SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Qupperneq 32

SunnudagsMogginn - 22.05.2011, Qupperneq 32
32 22. maí 2011 E r við Jón hittumst er hann lítillega byrjaður að taka saman á skrifstofu sinni í bóknámshúsinu, sem tekið var í notkun á 15 ára afmæli skólans 1994. Fram að þeim tíma hafði Jón haft skrif- stofu í verknámshúsi skólans, ef undan eru skilin fyrstu fjögur árin er skólinn deildi aðstöðu með Gagnfræðaskól- anum á Sauðárkróki. Við stofnun skólans árið 1979 tók hann yfir Iðnskóla Sauðárkróks, sem hafði verið starfandi frá 1946, en frá upphafi hefur FNV boðið upp á bóklegt og verklegt nám. Fyrstu 15-20 árin fjölgaði nemendum úr 82 í nærri 500 árið 1999. Síðan þá hefur fjöldi nemenda sveiflast milli fjögurra og fimm hundraða en er núna kringum 400. Við byrjum samtalið á upphafinu fyrir 32 árum, en það gekk ekki þrautalaust fyrir sig að koma á nýjum fjöl- brautaskóla. Slíkir framhaldsskólar með áfangakerfi í stað bekkjakerfis rótgróinna menntaskóla höfðu verið að ryðja sér til rúms á seinni hluta áttunda áratugarins. Má þar nefna skóla eins og Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Fjöl- brautaskóla Suðurnesja og Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Jón segir löggjöfina ekki hafa verið þann stakk sem sniðinn var eftir vexti og framþróun skólanna, né heldur hafi verið til það reglugerðarverk sem þeim þjón- aði. „Segja má að frumkvæðið og nýsköpun í námskrár- vinnu kæmi frá grasrót skólanna,“ segir hann. Jón, sem er uppalinn Reykvíkingur, hafði áður kennt á Suðurnesjum hjá Jóni Böðvarssyni, sem kom þeim skóla á legg og var í framvarðasveit fjölbrautaskóla í baráttunni við kerfið fyrstu árin. Frá Suðurnesjum fór Jón til Akra- ness, þar sem hann var aðstoðarskólameistari áður en starfið á Sauðárkróki kom til álita. Tengslin við Skagafjörð voru til staðar, og réðu nokkru um að hann sótti um þar, því eiginkona Jóns, Elísabet Kemp, er fædd og uppalin á Sauðárkróki. Ráðist á ráðherrann Jón var skipaður í starfið í ágúst 1979 af þáverandi menntamálaráðherra, Ragnari Arnalds, þvert á vilja meirihluta skólanefndar, sem greiddi öðrum umsækjanda þrjú atkvæði en tvö féllu Jóni í skaut. Ráðningin var því umdeild og Jón m.a. stimplaður alþýðubandalagsmaður af þeim sem harðast gagnrýndu ákvörðun Ragnars. Sjálfur segist Jón nú lítið hafa átt saman við þann flokk að sælda og einu tengsl sín við stjórnmálaflokk á þeim tíma hafi verið myndbirting af sér í 40 ára afmælisriti Heimdallar. Margar útgáfur eru til af sögunni um aðförina að Ragnari Arnalds á heimili hans í Varmahlíð í kjölfarið á ráðningu Jóns og er í flestum tilvikum farið frjálslega með. Ein sagan segir frá því þegar bankað er á dyrnar og kveðst aðkomumaður ætla að drepa Ragnar og spyr hvort hann sé heima. „Því miður er ekki svo,“ á eiginkonan Hallveig Thorlacius að hafa sagt, að hætti stórhöfðingja, og var víst hart tekist á í garðinum í agaðri hælkrókaglímu með fúkyrðum eftir að komumaður hafði hafist handa við skógareyðingu í Varmahlíð og var byrjaður á þeirri iðju sinni í garði Ragnars. Ýmist endar sagan með því að Hall- veig beitir garðslöngunni til að kæla árásarmanninn niður og hrekja hann á brott, eða að Ragnar gerir það sjálfur. „Segir að mig minnir frá þessu í einu blaðanna og var kallað Vatnsslagurinn í Varmahlíð og kemur þar í röð frá- sagna af átakafundum í Skagafirði, næst á eftir Örlygs- staðafundi en að vísu nokkuð fámennari,“ segir Jón og kímir. Barist fyrir beinu símsambandi Þegar hann hóf störf við skólann í ágúst 1979 lágu engar umsóknir fyrir um skólavist, aðeins átta fyrirspurnir. Ráða þurfti kennara og annað starfslið og nokkrum vik- um síðar, eða í lok september 1979 hófst skólastarfið. Þá voru komnir 12 kennarar til starfa, þar af nokkrir stunda- kennarar, og nemendur fyrsta árið voru 82 á haustönn og 87 á vorönn. Heimavistin var einnig tekin í gagnið en samstarf tókst við sveitarfélög í Skagafirði, A-Húnavatns- sýslu og Siglufjörð um rekstur og uppbyggingu skólans og heimavistarinnar. Jón segir það hafa verið alllanga nót að draga en eftirminnilega. „Fyrstu árin mættum við víða hokurslegum við- horfum. Við þurftum að eiga mikil samskipti við stofnanir í