SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Page 25

SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Page 25
2. október 2011 25 L ífsgæði foreldra langveikra barna breyttust til muna árið 2006 með tilkomu foreldra- greiðslna. Foreldrar langveikra eða alvarlega fatlaðra barna gátu frá og með þeim tíma sótt um þessar greiðslur ef foreldrunum voru takmörk sett að vera á vinnumarkaði vegna umönnunar barna sinna. Foreldrar sem þurfa að leggja niður starf sitt vegna bráðaað- stæðna sem upp koma vegna barna þeirra gefst tækifæri til að fá tekjutengd- ar greiðslur í allt að þrjá mánuði. For- eldrar í námi eiga einnig kost á foreldra- greiðslum. Foreldrar sem hafa hvorki verið í vinnu, né í námi eiga rétt á svo- kölluðum grunngreiðslum. Eins gefst þeim foreldrum sem hafa þegið greiðslur á vinnumarkaði eða í námi í þrjá mánuði kostur á að sækja um þessar grunn- greiðslur. Það þýðir að foreldrar mjög fatlaðra barna og mjög veikra barna sem heyja áralanga og oft ævilanga baráttu við hindranir sínar þiggja flestir þessar grunngreiðslur. Hafi foreldri sem þiggur foreldra- greiðslur áhuga á að starfa á vinnumark- aði ásamt því að hugsa um veikt barn sitt er möguleiki fyrir það foreldri að vinna sér inn tekjur allt að 52.000 krónum án þess að það hafi áhrif á greiðslurnar. Óski foreldri aftur á móti eftir frekari vinnu sem gefur af sér meiri tekjur missir það foreldragreiðslunar að fullu samkvæmt Tryggingastofnun. Frelsandi að komast úr heimi veikinda Blaðamaður hefur persónulega reynslu af foreldragreiðslum þar sem hann neydd- ist til að þiggja þær um tíma. Þegar veik- indi barns blaðamanns dvínuðu gafst tækifæri til að haga fullu starfi maka þannig að blaðamaður hefði getað stund- að 30-40% starf með veiku barni sínu, aldrei meira. Þegar blaðamaður þá leitaði eftir þessu og reiknaði með að fá for- eldragreiðslur skertar um samsvarandi starfshlutfall var honum tilkynnt að væri honum fært að starfa á vinnumarkaði þá þyrfti hann ekki á þessum tilteknu for- eldragreiðslum að halda. Blaðamaður neyddist þá til að gefa frá sér starf sitt til þess að missa ekki foreldragreiðslurnar. Á þessum tíma hafði hann hafði verið rúmt ár frá vinnu og verið fastur í heimi veikinda og var þráin eftir venjulegu lífi orðin býsna fyrirferðarmikil. Að vera innan um fólk sem ekki glímir við veik- indi eða að geta hugsað um eitthvað ann- að en veikindi hefði verið afar kærkomið fyrir blaðamann á þessum tíma fyrir utan þá augljósu staðreynd að það hlýtur að vera hagkvæmara fyrir þjóðfélagið að greiða bótaþega 70% bætur í stað 100%. Mat Tryggingastofnunar Þegar leitað var svara hjá Trygg- ingastofnun hvers vegna ekki sé hægt að vera í hlutastarfi á móti skertum for- eldragreiðslum er vitnað í lög 22/2006 - 19. gr. um greiðslur til foreldra lang- veikra eða alvarlega fatlaðra barna þar sem kemur fram að heimilt er að veita foreldragreiðslur ef foreldri „getur hvorki sinnt störfum utan heimilis né námi vegna þess að barn þess þarfnast verulegrar umönnunar vegna mjög al- varlegs og langvinns sjúkdóms eða fötl- unar“. En það er því spurning hvort þetta sé rétt túlkun hjá Tryggingastofnun. Ef röstuðningurinn liggur eingöngu að baki setningunni „að geta ekki sinnt störfum“ má velta merkingunni fyrir sér: Á það við að geta ekki sinnt fullu starfi eða að geta ekki sinnt starfi að hluta? Þegar kemur að þessum mannlegu málaflokk- um, þarf lagatextinn þá ekki að vera skýrari eða er í lagi að hafa hann það óljósan að starfsmenn Tryggingastofn- unar þurfi að túlka lagatextann á ákveð- inn hátt? Eftir að blaðamaður las betur yfir lögin og leitaði til sérfróðs lögfræðings á þessu sviði, þá varð ekki annað séð en að gert væri ráð fyrir þeim möguleika að foreldri rétt þýðir það að bótaþegi sem þiggur foreldragreiðslur má vinna fyrir sér og fá allt að 52.000 krónur á