SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Page 28

SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Page 28
28 22. maí 2011 Í tveimur fyrri greinum mínum um Ísland framtíðarinnar vék ég að mikilvægi hins beina lýðræðis, opinnar og gagnsærrar stjórnsýslu og hóflegs efnamunar í fámenninu hér. Lagði jafnframt áherzlu á þýðingu lítilla og meðalstórra fyrirtækja og að komið yrði í veg fyrir að stærri fyrirtæki næðu einok- unarstöðu. Ennfremur að við sýndum hógværð í sjálfsmati og loks að innheimta bæri gjald fyrir nýtingu á öllum auðlindum í þjóðareign – ekki bara af fiskveiðum. Enn einn grundvallarþáttur, sem huga verður að er umhverfis- og náttúruvernd en um þann málaflokk hafa staðið miklar og á stundum harðar deilur á undan- förnum áratugum enda tengist hann beint því hvernig við nýtum landsins gæði til þess að efla afkomu okkar sem þjóðar. Á hálfri öld hafa orðið ótrúlegar breyt- ingar á viðhorfi manna til þess hvernig við nýtum náttúru landsins. Í upphafi Við- reisnaráratugarins má segja að þrír menn öðrum fremur hafi boðað nýtingu fall- vatnanna til þess að skjóta fleiri stoðum undir íslenzkt atvinnulíf. Þetta voru dr. Jóhannes Nordal, sem átti mestan þátt í því allra manna að byggja Landsvirkjun upp sem stórveldi á okkar mælikvarða, Eyjólfur Konráð Jónsson, þá ritstjóri Morgunblaðsins, sem var fyrst og fremst maður mikilla hugsjóna og Jóhann Hafstein, sem þá var iðnaðarráðherra. Allir þrír voru í þessari viðleitni innblásnir af Einari Benediktssyni, skáldskap hans og framtíðarsýn. Þeir litu á stóriðju tengda stórvirkjunum, sem stórkostlega hugsjón. Á sama tíma var Birgir Kjaran að leggja fyrstu drög að pólitískri stefnumörkun um náttúruvernd. Áratugum seinna var viðhorf margra orðið þveröfugt. Í stað þess að líta svo á að verið væri að hrinda í framkvæmd stór- brotnum hugsjónum Einars Benedikts- sonar um framtíð þjóðarinnar væri í raun verið að vinna skemmdarverk á landinu og náttúru þess. Kannski má finna upphafið að þessu breytta viðhorfi í baráttu bænda í Mývatnssveit gegn Laxárvirkjun (en Jó- hann Hafstein hafði mikla samúð með þeirri baráttu í hjarta sínu) og í grein eftir Halldór Laxness hér í Morgunblaðinu, sem nefndist: Hernaðurinn gegn landinu. Á seinni árum hefur Andri Snær Magnason rithöfundur öðrum fremur orðið helzti boðberi þessara sjónarmiða, alla vega í augum yngri kynslóða. Í þessum efnum sem öðrum skiptir máli að ná einhvers konar sátt í samfélaginu á milli ólíkra sjónarmiða. Það á að vera hægt. Allir þeir sem ferðast um Ísland og óbyggðir þess hljóta að hrífast af landinu og náttúru þess. Finnist manni skorta á tilfinningu hjá ungu fólki fyrir sögu lands okkar og þjóðar er bezta leiðin til þess að bæta úr því að fara með það unga fólk upp á miðhálendi Íslands og kynna fyrir því hvíta jökla, svarta sanda, fagurblá fljót og beljandi jökulár. Eða nyrzt á Strandir. Hver vill eyðileggja þessa fegurð með framkvæmdum? Þess vegna er ég andvígur því að leggja vegi um hálendið eins og hugmyndir voru um fyrir nokkrum árum eða byggja þar hótel eins og lagt var til. Þess vegna er ég andvígur öllum framkvæmdum, hvaða nafni sem nefnast í Þjórsárverum. Og and- vígur því að nokkrar frekari framkvæmdir verði yfirleitt á miðhálendi