Reykjavík eins og menntamálaráðuneytið. Þá varð að hringja inn á símstöð svo símtalið varð dýrara fyrir bragðið. Ætli það hafi ekki verið í eina skiptið sem ég var beinlínis ókurteis, er ég skipaði bæjarstjóranum að opna símann hjá okkur fyrir bein símtöl. Beint símsamband var ekki hjá öðrum stofnunum hér, hvorki hjá skólastjóra Gagnfræðaskólans né hafði verið á skrifstofu skólastjóra Iðnskólans. Bæjarstjórinn sá sinn hag vænstan í að verða við þessu,“ segir Jón. Baldur Hafstað var fyrsti aðstoðarskólameistarinn, sem Jón segir hafa haft næmt auga fyrir mannvits- og snilli- gáfu nemenda skólans. Hann hafi lagt nýja skólanum til brag mannúðar og mannræktar. Einhverju sinni stóð til að aga Gyrði Elíasson skáld, sem var í hópi fyrstu stúdenta skólans 1982, fyrir einhverja mótstöðu við fyrirmæli eins kennarans. Baldur kom honum til varnar og sagði hann vera vænt snillingsefni. „Baldur var mjög áhugasamur um allt mannlíf og menningu og þekkti vel til sveitarinnar. Hann léði svo héraðsfréttablaðinu Feyki vængi á fyrstu misserunum, lauk svo doktorsprófi og er nú prófessor af guðs náð. Það er svo margs að minnast frá frum- byggjaárum skólans. Katrín Finnbogadóttir var fyrsti rit- ari skólans og lagði sitt af mörkum til að gera starfsand- ann skæran og bjartan. Jón Ásbergsson var dugandi formaður skólanefndar, skarpur, áræðinn, hjálpsamur og ráðagóður. Ég á margs góðs samstarfsfólks að minnast og fyllist þakklæti er ég lít heilt yfir farinn veg fyrir kynnin af góðu fólki.“ Mikið tuð og talsvert bras Embættismenn höfðu uppi efasemdir um stofnun fjöl- brautaskólans á sínum tíma. „Það var víða fyrirstaða, mikið tuð og talsvert bras,“ segir Jón og rifjar upp er hann og þáverandi bæjarstjóri á Sauðárkróki, Þorsteinn Þor- steinsson, urðu að gera sér sérstaka ferð suður á fund Indriða H. Þorlákssonar í menntamálaráðuneytinu til að fá keypta ljósritunarvél til skólans. Indriði neitaði þeim um kaupin en Jón og Þorsteinn tóku sig til og fóru til Ott- ós Michelsen hjá IBM og spurðu þar um vönduðustu ljós- ritunarvélina sem til væri vestanhafs. Fékkst hún á end- anum keypt en til gamans má geta þess að Þorsteinn er nú stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins og náinn samstarfs- maður Indriða. Jón segir þessa atburði hafa rifjast upp ný- lega er hann sá þá félaga á vappi saman í Stjórnarráðinu. Spurður hvað hafi valdið þessari tregðu embættis- manna í þá daga segist Jón eiga erfitt með að átta sig á því. Fjölbrautaskólarnir hafi reyndar verið nýjung í skólakerf- inu og starfsreglur og skipulag að mörgu leyti ómótað og engin lög til sem tóku til þessara aðstæðna. Urðu skóla- stjórnendur því að berjast fyrir tilverurétti skólanna og eiga frumkvæði að mótun þeirra. Nefnir Jón í því sam- bandi að húsrýmisreglur, eða norm, voru ekki til fyrir heimavistir framhaldsskóla þegar heimavist skólans komst á fjárlög árið 1982. Voru tillögur að þeim reglum samdar af Jóni og starfsbróður hans þáverandi á Akranesi, Ólafi Ásgeirssyni, og samþykktar af menntamálaráðu- neytinu nær óbreyttar. Var þá ekki lengur fyrirstaða fyrir hönnun og byggingu heimavista. Tímabil lögleysunnar Annað dæmi um þessa baráttu skólanna fyrir bættum laga- og reglugerðarramma skólanna er kostnaðarskipt- ing um rekstur og uppbyggingu framhaldsskóla milli ríkis og sveitarfélaga. Menntaskólar voru byggðir af ríkisjóði einum en lengi vel hafði ríkið greitt 60% og viðkomandi sveitarfélög 40% í öðrum gerðum skóla. Kom þessi skipt- Ég gerði mitt besta Jón Friðberg Hjartarson, sem slítur Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra (FNV) í síð- asta sinn í dag, hefur setið lengur samfellt í stóli skólameistara framhaldsskóla en aðrir skólameistarar sem nú starfa. Hefur hann stýrt skólanum frá stofnun hans 1979 eða í 32 ár, að undanskildu einu ári í námsleyfi, og á þeim tíma hafa yfir tvö þúsund manns brautskráðst frá honum. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Jón F. Hjartarson skólameistari yfirgefur senn bóknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, eftir að hafa brautskráð nemendur þar í síðasta sinn í dag. Hann segist hætta sáttur.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.