Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1962, Síða 40

Skólablaðið - 01.12.1962, Síða 40
- 132 - n | | | | | lvnn EjBNRRhHLf Nokkur heilabrot um skólafundi, félagslíf í skólanum, kvenfólk og fleiri þarflega hluti. YRIR skömmu upplifði ég þá mestu reynslu, sem ég held að möguleg sé hér í skólan- um. Ég for sem sé á'skóla- fund. Eg hafði áður lifað í þeirri góðu trú, að þetta væru mestu og beztu fundir skólans, verið bálvondur yfir því, að busar skyldu ekki sækja fundi þessa o. s. frv. En því tek ég mér penna í hönd, ekki til að hrósa þessum ágæta fundi, þvf að hann brást gersamlega vonum minum, og ég sá ekkert smáat- riði úr fundi þessum, sem ég tel hrós- vert, heldur til að lýsa andstyggð minni á þessum mesta skrípaleik, sem fer fram innan skólans veggja. Ég sé ekki ástæðu til að rekja gang þessa fundar, sem haldinn var 28. nóv. , en ætla mér að geta helztu galla og ein- kenna fundarins. Fyrsta atriðið, sem mér kemur í hug, er að fundurinn einkenndist af lé- legri stjórn eða öllu heldur, stjórnleysi. Sökin er hjá inspector, sem er vægast sagt mjög lélegur fundarstjóri. í öðru lagi: A fundinum voru nokkr- ir menn, sem óðu uppi í blóra við inspector, sem alls ekki hafði hemil á þeim. Þessir sömu menn, sem létu svo mikið á sér bera, sjálfum sér til ánægju, öðrum til leiðinda, gerðu sig að fíflum hvað eftir annað, og það svo oft, að maður neitaði að lokum eiginlega alveg að trúa því, að hér væru á ferð- inni menntaðir menn, hvað þá þegar sjöttubekkingar áttu í hlut. Þá má nefna það einkenni, hvað ræðumenn eiga erfitt með að halda sér við efnið. Þetta á reyndar við alla fundi í skólanum og vík ég að því síðar. Einnig ber mikið á ýmsum hártogunum um smávéegileg efni og þar við bætist, að enginn veit hvað eru lög og hvað ekki, því ekki eru allir á einu máli um ágæti lögbókar þeirrar, er nemendur fengu í haust. Fámenni var á þessum fundi og undraði mig það sízt, vegna þess hve fundurinn var leiðinlegur. Annars sögðu eldri bekkingar mér eftir þennan fund, að þetta væri einn með þeim skárri. En hvernig eru þeir verstu? Nú. Það sem vekur athygli manns á samkomum Framtíðarinnar er fyrst og fremst hin dræma fundarsókn. Reikna má með að ca. 40 sömu mennirnir sæki alla málfundi og svo eitthvert slangur fyrir utan þá. Haldnar eru ca. 20-25 ræður. Ræðumenn eru alltaf þeir sömu, ca. 12 menn. Ég er nú reyndar á móti talningu andlegra verðmæta ekki síður en Júníus ritstjori, en verður þó stundum á að grípa til hennar líkt og honum. En af þessum töl- um sést glögglega sá andlegi stirðleiki eða öllu heldur það sinnuleysi, sem hvílir yfir skólanum. Það ætti að vera hverjum til góðs að ræða almenn málefni, eins og gert er á málfundum, og þar gefst mönnum kostur á að æfa talanda sinn. Einnig er leitt til þess að vita, að kvenfólkið, (sem hefur nú stundum fengið orð á sér fyrir nfælgi), mætir mjög illa á málfundum og. talar sára sjaldan. Það,sem af er þessu skólaári, hefur aðeins ein einasta kven- persóna vogað sér í pontu á málfundum Framtíðarinnar. Við öðru var nú reyndar hægt að búast, því síðastliðið vor var stúlka í framboði við inspectorkosningu. Hefðu þá einhverjir ætlað, að öflug kven- réttindahreyfing fylgdi í kjölfarið. Og vissulega vekur það undrun, að kven- fólkið hefur líklega sjaldan eða aldrei verið sinnulausara en nú um félagsmál skólans. Forystumenn félaga í skólanum Frh. á bls. 134.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.