SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Page 44

SunnudagsMogginn - 02.10.2011, Page 44
44 2. október 2011 Louis Sachar - The Cardturner bbbmn Væntanlega þekkja flestir Louis Sachar fyrir bókina Holes eða samnefnda kvikmynd sem gerð var eftir bókinni, en bókin var einnig gefin út á íslensku undir heitinu Milljón holur fyrir nokkrum árum. Holes er bók fyrir unglinga, þó hún sé býsna harkaleg á köflum og The Cardturner er líka ætluð unglingum, en á annars lítið sameiginlegt með Ho- les. Í The Cardturner segir frá unglingnum Alton sem blindur frændi hans fær til að liðsinna sér við briddsspilamennsku. Fjölskylda Altons er áfram um að hann takið verkefnið að sér því frændinn er auðugur og von á góðum arfi ef vel tekst til, en Alton er á báðum áttum, ekki síst fyrir það að sem ungur maður hefur hann um margt annað að hugsa, þar á meðal hitt kynið og vandamál tengd því. Eftir því sem hann nær tökum á briddsinu fer honum þó eðlilega að þykja briddsspilamennskan forvitnilegri, en þegar hann kemst að því að frændinn á sér leyndarmál um ást í meinum og brostnar vonir eykst áhuginn til muna. Það er allmikið fjallað um bridds í bókinni, sem fælir kannski einhverja frá, en sagan stendur fyrir sínu, fróðleg og spennandi með smá dulrænu kryddi og ánægjulegum endi. Markur Sakey - The Two Deaths of Daniel Hayes bbnnn Söguhetja þessarar bókar rankar við sér allsnakin á afskekktri strönd á austurstönd Bandaríkjanna og hefur ekki hugmynd um hvernig hún endaði á ströndinni, hvaðan hún kom og hvert hún ætlar. Yfirgefin lúxusbifreið skammt undan gefur þó vís- bendingu og viðkomandi heldur í vestur. Smám saman áttar hann sig svo á því að hann er flæktur í óttalegt morðmál og eftirlýstur um gervöll Banda- ríkin. Ekki er þó allt sem sýnist og fljótlega kemur í ljós að meintur morðingi er fórnarlamb og hinn myrti sprelllifandi. Nokkuð vel skrifuð spennusaga, hröð og viðburðarík, en verður þó ótrúverðugri eftir því sem líður á hana og fyrir minn smekk er fátt leiðinlegra en illmenni sem er sannkallað ofurmenni, með yf- irburðagáfur og ótakmarkað fé. Það kemur þó ekki að sök ef bókin er lesin í einum rykk. Hún hentar til að mynda vel í stutta flugferð og gleymist svo snimmhendis. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Erlendar bækur 11. - 24. september 1. Frönsk svíta - Irène Ném- irovsky / JPV útgáfa 2. Stóra Disney köku- & brauðb. - Walt Disney / Edda 3. Ríkisfang: Ekkert - Sigríður Víðis Jónsdóttir / Mál og menning 4. Einn dagur - David Nicholls / Bjartur 5. Prjónað úr íslenskri ull - Ýmsir höfundar / Vaka-Helgafell 6. Sultur allt árið - Sigurveig Káradóttir / Salka 7. Lýtalaus - Þorbjörg Alda Mar- inósdóttir / JPV útgáfa 8. Hollt nesti heiman að - Mar- grét Gylfadóttir / Salka 9. Frelsarinn - Jo Nesbø / Upp- heimar 10. Einar Áskell og Alls- nægtapokinn - Gunnilla Bergström / Mál og menning Frá áramótum 1. Ég man þig - Yrsa Sigurð- ardóttir / Veröld 2. 10 árum yngri á 10 vik- um - Þorbjörg Hafsteins- dóttir / Salka 3. Bollakökur Rikku - Friðrika Hjördís Geirsdóttir / Vaka- Helgafell 4. Einn Dagur - David Nicholls / Bjartur 5. Djöflastjarnan - Jo Nesbø / Undirheimar 6. Betri næring - betra líf - Kol- brún Björnsdóttir / Veröld 7. Ljósa - Kristín Steinsdóttir / Vaka-Helgafell 8. Léttir réttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir / Hagkaup 9. Frelsarinn - Jo Nesbø / Uppheimar 10. Sokkaprjón - Guðrún Sigríður Magnúsdóttir / Vaka-Helgafell Bóksölulisti Lesbókbækur Skannaðu kóðann til að lesa Listinn er byggður á upplýsingum frá Bókabúð Máls og menningar, Bóka- búðinni Eskju, Bókabúðinni Hamra- borg, Bókabúðinni Iðu, Bókabúðinni við höfnina Stykkishólmi, Bóksölu- stúdenta, Bónus, Hagkaupum, Kaupási, N1, Office 1, Pennanum- Eymundssyni og Samkaupum. Rann- sóknasetur verslunarinnar annast söfnun upplýsinga fyrir hönd Félags íslenskra bókaútgefenda. J ulian Barnes er einn fremsti rithöfundur Breta um þessar mundir og sýnir það og sannar í nýjustu skáldsögu