SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Side 8

SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Side 8
8 22. maí 2011 Úrkoma mældist um 100 milli- metrar á Norðfirði síðasta sólar- hring og hefur líklega aldrei verið meiri á þessum árstíma. Hvítt verður og kalt á norður og austur- hluta landsins alla helgina. Einar Sveinbjörnsson segir að snjókomubakkar komi inn á land- ið úr austri í dag. Eins og fram kemur ofar á síð- unni hefur meðalhiti aukist á Ís- landi á síðustu árum, en vorin eru samt sem áður oft skrykkjótt. „Það hefur frekar teygst úr sumrinu í hinn endann og veturnir eru orðnir mildari. Enda er sjór oft mjög kaldur í maí og júní og stutt í hafís norðan við land, þó hann sé reyndar langt undan núna. En þó svo sólin sé farin að skína tölu- vert er umhverfið oft kalt. Það skýrir breytileikann í veðrinu; einn daginn getur verið sunnanátt og 15 stiga hiti, þann næsta norðan- átt með kulda. Í júní jafnast veðr- ið og hlýnar yfirleitt fyrir norðan,“ segir Einar, eins og til að hug- hreysta Norðlendinga. Hitamælirinn á Ráðhústorgi á Akureyri, sem sumir kalla lyga- mælinn, sést gjarnan í fréttum þegar gott er veður á sumrin. Ein- ar segist muna eftir myndum úr dagblaðinu Degi-Tímanum frá því í lok maí fyrir nokkrum árum, sem teknar voru með dags millibili. Á fyrri myndinni, sem tekin var 30. maí, sýndi mælirinn 20 stiga hita, en skv. þeirri seinni var hitinn ein gráða. Skjótt skipast veður... Skjótt skipast veður í lofti Eitt þarf að hafa hugfast fyrir göngu á Íslandi: að klæða sig vel. Morgunblaðið/Ernir Þ eim íbúum Norður- og Austurlands, sem héldu að hægt væri að miða árstíðir við dagatalið, brá í brún í gær- morgun þegar fór að kyngja niður snjó. Þeir sem eldri eru en tvævetur létu sér hins vegar hvergi bregða, enda ýmsu van- ir. Frá og með 15. apríl var bannað að aka um Ísland á nagladekkjum (nema annað væri ekki þorandi) og sumarið kom síðan formlega til landsins 21. apríl en vorin eru oft skrykkjótt. Elstu menn muna því verri tíð en nú er, meira að segja miklu verri. Einar Sveinbjörnsson veður- fræðingur segir að þrátt fyrir kuldann nú sé ekki útilokað að hiti verði yfir meðallagi í maí bæði fyrir norðan og austan. Það fari eftir því hve mikið hretið dregst á langinn. „Það var óvenjulega hlýtt framan af mánuðinum, sér- staklega fyrir norðan – langt yfir meðallagi – þannig að ef hretið verður ekki í marga daga er ekki loku fyrir það skotið að hiti verði yfir með- allagi. Hann gæti meira að segja orðið vel yfir meðallagi ef það hlýnar síðustu daga mán- aðarins,“ sagði Einar í gær. „Ef teygist á kuldanum er hins vegar vafamál hvorum megin hryggjar mánuðurinn lendir; hvort hann telst kaldur eða hlýr.“ Meðalhiti í maí er 6,3 gráður í Reykjavík en 5,5 á Akureyri. Síðustu ár hefur veður verið mjög gott í maí en árin 2006 og 2007 var kalt. Fyrra árið gerði mikinn hvell seint í maí eftir mjög gott vor og þá var sums staðar hátt í 30 cm jafn- fallinn snjór í Eyjafirði. Einar segir því alls ekki hægt að tala um að veðrið nú sé óvenjulegt. „Kuldinn virðist reyndar ætla að vara lengur nú en oftast í svona hreti og frost- ið verður líklega meira.“ Hann gerði ráð fyrir eins til þriggja stiga frosti um allt norðanvert landið í dag og á morgun. „Það verður frost al- veg ofan í fjörugrjót á Vest- fjörðum, og austur með norð- urströndinni en aðeins mildara austast á landinu.“ Hann segir vel þekkt að í maí sé hár loftþrýstingur og norðanátt. Hún sé þurr, gjarn- an frysti um nætur en hlýrra sé yfir daginn. Mývetningar þekki slíkt veðurfar vel, það sé einnig algengt í Öxarfirði og Þistilfirði. „Á köldu árunum, frá 1970 til 1990, skóf oft niður undir tún í maí eftir að snjóa hafði tekið upp og þótti engin tíðindi þótt frysti.“ Einar segir að frá því um miðjan tíunda áratuginn hafi hlýnað í veðri á landinu al- mennt, en það hafi þó aðallega komið fram á öðrum árstíma en að vorlagi. „Það má því segja að skrykkjótt vorkoma sé ein- kenni íslenska veðurfarsins.“ Hross við austanverðan Eyjafjörð híma í norðaustan áhlaupi sem gerði í lok maí 2006. Þá var 25-30 cm jafnfallinn snjór víða á Norðurlandi. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Skrykkjótt vor eru einkennandi Hiti hefur hækkað en kemur frekar fram á öðrum árstímum Vikuspegill Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.