SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Blaðsíða 17
2. október 2011 17
segir Olga. „Þó að við séum ólíkir hönnuðir passar þetta
allt vel saman,“ segir Elísabet en hönnuðirnir kynntust
eftir að hafa tekið þátt í húsgagnasýningunni 10+ á
Hönnunarmarsi.
Volki hefur íslensku ullina í hávegum. Olga og Elísabet
hafa endurunnið íslenskar lopapeysur, sem þær fundu á
flóamörkuðum. „Það var svolítið sorglegt að sjá þær
svona í haug,“ rifjar Olga upp um hvernig ástarævintýri
þeirra við íslensku ullina byrjaði. „Við urðum ástfangnar
af prjónavörum og íslensku ullinni. Og þegar við fluttum
heim ákváðum við bara að einbeita okkur að þessu,“
segir Elísabet.
„Okkur fannst vöntun á því að gera hönnunarvörur úr
íslensku ullinni, ekki bara dæmigerðar túristapeysur,“
segir Olga. „Við erum ekki fatahönnuðir heldur erum
við að nýta ullina sem áklæði og nota hana í heim-
ilisvörur,“ segir Elísabet og á þá sem dæmi við púða og
teppi. „Við blöndum íslensku ullina með neonþráðum,“
segir Olga, sem setur mjög skemmtilegan svip á vörurn-
ar þeirra.
Ennfremur er Volki alltaf með verkefni í gangi sem
byggist á endurvinnslu og má núna nefna snagana
skemmtilegu, sem gerðir eru úr gömlum diskum.
Netagerðin verður opnuð næstkomandi fimmtudag,
hinn 6. október, og verður opnunarteiti á milli 17 og 19.
Dagurinn er bæði afmælisdagur Elísabetar og svo auðvit-
að kreppudagurinn mikli en þarna verður aðeins skálað
fyrir sköpunarkraftinum en kreppan send út í kuldann.
Yfirlitsmynd frá aðalrými Netagerðar-
innar sem sýnir úrvalið frá þessum sjö
hönnuðum, sem hafa tekið höndum
saman um rekstur verslunarinnar.
Stólllinn er til að mynda frá Stássi
og helklaði kollurinn frá Volka.
Gamalt fiskikar
hefur fengið nýtt líf
sem afgreiðsluborð.
Ættartréð, fatahengi frá
Volka fyrir alla fjölskylduna.
Fæst í þessum þremur litum
auk fjölmargra lita að eigin
vali gegn aukagreiðslu.