SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Síða 11
2. október 2011 11
Skar og skarkali | 8
Þorgrímur Kári Snævarr
Þ
að átti að verða leikur „katt-
arinnar að músinni“, eins og
ágætur útvarpsmaður komst að
orði um árið, þegar kotbænd-
urnir í Brighton & Hove Albion mættu
burgeisunum í Manchester United í úr-
slitaleik bikarkeppni enska knattspyrnu-
sambandsins á Wembley-leikvanginum í
Lundúnum vorið 1983. Brighton hafði
fallið úr efstu deild fyrr um vorið og þótti
ekki líklegt til að standa í stórræðum.
Sparkspekingar hleyptu því brúnum
þegar Gordon Smith kom Brighton yfir
snemma leiks. United beit þá í skjaldar-
rendurnar og svaraði með tveimur
mörkum, fyrst Frank gamli Stapleton og
síðan Ray Wilkins með glæsilegu skoti.
Héldu þá flestir að baðstrandarbæingar
væru sigraðir. Ekki aldeilis. Kornungur
miðvörður, Gary Stevens, sem leysti
Steve Foster fyrirliða (manninn með
ennisbandið) af hólmi, jafnaði metin
þremur mínútum fyrir leikslok.
Fyrir vikið þurfti að endurtaka leikinn
nokkrum dögum síðar. Þá var allur vind-
ur úr Brighton sem tapaði 0:4. Við þann
leik verður ekki dvalið hér.
Þurfi hann að hægja sér …
Einn af máttarstólpum Brighton í téðri
úrslitarimmu var miðvellingurinn Tony
Grealish. Dæmigerður „fjarki“, sem sóp-
aði upp á miðjunni og elti leikstjórnanda
hins liðsins eins og skugginn. Frægt var
þegar Grealish glímdi með dvergliðinu
Leyton Orient við Arsenal í undan-
úrslitum bikarsins fimm árum áður og
sparkstjórinn Jimmy Bloomfield skipaði
honum að elta prímusmótor Lundúna-
liðsins, Liam Brady, allt síðdegið. „Þurfi
hann að hægja sér, ferð þú með honum!“
Til allrar hamingju kom ekki til þess
enda hefði það getað haft voveiflegar af-
leiðingar, Grealish og Brady voru félagar í
írska landsliðinu. Sá fyrrnefndi er raunar
fæddur í Lundúnum, á því herrans ári
1956, en bauðst að skrýðast grænu vegna
ættartengsla. Alls lék kappinn 45 lands-
leiki á ferlinum og skoraði í þeim átta
mörk. Einn þessara leikja fór fram í
Laugardalnum haustið 1983, þar sem Írar
lögðu Íslendinga 3:0.
Grealish lék 100 leiki fyrir Brighton á
árunum 1981 til 1984, þá lá leið hans til
West Bromwich Albion. Til skamms tíma
lék hann líka með Manchester City. Ferl-
inum lauk hjá Walsall árið 1992, þegar
Grealish var orðinn 36 ára.
Eins og svo margir fyrrverandi leik-
menn reyndi Grealish fyrir sér sem
knattspyrnustjóri. Hann komst þó aldrei
af utandeildarstiginu, spreytti sig bæði
hjá Bromsgrove Rovers og Atherstone
United. Engum sögum fer af árangri.
Að öðru leyti er fátt vitað um líf Greal-
ish í seinni tíð, greinarhöfundur rakst
raunar á forvitnilega spurningu á netinu
þar sem kappann bar á góma. Hún er
svona: Hvað eiga John Major [fyrrverandi
forsætisráðherra Breta] og Tony Grealish
sameiginlegt? Svarið er sláandi: Þeir
fæddust báðir í Lundúnum!
orri@mbl.is
Tony Grealish á fleygiferð með Brighton & Hove Albion snemma á níunda áratugnum.
Tony Grealish
Hvað varð um …
Tony Grealish í landsleik með Írum.
Af öðrum merkum mönnum sem léku téðan
bikarúrslitaleik með Brighton & Hove Al-
bion gegn Manchester United má nefna
miðvellinginn Jimmy Case, sem áður gerði
garðinn frægan hjá Liverpool, og miðherj-
ann Michael Robinson, sem síðar gekk í
raðir Rauða hersins. Sá síðarnefndi var
aumrista að upplagi og lék gjarnan með
málmplötu til að vernda á sér fæturna sem
hægði að vonum töluvert á kappanum.
Í liði Brighton þennan dag voru einnig
Graham Moseley, Graham Pearce, Neil
Smillie, Gary Howlett og Steve Gatting
sem lék meira en 300 leiki fyrir Brighton.
Aðrir merkir menn