SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Síða 10

SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Síða 10
10 22. maí 2011 7.00 Ég skríð með hálfopin augun á fætur og vek eldri stjúp- soninn Víking en hann á að vera mættur í skólann klukkan átta. Þetta er reyndar frekar óvenjulegt því hann vekur mig nú yfirleitt klukkan sex. Víkingur er A- maður. Ég er B-maður. Rannveig konan mín vakti í nótt til að sjá um Elías Hrafn þannig að ég tek vaktina fyrri part dags. Á meðan Víkingur borðar smyr ég fyrir hann nesti og tek til íþróttadótið. Síðan spjöllum við aðeins og ég kemst að því að hann er eitthvað slappur. Líst ekki alveg á hann og þó að hann sé ekki með hita skrifa ég miða fyrir íþróttakennarann. Ég sendi Víking síðan af stað í skólann. 8.00 Ég stelst til að kíkja aðeins á vinnupóstinn minn þó að ég sé í fæðingarorlofi og kemst að því að blaðamaður Morgunblaðsins hafði haft samband og beðið mig að skila skýrslu um dag í lífi mínu. Skemmtilegt. Ég svara póstinum ásamt nokkrum öðrum og hleð um leið niður nótum sem Daníel Þorsteinsson sendi mér fyrir tón- leika í Hofi á sunnudaginn. 8.30 Róbert kemur fram. Ró- bert er yngri stjúpsonur minn. Ég gef honum að borða og spjalla að- eins við hann. Svo hjálpa ég hon- um að klæða sig og skutla honum í leikskólann. Róbert vill fá að vera með húfuna inni á leikskólanum af því honum finnst nýja klipp- ingin ljót. Ég reyni að sannfæra hann um að hann líti vel út og sendi hann inn án höfuðfats. Ég held þó að hann hafi ekki trúað mér. 9.10 Á leiðinni heim kem ég við í kjörbúð, kaupi egg og mjólk og þegar ég er kominn heim skelli ég í eitt brauð. Það tekur brauðið klukkutíma að hefast og ég hendi í þvottavél, hringi í Eyþór organista til að staðfesta æfingatíma fyrir sunnudaginn og kíki á nóturnar sem Daníel sendi mér. 10.00 Rannveig og frumburð- urinn Elías Hrafn koma fram. Hann er með smákvef og ég fæ pínulítið hysteríukast. Við kom- umst þó að því að hann er ekki með hita og allt annað í lagi að virðist. Það getur borgað sig að búa með hjúkrunarfræðingi af barnadeild FSA. 10.30 Skelli brauðinu í ofninn, bý mér til tvöfaldan espresso og les Moggann. Bin Laden dauður? Kannski. Ég dreg það samt í efa. Yfir öðrum fréttum bölva ég óskil- greindum útrásarvíkingum. Von- andi verður allt í lagi með skólana. 10.45 Tek úr þurrkaranum og brýt þvottinn saman. Mér finnst þetta bölvað rugl að brjóta svona mikið saman. Hún er rúllari. Ég er krumpari. En Rannveig vill hafa þetta svona og eftir að hafa horft upp á hana fæða Elías Hrafn kvarta ég ekki yfir svona löguðu. Ég brýt bara saman hljóðalaust. Kudos mæður! 11.00 Tek mér smátíma í að vera aðeins með Elías Hrafn. Hann er dálítið óvær þannig að ég pakka honum inn í sæng og hossa mér með hann á rúmgaflinum. Það róar hann og eftir smástund sofnar hann. Ég horfi á hann. 11.30 Fer út á snúru og viðra sængurnar, tek rúmfötin inn og brýt saman. Hef til hljóðfæri fyrir æfinguna í dag og hlusta á lögin fyrir tónleikana á sunnudaginn.. Ég bý til nokkra mp3 úr síðasta Gestir út um allt-þætti og skelli á Facebook-síðu Hljómsveitar Hjörleifs A. Jónssonar. Mynd- irnar hans Þórgnýs af þættinum koma sér vel. 12.00 Rannveig gerir kaffi og við borðum brauðið sem ég bak- aði. Elías Hrafn sefur og við töl- um um hvert við ætlum í sum- arfríinu. Rannveig les það sem ég er búinn að skrifa og fær sam- viskubit yfir því að vera ekki búin að gera meira í morgun. Ég