SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Síða 2
2 2. október 2011
Við mælum með …
Laugardagur 1. október
Íslandsmeistaramótið í svarta-
pétri fer fram á Grænu könn-
unni á Sólheimum í 21. skipti, í
dag kl. 13.
Í byrjun verður 15 mínútna
upphitun og kennsla. Gert
verður hlé á mótinu og boðið
upp á léttar veitingar, heitt kakó
og kleinur. Þátttökugjald er
þúsund krónur og rennur ágóð-
inn til góðra málefna.
Morgunblaðið/Kristinn
Íslandsmóti í svartapétri
13 Glys að hætti Gucci
Hið fornfræga tískuhús Gucci fagnar níræðisafmæli í ár og gætir
áhrifa frá upphafsárum hússins í sumarlínunni 2012.
18 Hvaðan koma fréttirnar?
Hver drap dagblaðið? var spurt á forsíðu vikuritsins Economist árið
2006. Ekkert bendir þó til þess að dagblöðin deyi drottni sínum á
næstunni en mikil gerjun er í fjölmiðlaheiminum.
24 Fær ekki
að vinna
Áslaug Ósk Hinriksdóttir er bundin heima
við með langveikri dóttur sinni. Hún hefur
áhuga á að fara í hlutastarf á kvöldin þeg-
ar eiginmaður hennar er heima en geri
hún það missir hún rétt sinn til foreldra-
greiðslna.
32 Sáttmáli
borgaranna
Ég er þeirrar skoðunar að það hafi verið mikil mistök hvernig staðið
var að stjórnarskrármálinu, segir Tryggvi Þór Herbertsson.
34 Taktmælirinn styggði …
Steinar Matthías Kristinsson trompetleikari kom fram á tvennum tón-
leikum með ungmennahljómsveit í Palestínu fyrir skemmstu.
Lesbók
42 Feilspor fortíðar …
Enn einu sinni er Julian Barnes á listanum yfir bækurnar, sem kemur
til greina að hreppi Man Booker-verðlaunin .
16
38
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson af Mugison.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson,Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson.
Augnablikið
Ó
víða er notalegra að sitja en í blárri
lautu með grænu ívafi, jafnvel dálítið
rauðu, og tína beint upp í sig. Helst í
norðlenskri stillu. Láta sig dreyma um
sumarið sem ekki kom en njóta haustblíðunnar.
Þetta er í Hörgárdalnum.
Ég hef komið mér þægilega fyrir, sólin sleikir
andlitið og fluga suðar fallegan djass á hægri öxl-
inni. Þessum vængjaða vini mínum líður bersýni-
lega ekki síður vel en mér.
Konan mín krýpur við þarnæstu þúfu, tínir í
gríð og erg og ég sé fyrir mér hálffullan ísskáp af
sultum og saft, ímynda mér bláberjaskyrtertur,
kex og osta (og rauðvín handa gestunum) við
kertaljós á nístandi köldu vetrarkvöldi. Helst
norðan stórhríð. Oscar Peterson við flygilinn,
Niels-Henning plokkar bassann.
Það er langt síðan ég fór síðast í berjamó og er
satt að segja búinn að gleyma hve kyrrðin getur
verið mikil hér í sveitinni.
Það heyrist ekki einu sinni í hundi, hvað þá
lambi. Kannski vegna þess að heyrnin er ekki jafn
góð og í gamla daga en hugsanlega yfirgnæfir
smjattið í sjálfum mér öll önnur hljóð.
Maður verður vitaskuld að smakka, enginn til-
gangur með því að tína í heilan dag og átta sig ekki
á því fyrr en heim er komið að berin eru öll ónýt.
Konan er búin að fylla fyrri fötuna og mér sýnist
ekki mikið pláss eftir í þeirri seinni. Þetta eru
stórar málningarfötur. Forkur duglegur, konan.
Mér var falið að fylla litla málningardós.
Þegar ég sé að húsbóndinn er að farinn að huga
að heimferð rek ég upp ægilegt öskur. (Bragð sem
ég lærði hjá gömlum vini).
„Hvað elskan, meiddirðu þig?“
– Nei, en heldurðu að ég hafi ekki velt dósinni
um koll. Hún var orðin barmafull, allt stór og fal-
leg ber. Ansans! Og ekki nóg með það, ég var svo
mikill klaufi að ég steig í berjahrúguna og kramdi
allt sem ég var búinn að tína.
„Ég veit að þú ert klaufi, en er þetta ekki einum
of? Segðu mér bara satt, fór græðgin með þig?“
– Með mig? Nei, auðvitað ekki! Þetta var ein-
skær óheppni. Ég tíndi bara í dósina.
Um leið ég sleppi orðinu geri ég mér grein fyrir
því að óþægilegt augnablik nálgast:
„Opnaðu munninn og sýndu mér tunguna.“
skapti@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Bláköld staðreynd
„Súrrealismi í París“ er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í dag í
Fondation Beyaler-safninu í bænum Riehen nálægt Basel. Hér getur
að líta málverkið „Dýratemjarinn“ eftir Frakkann Francis Picabia
(1879-1953). Sýningin stendur til 29. janúar næstkomandi.
Veröldin
Reuters
Dýrin tamin
4. október
Eitís-stjarnan
Paul Young
mun, ásamt
hljómsveit,
halda tónleika í Eldborgarsal
Hörpu kl. 20. Young átti fjöl-
marga smelli sem komust inn á
vinsældalista og má þar meðal
annars nefna Everytime You
Go Away og Living For The
Love Of the Common People.
7. október
Landsleikur
Íslands og
Portúgals ytra
kl. 20. Þetta er
lokaleikur Íslands í forkeppni
EM en Ísland hefur hlotið 4
stig. Þetta er fjórða viðureign
þjóðanna í A-landsliðum karla
og hafa Portúgalar haft sigur í
öllum þremur leikjunum til
þessa.