SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Blaðsíða 36
36 2. október 2011
Þ
ýska stórborgin Frankfurt er
mikið rædd í íslenskum bók-
menntaheimi um þessar mund-
ir, enda verður Ísland heið-
ursgestur á stærstu bókastefnu heims í
haust, sem haldin er þar á hverju ári.
Leið flestra liggur í upphafi á aðallest-
arstöðina, sem er í miðborg Frankfurt.
Eins og nærri má geta er hægt að taka
lest þangað frá flugvellinum í Frankfurt
og tekur ferðalagið um tíu mínútur. Það-
an er svo 20 til 30 mínútna ganga í átt að
gríðarstóru ráðstefnu- og sýningarsvæði
borgarinnar, sem er helgað bókastefn-
unni í þarnæstu viku.
En það má segja að öll vötn renni til
Frankfurt, því aðallestarstöðin er ein sú
stærsta í Evrópu og fjöldinn sem fer um
hana á degi hverjum er meiri en íslenska
þjóðin. Þaðan liggja fjölfarnar versl-
unargötur í átt að ráðhústorginu og fjár-
málahverfinu og á kvöldin eru þar knæp-
ur opnar fram á nótt og eins er nokkuð
um neónlýstar kynlífsbúllur.
Frankfurt er miðstöð fjármálaheimsins
í Þýskalandi og á meginlandi Evrópu og
höfuðstöðvar þýskra banka eru áberandi
í borgarlandslaginu. Þar er til að mynda
aðsetur evrópska seðlabankans, þýska
seðlabankans og þýsku kauphallarinnar.
Tilvalið er fyrir áhugafólk um aðild að
Evrópusambandinu að fara í verslunina á
fyrstu hæð evrópska seðlabankans, þar
sem kaupa má ýmsan varning merktan
evrunni, regnhlífar, hatta og súkkulaði.
Þá er notalegt að hreiðra um sig á
Hauptwache, sem stendur við neð-
anjarðarlestarstöð í miðborginni með
sama nafni. Hauptwache-byggingin var
reist árið 1730 og var fangelsi til að byrja
með og er nafnið dregið af því, sem út-
leggst á íslensku: „Aðalvarðstöðin“. Nú
er þetta vinsælt og víðfrægt kaffihús. Í
grennd við það eru kynningarhóf bóka-
útgefenda haldin í lok dags á bókastefn-
unni.
Einnig er gamla hverfið skemmtilegt,
ráðhústorgið einstakt og í nágrenni þess
má meðal annars finna Schirn-listasafn-
ið, þar sem íslensk handrit eru nú á sýn-
ingu Gabríelu Friðriksdóttur, og Frank-
furter Kunstverein, hvar Ragnar
Kjartansson hefur hreiðrað um sig.
Ef gengið er frá Aðalvarðstöðinni er
Goethe-safnið í leiðinni, í endurreistu
húsi skáldsins. Upprunalega húsið
hrundi í loftárás bandamanna árið 1944.
Þá er ráð að koma við í Pálskirkju, en þar
kom saman fyrsta lýðræðislega kjörna
þingið í Þýskalandi árið 1848.
Öll vötn renna til Frankfurt
Frankfurt verður á allra vörum á næstu vikum
þegar Ísland verður heiðursgestur á stærstu
bókastefnu í heiminum.
Texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Myndir: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is
Þýskur sælkeramatur á boðstólum.
Aðallestarstöðin í Frankfurt er í miðborginni og fara 350 þúsund farþegar um hana á dag,
enda er hún ein sú stærsta í Evrópu.
Mannlífið er líflegt á ráðhústorginu, en þar standa gamlar byggingar á borð við ráðhúsið, Hauptwache
og Nikulásarkirkjuna. Ráðhúsið samanstendur af ellefu húsum og hefur starfað þar í 600 ár.
Frankfurt er borg
skýjakljúfanna, sú eina
í Þýskalandi, og þar er
hæsta bygging Evrópu,
höfuðstöðvar Com-
merzbank.
Eins og nærri má geta er iðandi mannlíf í Frankfurt og þennan dag slógust kýrnar í hópinn.
Ferðalög