segi henni að slaka á. Hún var vakandi í alla nótt. Elías Hrafn vaknar, er hundfúll og Rannveig fer inn. 12.30 Jón Gunnar Þórðarson hringir og við förum yfir mögu- legt samstarf við Silfurtúnglið á næsta ári. Að því loknu geng ég frá og lakka lokaumferð á tvo af sex borðstofustólum sem ég keypti á slikk af Frúnni í Ham- borg. Þeir voru framleiddir á Ak- ureyri fyrir um 40 árum og ég er búinn að eyða nokkrum vikum í að koma þeim í stand. Það hefði sennilega kostað minni fyrirhöfn að fara í Rúmfatalagerinn en ég hef alltaf haft gaman af gömlum hlutum. Ég skora líka með þessu nokkra smákökupunkta hjá kon- unni, punkta sem ég þarf örugg- lega að taka út þegar allt fer af stað aftur eftir orlofið. 13.00 Næ í Róbert úr leik- skólanum og við förum saman í Bónus. Hann keyrir inn- kaupavagninn um eins og Form- úlu 1-ökumaður og pirruð móðir gefur mér illt auga. Síðan förum við í æfingahúsnæðið sem ég deili með nokkrum nemendum Tón- listarskólans og á meðan ég pakka saman hljóðfærum fyrir kvöldið spilar Robbi á settið. Við keyrum heim með fullan bíl af hljóðfærum. 14.30 Komum heim og ég tek eftir rispu á bílnum okkar. Það lítur út fyrir að eitthvert fífl hafi farið með lykil á hann. Eða kannski rak sig einhver í hann … Leyfum þeim að njóta vafans. Ég set í tvær vélar og brýt saman haug af þvotti sem safnast hefur saman á meðan Rannveig reddar smáslysi sem varð við heimkom- una. Kúkur, piss og hamingja. 15.00 Fer með Elías Hrafn í bað. Það er án efa hápunktur dagsins. Ég næ síðan að undirbúa kvöldmatinn áður en klukkan verður … 16.00 Ég er kominn á tveggja tíma æfingu fyrir barnasöngleik á Kirkjulistaviku í Akureyr- arkirkju. Æfingin gengur vel, krakkarnir frábærir og gaman að því hversu gott starf þau eru að vinna í kirkjunni. Æfingin klárast hálfsex þannig að ég næ að fara í sjoppu og fá mér samloku. 18.00 Kóræfing hefst. Ég tók að mér lítinn karlakór síðastlið- inn vetur og þykir gaman að vinna með þeim. Þetta er pro bono-gigg en gefur mér mikið. Við ætlum að syngja á Húsavík á laugardaginn. 19.00 Fer á vinnufund og að fundi loknum fáum við okkur bita. Lambalundir seint á mið- vikudagskvöldi bæta kannski ekki á samúðaróléttuna en að svo stöddu stendur mér á sama. 23.00 Ég skríð heim og kyssi Rannveigu. Strákarnir sofnaðir. Ég rétt næ fréttayfirlitinu á plúsnum, fer út á snúru og næ í þvottinn sem Rannveig hengdi út í dag, helli í eitt rauðvínsglas og horfi á tvo þætti af Curb Your Enthusiasm. Larry David er snill- ingur. Ég dett út af sæll og glaður eitthvern tíma á milli tólf og eitt … Þarf á fætur klukkan sjö. Dagur í lífi Hjörleifs A. Jónssonar skólastjóra í fæðingarorlofi Hjörleifur Örn Jónsson með hinn nýfædda Elías Hrafn í fanginu. Með á myndinni eru fóstursynir Hjörleifs, Víkingur, vinstra megin, og Róbert. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Brýt þvottinn saman hljóðalaust É g var að koma heim úr Spánarflugi, nánar tiltekið, frá Alicante, í fyrrinótt, sem þykir nú ekki sérstaklega í frá- sögur færandi á þeim tímum sem við nú lifum, þegar við Íslendingar erum að alltaf flengjast út um víðan völl, daginn út og daginn inn. Ég átti heimflug með Iceland Express-flugfélaginu, á sama hátt og ég flaug út með því fyrir tveimur vikum, til þess að hitta ætt- menni og vini. Það sem sló mig á heimleiðinni í fyrrakvöld (aðfara- nótt föstudags) var með hvaða hætti Iceland Express-flugfélagið ákvað að meðhöndla viðskiptavini sína og