mánuði í tekjur án þess að foreldragreiðslur skerðist. En fari tekjurnar í 53.000 krónur á mánuði missir bótaþeginn greiðslurnar að fullu. Veikindi og fötlun „venjast“ Einstaklingur sem lendir í því að eiga al- varlega veikt eða fatlað barn er á svip- stundu í þeirri stöðu í lífi sínu að athygl- ispunkturinn er aðeins einn, þ.e. veika eða fatlaða barnið. Hvernig sem umönn- unin er, hvort sem hún er mikil að því er varðar líkamlega aðstoð eða viðveru vegna kvala og vanlíðanar barnsins, þá er það ljóst að flestir foreldrar henda öllu frá sér til að sinna þörfum barnsins síns. Svo getur það gerst að ekkert breytist er varðar barnið árum saman. Fötlunin er enn sú sama, heilaæxlið er óviðráð- anlegt, taugahrörnun er viðvarandi o.s.frv. Á þessu ári eða árum sem for- eldrið hefur annast veikt eða fatlað barn sitt geta flestir foreldrar víkkað út at- hyglispunkt sinn þar sem umönnunin er orðin hluti af lífinu. Á þeim tíma getur það reynst foreldri vel að komast út úr heimi veikinda eða fötlunar þó ekki sé nema í örstuttan tíma eigi foreldrið kost á að hitt foreldrið, ömmur, afar eða aðrir aðstandendur eða vinir geti setið yfir og/ eða sinnt veika eða fatlaða barninu. Það að foreldrið treysti sér til að fara að vinna í hlutastarfi þarf ekki að þýða að fötlunin hafi gengið til baka, hrörnunarsjúkdóm- urinn hafi horfið eða að hjartagallinn sé á bak og burt. Það þýðir einfaldlega að veikindin eða fötlunin eru orðin hluti af hversdagslegu lífi fjölskyldunnar. Það er ekki auðvelt verk að stíga út úr ramma veikinda og fötlunar og fara aftur inn á vinnumarkaðinn eftir nokkurra ára fjar- veru. Það hlýtur hver maður að sjá að treysti foreldið sér til að fara í hlutastarf hlýtur það bæði að gera einstaklingnum og fjölskyldunni gott, fyrir utan sam- félagslega hagkvæmni. Letjandi bótakerfi Gefist foreldrum lang- veikra eða fatlaðra barna tækifæri til að fara að hluta út á vinnumarkað missa þeir rétt sinn til for- eldragreiðslna í stað þess að fá þær hlutfalls- lega skertar á móti starfi sínu. Texti: Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Myndir: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is ’ Ef túlkun Trygg- ingastofnunar á 19. grein er rétt, hvers vegna er þá 22. grein lag- anna til staðar...“ sem þiggur foreldragreiðslur geti unnið að hluta, en í 22. grein í lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða al- varlega fatlaðra barna segir: „Þegar samanlagðar grunngreiðslur skv. 19 gr., sbr. 20. gr. og tekjur foreldris og aðrar greiðslur, þar á meðal örorku- greiðslur úr almennum lífeyrissjóðum og séreignarsjóðum og fjármagnstekjur eru hærri en sem nemur grunngreiðslum að vibættu frítekjumarki skv. 2. mgr. skal skerða grunngreiðslur um helming þeirra tekna sem umfram eru.“ Svo virðist sem þessi lagagrein stangist á við túlkun Tryggingastofnunar. Ætti ekki sérstaklega að útiloka launatekjur í þessum texta ef túlkun Tryggingastofn- unar á að standast? Og því kann vel að vera að hópur af foreldrum langveikra og fatlaðra barna að fái þar röng svör þegar þeir leita réttar síns. Ef Tryggingastofnun vill alfarið reiða sig á sína túlkun á 19. grein laganna, um hvort viðkomandi eigi rétt á foreldra- greiðslum eða ekki, mætti hún vera skýrari. Eins er spurning hvers vegna 22. grein er í sömu lögum, um frádrátt vegna tekna og annarra greiðslna og frí- tekjumark, ef ekki er gert ráð fyrir að sá sem þiggur foreldragreiðslur hafi nokkr- ar tekjur að fjármagnstekjum og að ör- orkugreiðslum undanskildum. Hefði þá greinin ekki þurft að vera einskorðuð við þessa tekjuflokka? Ef túlkun Trygg- ingastofnunar á 19. grein er rétt, hvers vegna er þá 22. grein laganna til staðar og þyrfti þá ekki að nota annars konar orðasamband en „þar á meðal“? Sé mat Tryggingastofnunar á lögunum

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.