ekki látið hjá líða að fara ör- fáum orðum um það hörmulega ódæðis- verk, er framið var hér í Reykjavík eigi alls fyrir löngu, og allir muna, er eitt af listaverkum þeim, sem komið hafði verið fyrir á almannafæri, "Hafmeyjan" eftir Nínu Sæmundson, var sprengt í loft upp. Þvílika virðingarleysi fyrir listum, þvílfk ruddamennska og tillitsleysi gagn- vart þeim, er skóp verkið - lagði í það hluta af sjálfum sér, hlýtur að valda manni hryllingi. Eina afsökunin fyrir þessum verknaði, er sú, að ódæðismað- urinn sé alger fáviti og dugar þó skammt. Hámark hneysunnar var þó, þegar heyra mátti á götuhornum dagana á eftir, að þetta væri ágætt. Helv. . . . sæ^ skrímslið hafði verið svo hundljótt, að gott hefði verið að losna við það, þetta væri það eina sem dygði o. s. frv. o. s.frv. Nokkrir lögðust meira að segja svo lágt að lýsa yfir stuðningi sinum við að hald- ið yrði áfram á sömu braut. Voru ýmis listaverk tilnefnd. Við lifum á þeim tímum, að aldrei hefur verið gert jafn mikið til að opna fyrir æskunni dýrðarheima listanna. Listkynningar eru haldnar í skólum, lestur á sýnishornum úrvalsbókmennta hafður að námsgreinum, haldnir sérstak- ir tónleikar sinfóniuhljómsveitarinnar og margt fleira. Sýnum að við kunnum að meta það. Slíkan hugsunarhátt, sem ég minntist á að framan, verður að uppræta og það erum við yngri kynslóðin, sem eigum að ganga fram fyrir skjöldu í því. Fordæmum molbúahugsunarháttinn. Upphefjum listina. Sigurþór Aðalsteinsson VIÐTAL, frh. af bls. 123. eftir að ég sá Ölaf leika hreppstjórann í Dal, í Htilegumönnunum, hafði ég það á tilfinningunni, að þeir væru ein og sama persónan. Er ég á heimleiðinni geng framhjá Iþöku, heyri ég aftur sömu skræku kven- mannsröddina og fyrr um kvöldið : .... Everything is twisting down....... everything is twisting down. Það er fullveldisdagur. „

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.