Skólablaðið - 01.02.1972, Qupperneq 46
130
Sigurður : Þessar kreppulegu stöður hafa skap-
azt fyrir það, að hvergi á leiðinni f gegnum
skólana er okkur gert að vinna og hugsa upp á
eigin spýtur. f okkar skóla eru tii dæmis ekki
til sjálfstæð vinnubrögð nemenda. f rauninni er
sjálfstæði þeirra yfirleitt herfilega misboðið.
Guðmundur : Það er vegna þess, að kennarar
almennt misskilja hlutverk sitt. Þeir halda, að
þeim beri að vera einhvems konar böðlar,
hverra hlutverk sé að neyða námsefninu inn f
nemendur. Sumir halda, að heppilegt sé, að
þeir lesi kennslubækumar upphátt f tfmum.
Kennarar eiga að vera eins konar leiðbeinendur,
sem vekja áhuga nemenda á námsefninu, til þess
eins að þeir sfðan geti byrjað sjálfstætt nám f
faginu með kennarann til aðstoðar, ef vandamál-
in eru þeim of erfið. Engu að sfður hefur
raunin verið sú, að nemendur með sjálfstæðar
vinnuaðferðir hafa verið illa séðir. Svona er
þetta frá upphafi skólagönguimar.
Eirfkur : Eg viðurkenni það, að svona hefur
þetta þvf miður lengi verið, enda hefur verið
og er jafnvel.ein helzta námsgrein f bamaskól-
um ögun, fólgin f þvf, að láta nemendur raða
skóm, hengja upp föt og standa f röðum. En
þetta hefur óhjákvæmilega komið fram f félags-
lffinu f samskiptum þögla meirihlutans og
embættismannanna. Og það, sem meira er,
er það, að félagslífið sjálft hefur f heild verið
ósjálfstætt gagnvart rektor. Leifar þess, er sú
staðreynd, að nemendur þurfa að jafnaði að fá
leyfi hans til að halda böll, vegna þeirrar venju,
að fara fram á frf f fyrstu tveimur tfmunum
morguninn eftir. Eg álft að félagslif nemenda
verði að vera og eigi að vera sjálfstætt gagn-
vart skólayfirvöldum. Það er svo sjálfsagt, að
við fáum afnot af húsum skóians til félagsstarf-
seminnar, að mér finnst beinlfnis hlægilegt að
þurfa að biðja rektor um leyfi f hvert eitt ein-
asta skipti.
Einar : Hver sem ástæðan kann að vera, þá er
það staðreynd, að nú koma menn ver undirbúnir
úr menntaskóla miðað við kröfur f háskóla
heldur en verið hefur. Það hlýtur að vera
fyrsta boðorð skólans að sjá nemendum fyrir
nægri menntun, hvernig sem spurningum um
sjálfstæð vinnubrögð verður svarað.
Arni: Það er gagnslaust, ef þeir geta ekki tjáð
sig á fullnægjandi hátt. Lýðræðisfyrirkomulagið
hefur illa sinnt þeirri skyldu sinni að móta
þegnana þannig, að þeim verði auðvelt og sjálf-
sagt að móta skoðanir síhar sjálfir, enda er
það nú komið á það stig, að það hefur engin not
fyrir sjálfstæða þegna.
Guðmundur : Þannig eru þeir, sem eru að
reyna að lappa uppá félagslffið með lýðræðisleg-
um vinnubrögðum að reyna að baka gott brauð
úr skemmdu mjöli, þar sem öll kennsla, allt
upp f háskóla, miðar að þvf að kenna nemend-
um að hlýða, en það mótar sfðan afstöðu þeirra
til félagslífsins.
Eiríkur : Starf embættismanna félagslffsins
miðast við það, að það er minni vinna að gera
hlutina sjálfur, heldur en að fá annað fólk til
þess.
Sigurður : Skólinn mótar okkur meir en við
gerum okkur grein fyrir, en hann speglar aftur
kerfið f heild sinni. Þess vegna er fulltrúalýð-
ræði félagslifsins afleiðing af sambærilegum
hlutum annars staðar f samfélaginu. Þessi
kreppa kallar á alhliða þjóðfélagsbyltingu, sem
er það eina, sem bjargað getur skólanum og
félagslffi okkar úr sjálfheldunni.
Eiríkur : Enda þótt ég efi, að slík bylting
leysti fyllilega vandamál fulltrúalýðræðisins,
þá er augljóst, að vakningar er þörf. Menn
þurfa að gera sér grein fyrir stöðu taflsins.
hð^smunati^twl'
Framleiðendur táningastólsins "Hrúgald" hafa
haft samband við hagsmunanefnd og bjóða nem-
endum M. R. stólinn á heildsöluverði, ca. 3330kr.
(búðarverð 4.500 kr.). Þeim, sem hafa áhuga,
er bent á að hafa samband við
Tryggve Thorsteinsson, sfmi 16972