þess vegna vildi ég deila þessari litlu reynslu með ykkur, lesendur góðir. Það vildi ég ekki síst gera vegna þess að svo margir ferðafélaga minna vöktu athygli mína á því að margt mætti bet- ur fara í þjónustu þessa svo- nefnda lággjaldaflugfélags. Við sáum fljótt á skiltum í þessari glæsilegu flughöfn í Alicante (sem nota bene er stórglæsileg), að Iceland Ex- press-flugfélagið tilkynnti um hálfrar klukkustundar seinkun sem er nú ekkert stórmál þegar íslensk flugfélög eiga í hlut, eða hvað? En svo kom bara á daginn að þeir voru næstum því á tíma. Munaði bara örfáum mínútum. Það sem ærði mig hins vegar og særði var þegar, við, farþeg- arnir, þar sem hlutfallið var eitthvað vel yfir 90% Íslend- ingar, vorum komnir út í vél og íslenska flugfreyjan byrjaði að messa yfir okkur um örygg- isvarnir, í sérdeilis lélegu hátal- arkerfi flugvélarinnar á ein- staklega klénni ensku. Hún greindi okkur frá því, á ís- lensku, að vísu, að því yrði þannig háttað að þessu sinni að kynn- ingin um öryggisvarnir færi einvörðungu fram á ensku. En ef ein- hverjir hefðu spurningar yrði þeim svarað. Þetta fannst mér vera ótrúleg lítilsvirðing við megnið af farþeg- um, ekki síst þegar horft er til þess að stór hluti farþeganna á heimleið var eldri borgarar og kannski ekki með svo mikinn skiln- ing á enskri tungu. Ég óskaði skýringa frá flugfreyju sem átti leið hjá sætaröð minni og hún sagði að yfirflugfreyjan myndi skýra málið þegar við vær- um komin í loftið. Þá tók nú ekki betra við því yfirflugfreyjan sjálf kom og sótti mig, eftir að hafa verið á ráðstefnu í flugstjórnarklefanum, í grun- samlega langa tíð og hún vildi ræða þessi mál við mig frammi í flugvél – þýðist – þar sem aðrir flugfarþegar gætu ekki hlýtt á hennar mál og mitt. Maður hefur nú látið önnur slík smámál yfir sig ganga og því var það ekkert mál fyrir mig að elta yfirstýruna í það sæti sem hún vildi koma mér í. Hófst svo messa hennar sem var á þennan veg: „Við komum fljúgandi út núna áðan frá Íslandi og allir farþegar fengu örygg- isvarnakynninguna á íslensku.“ Ég svaraði fullum hálsi: „Það voru aðrir farþegar en þið eruð að flytja heim núna. Hvers konar fyrirlitning er fólgin í því af hálfu ykkar í garð meira en 90% farþega að þið skulið ekki flytja örygg- isvarnatöluna á íslensku? Er þetta ekki hreinræktaður dónaskap- ur?“ Hún svaraði að svo væri ekki vegna þess að enska væri alþjóðlegt tungumál í flugbransanum og því væri þeim skylt að flytja örygg- isvarnaupplýsingar á ensku ef enskumælandi farþegar væru um borð. Jafnframt upplýsti unga konan góða (að hámarki 28 ára gömul) mig um það að þetta hefði verið hennar persónulega ákvörðun því ef hún hefði látið flytja öryggisvarnartöluna einnig á íslensku hefði slíkt kostað 10 mínútna töf. Allir hlytu að sjá hvers konar tjón fæl- ist í slíku!!! Er ekki hér með komin skýringin á því að við, 90% far- þeganna frá Alicante, áttum enga heimtingu á því að fá öryggis- útskýringar á íslensku? Snérist þetta ekki bara um krónur og aura eins og fyrri daginn? Hvað segið þið, Pálmi Haraldsson og Matthías Imsland, um það? Þetta ærði mig og særði Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Pálmi HaraldssonMatthías Imsland ’ Er ekki hér með komin skýr- ingin á því að við, 90% farþeganna frá Alicante, áttum enga heimtingu á ör- yggisútskýringum á íslensku? Hvað segið þið, Pálmi og Matt- hías, um það?

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.