sinni, The Sense of an Ending, stuttri en meitlaðri sögu af manni, sem á gamals aldri tekur að gera upp líf sitt og kemst að því að minnið getur verið brigðull bak- hjarl sem deyfir og máir út frekar en að ýfa og stinga. Þegar byrjað er að ýta við því getur hins veg- ar ýmislegt komið fram. Tony Webster er í þriggja drengja skólaklíku. Fé- lagarnir eru uppteknir af sjálfum sér og reyna að breiða yfir takmarkanir sínar og óöryggi með háði og gáfulegu fasi. Þegar nýr drengur, Adrian Finn, kemur í skólann og verður hluti af klíkunni hefur það strax áhrif á félagana. Finn hefur greinilega meira til brunns að bera en þeir og er stjarnan í hópnum, sá sem hinir þrír miða sig við. Manst ekki alltaf það sem þú hefur orðið vitni að Leiðir skilur þegar vinirnir fara í háskóla. Hver fer sína leið. Webster á í sínu fyrsta ástarsambandi, sem reynist skammvinnt. Hins vegar fer svo að Finn byrjar með kærustu Websters. Sagan hefst hins vegar einhverjum fjörutíu árum síðar. Webster er fráskilinn, horfir yfir farinn veg og við blasir frekar óspennandi flatneskja. En það er margt sem Webster veit ekki. „Það sem þú á endanum manst er ekki alltaf það sama og þú hefur orðið vitni að,“ skrifar Webster. „Við lifum í tíma - hann heldur okkur og mótar - en mér hefur aldrei fundist ég skilja hann mjög vel.“ Allt í einu gerir fortíðin vart við sig. Webster berst bréf þar sem honum er tilkynnt að honum hafi tæmst arfur eftir móður fyrrverandi kærustu sinn- ar, 500 pund og dagbók Finns, sem framið hafði sjálfsmorð mörgum árum áður. Webster fer að púsla saman fortíð sína og kemst að því að hann hefur verið gjörsamlega úti að aka. The Sense of an Ending komst á stuttlistann yfir þær bækur, sem til greina kemur að hljóti Man Boo- ker-verðalaunin. Þetta er fjórða bók Barnes sem kemst á listann. Hinar voru Flaubert’s Parrot (1984), England, England (1998) og Arthur & George (2005). Barnes hefur hins vegar ekki hlotið verðlaunin og telja margir að nú sé röðin komin að honum. Höfundurinn við hlið lesandans Barnes hefur sagt að hann vilji hafa lesandann ná- lægt sér. „Sumir rithöfundar fara upp í púlt þegar þeir skrifa - þeir standa í ræðustóli og lesandinn er í áheyrendahópnum fyrir neðan þá og höfundurinn segir lesandanum frá lífinu og um hvað það snúist og hver sannleikurinn í því sé,“ sagði hann í viðtali fyrir nokkrum árum. „Ég sé hins vegar höfundinn og lesandann fyrir mér þar sem þeir sitja saman, ekki augliti til auglitis heldur hlið við hlið og horfa í sömu átt, í gegnum eitthvað eins og glugga á kaffi- húsi. Í þessari uppsetningu minni spyr höfundurinn lesandann „Hvernig heldurðu að hún sé? Hann er dálítið skrítinn, er það ekki? Hvers vegna eru þau að rífast?“ Sjónlína lesandans er samsíða sjónlínu höf- undarins - höfundurinn er bara aðeins á undan vegna þess að hann var fyrri til að taka eftir.“ The Sense of an Ending hefur fengið góða dóma í blöðum, þótt Barnes láti sér sennilega fátt um finn- ast. Í áðurnefndu viðtali segist hann aldrei hafa lesið gagnrýni, sem gerði sig að betri höfundi eða hafði áhrif á hvernig hann skrifaði næstu bók. Sjálfur hafi hann skrifað urmul umsagna, telji aðeins eina vel heppnaða og yfir henni hafi hann legið í nokkrar vikur. Sérstaklega finnst honum lítið til gagnrýn- enda dagblaðanna koma: „Ég tel blaðagagnrýn- endur vera hindrun misskilnings, sem bókin þarf að komast yfir áður en hún nær til lesenda.“ Julian Barnes telur gagnrýnendur vera hindrun misskilnings, sem bækur þurfi að komast í gegnum til að ná til lesenda. Ný bók hans, The Sense of an Ending, hefur fengið góðar umsagnir gagnrýnenda. Feilspor fortíðar og brigðult minni Enn einu sinni er Julian Barnes á listanum yfir bækurnar, sem kemur til greina að hreppi Man Booker-verðlaunin. Í nýjustu bók hans, The Sense of an Ending, segir frá fremur drungalegu ferðalagi eftir tröð minninganna. Skyldi röðin núna vera komin að honum. Karl Blöndal kbl@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.