Íslands. En á sömu forsendum skil ég heldur ekki andstöðu við frekari virkjanir í neðri hluta Þjórsár eða við frekari nýtingu þeirra virkjana sem fyrir eru á Þjórsársvæðinu þar sem þess er kostur. Það er líka umhugsunarefni hvort aukin áherzla á nýtingu jarðvarma geti orðið þáttur í einhvers konar samfélagssáttmála um náttúru- og umhverfisvernd. Það er ekki sjálfsagt að virkja hvar sem er eða byggja álver hvar sem er til þess að bæta lífskjör þeirra, sem nú búa í landinu á kostnað þeirra, sem á eftir okkar koma. En það er heldur ekki ástæða til að hverfa með öllu frá uppbyggingu iðjuvera í krafti raf- orku, hvort sem er frá vatnsaflsvirkjunum eða með jarðvarma þar sem það verður gert án óbætanlegs skaða fyrir náttúru og umhverfi. Þess vegna er nýr samfélagssáttmáli um náttúru- og umhverfisvernd mikilvægur þáttur í því hvernig við byggjum Ísland framtíðarinnar upp. Hann á ekki bara að snúast um landið. Hvernig nýtum við auðlindir hafsins? Við erum komin vel á veg með verndun fiski- stofna en deilum hart um hvalveiðar. Hvalaskoðun er vaxandi atvinnugrein en hluti þjóðarinnar heldur stíft við að hvali beri að veiða. Að vísu eru sumir, sem halda því fram að þær gáfuðu skepnur sjái við okkur. Þær láti sig hverfa af þeim slóðum sem hvalveiðibátarnir sæki á. Sjálfur er ég andvígur hvalveiðum og viðurkenni að það er af tilfinningalegum ástæðum. Mér finnst ljótt að drepa hvali og tel ekki að þær veiðar skipti máli fyrir þjóðarbúið. En í þessum efnum er ekki hægt bæði að halda og sleppa. Það verður að taka ákvörðun. Sú ákvörðun að hefja hvalveiðar á ný var röng að mínu mati. Það hafa farið fram miklar umræður um náttúruvernd og umhverfismál í langan tíma. Þær hafa snúizt um átök á milli mis- munandi sjónarmiða en minna um að leit- að væri að málamiðlun, sem þorri þjóð- arinnar geti sætt sig við. Það er kominn tími til að leita slíkrar málamiðlunar. En jafnframt er ástæða til að leita nýrra leiða til þess að ósnortnar óbyggðir skili okkur tekjum einmitt vegna þess að þær eru ósnortnar. Vestfirðir eru ónumið land að mestu í alþjóðlegri ferðamennsku. Nú hefur á aðra milljón manna horft á klukkutíma mynd um gönguferð breskrar sjónvarpskonu, Júlíu Bradbury, á Eyja- fjallajökul fyrir ári. Er ekki hugsanlegt að slík mynd um gönguferð um Hornstrandir mundi opna augu umheimsins fyrir þeim ævintýraheimi? Ísland framtíðarinnar III: samfélagssáttmáli um náttúruvernd Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is Þ að voru áhyggjufullir foreldrar sem settu sig í samband við lögregluna í Washington í Banda- ríkjunum 6. maí 2001. Robert og Susan Levy, sem búsett voru í Kaliforníu, höfðu ekki heyrt frá 24 ára gamalli dóttur sinni, Chöndru, í fimm daga og var hætt að standa á sama. Chandra hafði varið vetrinum í höfuðborginni, þar sem hún vann sem lærlingur hjá fangelsismálastofnun. Lögregla heimsótti íbúð Levy en fann ekkert grun- samlegt. Þá spurðist hún fyrir á spítölum en stúlkan hafði ekki komið þangað. Faðir Levy trúði lögreglu fyrir því að dóttir sín hefði átt í ástarsambandi við giftan full- trúadeildarþingmann, Gary Condit, án þess að það þyrfti endilega að tengjast hvarfi hennar. Fjórum dögum síðar varð lögregla sér út um formlega heimild til leitar í íbúð Levy. Fundust