SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Blaðsíða 14
14 2. október 2011
B
irkir Alfons Rúnarsson, 15 ára
strákur úr Keflavík, greindist
með bráðahvítblæði í janúar-
mánuði síðastliðnum. Hann
hefur gengið í gegnum stranga og erfiða
meðferð sem hefur snert við fólkinu í
kringum hann, bæði fjölskyldu og vin-
um. Í febrúar samdi vinur Birkis, Arnar
Már Örlygsson, 16 ára, rapplag tileinkað
Birki til að sýna honum stuðning í veik-
indabaráttunni og má hlusta á það á
mbl.is. Í kjölfarið reyndi hann að komast
í stúdíó og það gekk upp nú í lok sumars
þegar Andri Már Elvarsson hjálpaði hon-
um að útsetja lagið. Arnar setti síðan lagið
Hef trú á þér inn á Youtube nú í vikunni.
Arnar frétti af veikindum Birkis þegar
hann var á fótboltaæfingu. „Þetta var
rosalega mikið sjokk fyrir okkur alla í
fótboltanum og skólanum. Ég hafði æft
fótbolta með Birki síðan við vorum litlir.
Við fengum að vita af þessu daginn eftir
að Birkir greindist. Þjálfararnir okkar
sögðu okkur strákunum frá þessu,“ sagði
Arnar.
Margir þora ekki að hringja
Vináttu þeirra Arnars og Birkis má að
mestu rekja til fótboltans en þeir hafa æft
saman síðan þeir voru smástrákar. Þeir
hafa líka verið saman í skóla en þar sem
Arnar er ári eldri en Birkir hafa sam-
verustundirnar þar ekki verið eins margar
og í boltanum. Nú hefur Birkir ekki getað
verið eins mikið með vinum sínum og
hann hefði óskað en hann segir það eitt
það erfiðasta við veikindi sín. „Ég hef
samt verið duglegur að halda sambandi
við vini mína á Facebook og MSN en ég hef
ekkert alltaf getað hitt þá þegar ég hef
viljað. Ég er stundum bara of veikur til
þess eða í einangrun. Mér finnst ótrúlega
leiðinlegt að geta ekki farið og hitt krakk-
ana og komist á æfingar. Það koma samt
sumir til mín. Margir þora samt ekki einu
sinni að hringja, halda að þeir séu að trufla
mig. Ég verð helst að
hafa samband sjálfur
þegar ég treysti mér
til,“ sagði Birkir.
Stuttu eftir að
Arnar samdi textann
til Birkis sýndi hann
vini sínum verk sitt
og þótti Birki mikið
til þess koma. Þrátt
fyrir ungan aldur er
þetta ekki fyrsta rapplagið hans Arnars en
hann segir að hann hafi aðallega verið í
því að semja texta. „Þetta er samt í fyrsta
skipti sem ég sem texta til einhvers. Ég
hlustaði mikið á rapp þegar ég var lítill og
geri ennþá en rappið hefur haft mikil áhrif
á mig. Þegar ég byrjaði að hlusta á rapp
kölluðu allir rapparar sig MC og svo eitt-
hvað annað og ég byrjaði þá að kalla mig
MC Agga. Það breyttist síðan í MC Narra á
sólstöðuhátíðinni í Garði og hef ég haldið
því listamannsnafni,“ sagði Arnar
En hvernig skyldi
Birki hafa liðið þeg-
ar hann heyrði lagið
fyrst? „Ég fékk bara
gæsahúð. Það hafa
líka allir tekið laginu
svo vel og sumir
frægir rapparar á Ís-
landi sögðu að þetta
væri geðveikt, eins
og til dæmis Krist-
mundur Axel,“ sagði Birkir.
Hamingjuóskunum rignir yfir
Arnar setur stefnuna á að halda áfram í
tónlistinni og sagðist einmitt nýverið hafa
verið beðinn um að semja lag um einelti.
Hann segir viðbrögðin hafa verið mjög
góð við laginu. „Þeir sem hafa hlustað á
lagið segja mér að halda áfram. Mér er líka
óskað til hamingju hvar sem ég fer og það
er mjög gaman.“
Það er vissulega einstakt að fá tækifæri
Hef trú
á þér
Arnar Már, 16 ára, samdi rapplag til stuðnings
vini sínum Birki Alfons, 15 ára, en hann er nú í
harðri krabbameinsmeðferð.
Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is
„Ég fékk bara gæsahúð. Það hafa
líka allir tekið laginu svo vel og
sumir frægir rapparar á Íslandi
sögðu að þetta væri geðveikt,“
sagði Birkir um hvernig honum
leið þegar vinur hans, Arnar, færði
honum rapplag að gjöf.
’
Ég var samt alveg
hræddur um að ég
myndi deyja en
læknarnir sögðu að þetta
væri læknandi þannig að
þá bara hugsaði maður já-
kvætt og heldur því áfram.“