SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Blaðsíða 29

SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Blaðsíða 29
2. október 2011 29 rödd sem sló í gegn hjá Malasíubúum sem þóttust aldrei hafa heyrt annað eins enda komst pabbi nálægt því að framkalla jarðskjálfta með því að syngja Whitney Houston-lög í karókí. Þegar hann tók sér pásur klappaði fólkið hann upp og kallaði: Muggi. Muggi. Hann sagði: Sonur minn tekur núna nokkur lög. Þá sagði Skandin- avíubúi sem þarna var við mig: Ert þú þá Muggison? Á þessum tíma var ég ekki orðinn söngvari, bjó bara til elektróníska tónlist, en mér fannst flott að fæðast þarna sem Mugison á fylliríi með pabba mínum á karókí í Mal- asíu.“ Hverjir hafa haft áhrif á þig sem tónlistarmann? „Mjög margir. Ætli Björk hafi ekki haft mest áhrif. Hún var gríðarlega sterk fyrirmynd, sérstaklega á mót- unarárunum frá fjórtán ára til tvítugs. Og Smekkleysu- liðið allt saman og þá sérstaklega Einar Örn. Þegar hann sagði í Rokk í Reykjavík: Það skiptir ekki máli hvað þú getur heldur hvað þú gerir, þá var það fyrir mig eins og fyrir trúarkarl að frelsast inn í Biblíuna. Svo gekk ég vitaskuld í gegnum alls kyns tímabil, eins og rokkið, hippadóterí, underground, og hlustaði líka á menn eins og KK og Magga Eiríks. Ég drakk alla þessa tónlist í mig. Ég er kannski undir áhrifum frá tíu manns í einu lagi en það sjá ekki allir hvaðan þau áhrif koma.“ Eins og barn í sælgætisverksmiðju Þú ert tónlistarmaður sem er á ferðalögum og spilar erlendis. Er ekkert einmanalegt að vera löngum stund- um á flakki milli staða? „Þetta er dálítið eins og sjómennska. Einmanalegt að því leyti að ég er fjarri fjölskyldunni þegar ég er í út- löndum. En þegar ég er á ferðalagi hitti ég gríðarlega mikið af áhugaverðu fólki. Sérstaklega á skrýtnum og skemmtilegum tónleikahátíðum. Þá líður mér eins og ég sé barn í sælgætisverksmiðju. Svo ég gerist nú drama- tískur þá finnst mér vissulega ömurlegt að missa af því þegar börnin mín taka fyrstu skefin og segja fyrstu orðin Á móti kemur að það koma löng tímabil þar sem ég er heima. Ég var til dæmis heima svo að segja allt síðasta ár. Þannig að þetta jafnast út.“ Þú hefur samið kvikmyndatónlist, meðal annars við A Little Trip to Heaven og Mýrina. Er það öðruvísi en að semja annars konar tónlist? „Það er mjög góð þjálfun að semja kvikmyndatónlist, dálítið eins og að fara í líkamsrækt og þjálfa vöðvana. Það er líka eins og samtal. Með tónlistinni er maður að segja við áhorfandann: Þetta atriði er sorglegt, þarna er spenna, hér á að vera gaman, núna kemur ógn. Það er líka hópvinna, sem er góð tilbreyting. Maður hittir leik- stjórann og hann er annaðhvort ánægður eða óánægður með tónlistina sem maður hefur samið. Ef hann er ánægður þá er verkinu lokið en ef hann er óánægður þá byrjar maður bara upp á nýtt. Þetta er öðruvísi vinna en þegar ég er að semja lög og texta, þá snýst vinnan að svo miklu leyti um það hvað hjarta mitt vill segja. Það getur tekið á. Ég verð oft óánægður og hendi lögum. Það þarf svo mikið til að mér þyki lag eftir mig vera verulega gott. Ætli ég hendi ekki 80 prósentum af því sem ég geri. Sumt er óttalegt drasl.“ Hvað gerist þegar þú ert ánægður? „Það er eins og að vinna í bingó. Maður er kominn með allar tölur nema tvær og þá vaknar spenna. Svo koma réttu tölurnar og maður áttar sig á því að maður hefur unnið.“ Þú ert upphafsmaður að tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem haldin hefur verið reglulega á Ísafirði. Hvernig fékkstu þá hugmynd? „Við pabbi fengum hugmyndina í sameiningu og hún átti bara að vera gott grín. Ég var að spila á tónlistarhátíð í London árið 2003. Þetta var hefðbundin hátíð þar sem litlu nöfnin byrjuðu á því að spila og stóru nöfnin tóku síðan við. Ég var mjög lítill karl á plakatinu og spilaði snemma, um sjöleytið. Þegar ég var búinn að spila um kvölmatarleytið settumst við pabbi niður á barnum og ákváðum að búa til okkar eigin hugmynd að tónlist- arhátíð og brjóta allar reglur sem hafðar voru í heiðri á þessari hátíð. Í okkar dagskrá áttu þeir flytjendur sem væru minnst þekktir að ljúka tónleikunum og við bjuggum til langan lista. Þegar við komum heim þremur dögum seinna hittum við Ragnar Kjartansson myndlist- armann vin okkar og sýndum honum listann og honum fannst þetta óskaplega fyndið. Ragnar er einn af þeim mönnum sem hafa fallegan hlátur og geta fengið alla til að gera hvað sem er vegna þess að þeir eru svo skemmtilegir. Hann tók að sér að sannfæra íslenska tón- listarmenn um að þetta væri málið. Svo voru nokkrir eldhressir Ísfirðingar sem voru tilbúnir að gera þetta að raunveruleika, tæmdu frystihús á tveimur sólarhringum og elduðu mat ofan í liðið. Sáu um praktísk atriði sem karl eins og ég kann ekki á. Allt í einu vorum við komnir með 23 liða dagskrá fyrsta árið. Síðan hefur þetta verið fastur liður fyrir vestan.“ Hvernig gengur þér að lifa á því að vera tónlist- armaður? „Frá 2002 hefur mér tekist það. En það er reyndar ekki alveg sanngjarnt að miða við árið 2002 því þá var ég konulaus og barnlaus og það að lifa á tónlist fólst þá kannski bara í því að geta keypt sér bjór um helgar. Ég hóf minn feril á því að flakka um heiminn og spila fyrir ekki neitt á hinum og þessum stöðum. Fór svo í eft- irpartí þar sem ég kynntist fólki. Sumt af þessu fólki bauð mér svo að koma aftur og borgaði mér þá og með sumum hef ég verið að vinna síðan. Þannig náði ég að virkja erlend sambönd. Síðan hefur þessi ferill vaxið. Þegar ég svo þurfti að eiga eitthvað inni á bók þegar börnin mín tvö komu í heiminn þá gekk það upp.“ Heldurðu að tónlist þín verði í stöðugri þróun næstu árin? „Ég á marga drauma. Ég vil skapa og vinna með fólki. Ég hef stundum sagt að tónlistin mín sé skítsófrenísk. Ég held að hún sé þannig vegna þess að ég hef svo gaman af því að koma sjálfum mér á óvart og brjóta mínar eigin reglur.“ ’ Þegar ég er að semja lög og texta þá snýst vinnan að svo miklu leyti um það hvað hjarta mitt vill segja. Það getur tekið á. Ég verð oft óánægður og hendi lögum. Það þarf svo mikið til að mér þyki lag eftir mig vera verulega gott. Ætli ég hendi ekki 80 prósentum af því sem ég geri. Sumt er óttalegt drasl.“ Morgunblaðið/Eggert

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.