þar meðal annars farsími hennar og greiðslukort, auk þess sem sett hafði verið niður í tvær ferðatöskur að hluta. Levy stefndi skónum aftur til Kaliforníu til að útskrifast úr námi í op- inberri stjórnsýslu. Á símsvaranum voru skilaboð frá áhyggjufullum ættingjum og Gary Condit. Vegna mistaka lögreglumanns á vettvangi eyddust síðustu netleitarfærslur Levy og tók það sérfræðing um mánuð að finna þær aftur. Kom þá í ljós að síðasta leit Levy, um hádegisbil 1. maí 2001, var að staðsetningu byggingar, Klingle Mansion, í Rock Creek-garðinum í Washington. Þar sem ekkert hafði enn spurst til ungu konunnar hófst leit af fullum þunga í garðinum. Hún skilaði ekki árangri. Fjölmiðlar höfðu snemma veður af meintum tengslum hinnar týndu stúlku við þingmanninn og hart var geng- ið að Condit. Eftir japl, jaml og fuður viðurkenndi hann að hafa þekkt Levy en harðneitaði að eiga þátt í hvarfi hennar. Lögregla yfirheyrði Condit en sá ekki ástæðu til að setja hann á lista yfir grunaða í málinu. Tæpu ári síðar tapaði Condit þingsæti sínu í kosningum og eru stjórn- málaskýrendur á einu máli um að Levy-málið hafi þar riðið baggamuninn. Í september 2001 barst lögreglu ábending frá fanga í ríkisfangelsinu í Washington. Hún var þess efnis að samfangi hans, hinn tvítugi Ingmar Guandique frá El Salvador, hefði stært sig af því að hafa banað Levy gegn greiðslu frá Gary Condit. Lögregla hafnaði fljótt aðild Condits að málinu en fór nánar í saumana á Guandique. Ekki tókst þó að sanna neitt á hann enda þótt Guandique hefði gengist við því að hafa ráðist á tvær aðrar konur í Rock Creek-garðinum um svipað leyti og Levy var myrt og hlotið fangelsisdóm að launum. Það var svo á þessum degi árið 2002 að vegfarandi gekk fram á jarðneskar leifar Chöndru Levy á af- skekktum stað í Rock Creek-garðinum. Var það niður- staða lögreglu að henni hefði verið ráðinn bani. „Ég hefði kosið að hafa úr meiru að moða. Óvíst er að við komumst nokkurn tíma að því hvernig hún dó,“ sagði réttarlæknirinn eftir að hafa rannsakað líkið. Fram kom að Levy hafði verið bundin með vír á höndum og fótum. Ekki tókst að tengja Guandique við morðstaðinn og málið lenti um tíma í „cold case“-kassanum. Árið 2006 setti lögregla það aftur í forgang og ári síðar hrinti the Washington Post af stað greinaflokki um málið. Þetta varð meðal annars til þess að leitað var í klefa Guandi- ques og fannst þá ljósmynd af Levy sem fanginn hafði klippt út úr tímariti. Eftir að hafa yfirheyrt ýmsa aðila sem tengdust Guandique, meðal annars samfanga sem fullyrti að hann hefði trúað sér fyrir því að hann hefði myrt Levy, taldi saksóknari sig hafa næg sönnunargögn til að gefa út ákæru á hendur Guandique. Hinn ákærði neitaði sök og saksóknara tókst ekki að tengja hann við morðið með óyggjandi hætti. Eigi að síður var Guandique í fyrra dæmdur í undirrétti í 60 ára fangelsi fyrir morðið á Levy. Dómnum var áfrýjað. orri@mbl.is Chandra Levy finnst myrt Chandra Levy var aðeins 24 ára þegar hún var myrt. Reuters ’ Ég hefði kosið að hafa úr meiru að moða. Óvíst er að við kom- umst nokkurn tíma að því hvernig hún dó. Þingmaðurinn Gary Candit var hundeltur af fjölmiðlum. AP Á þessum degi 22. maí 2002

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.