Morgunblaðið - 29.04.2010, Page 13

Morgunblaðið - 29.04.2010, Page 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010 Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is VIÐRÆÐUR eru í gangi milli umhverfis- ráðuneytis og fjármálaráðuneytis um endur- greiðslu á um 95 milljónum króna sem inn- heimtar voru með skipulagsgjaldi á fasteignir á fyrrum umráðasvæði Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Reikna má með að upp- hæðin verði öll endurgreidd á næstu vikum. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála (ÚSB) hefur með tveimur úrskurðum komist að því að ekki var lagastoð fyrir innheimtu gjaldsins á byggingar sem voru byggðar fyrir mörgum árum eða áratugum. „Þetta gerist sjálfvirkt í kerfinu og gjaldið er lagt á samkvæmt brunabótamati,“ segir Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í um- hverfisráðuneytinu. „Við höfum farið yfir fyrri úrskurðinn í ráðuneytinu og erum nú í við- ræðum við fjármálaráðuneytið um afgreiðslu málsins. Ég tel allar líkur á að öll upphæðin verði endurgreidd þar sem um er að ræða inn- heimtu sem ekki stóðst lög.“ Skipulagsgjald rennur í skipulagssjóð, sem er í umsjón Skipulagsstofnunar og úr honum fá sveitarfélög endurgreiddan kostnað við að- alskipulag. Gjaldið er innheimt við nýbyggingu húsa og húsin á Keflavíkurflugvelli koma inn á fatseignaskrá sem ný hús, löngu eftir að þau voru byggð og það raunverulega utan íslenskr- ar stjórnsýslu. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. krafðist endurgreiðslu á tæplega 83 milljónum króna og Keflavíkurflugvöllur ohf. krafðist endurgreiðslu á rúmlega tólf milljónum. ÚSB féllst á síðarnefndu kröfuna, en taldi að kæra Þróunarfélagsins væri að stærstum hluta fram komin of seint og féllst úrskurðarnefndin á kröfu um endurgreiðslu að upphæð um fjórar milljónir. Til meðferðar í ráðuneytum Eins og áður sagði, eru ráðuneytin nú með endurgreiðslu á allri upphæðinni til meðferðar. Í úrskurði ÚSB segir meðal annars: „Verður ekki á það fallist að umræddar fasteignir, sem reistar hafa verið fyrir árum og áratugum, verði talin nýreist hús í skilningi 35. gr. skipu- lags- og byggingarlaga er umdeild álagning fór fram. Engin eðlis- eða efnisrök leiða til þess að beitt verði svo rúmri lögskýringu við túlkun þess lagaákvæðis, sem umdeild álagning styðst við, þegar litið er til orðalags þess. Verð- ur og að líta til þess að um er að ræða eldri fasteignir á svæði sem löngu hafði verið byggt upp og skipulagt á kostnað framkvæmdaaðila er álagning skipulagsgjaldsins fór fram.“ Reiknað með endurgreiðslu á 95 milljóna ofteknu gjaldi  Viðræður milli ráðuneyta um endurgreiðsluna  Álagning skipulagsgjalds á Keflavíkurflugvelli stóðst ekki lög  Gömul hús á vellinum ekki talin nýreist hús  Upphæð endurgreidd á næstu vikum Morgunblaðið/Ómar Nýtt líf Á varnarsvæðinu fyrrverandi á Keflavíkurflugvelli eru um 100 fjölbýlishús og lífið þar hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum. Álagt skipulagsgjald á svæðinu stóðst ekki lög. „ÞEGAR og ef Alþingi skoðar ráð- herrábyrgð, þá er það ekkert tak- markað við þessa þrjá ráðherra sem rannsóknarnefnd Alþingis segir að hafi sýnt af sér vanrækslu í starfi,“ segir Þórður Bogason hæstaréttalög- maður, sem í gær hélt fyrirlestur á fundi í Háskóla Íslands. Fundurinn nefndist „Lögin, eftirlitið og ábyrgð- in!“ og var hluti af fundaröð um hvað megi læra af skýrslu rannsóknar- nefndarinnar. Þórður bendir á að nefndin hafi einungis fjallað um vanrækslu sam- kvæmt þeim skilningi sem fram kem- ur í lögum um nefndina. Til að mynda sé tekið fram í umfjöllun um Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur, þáver- andi utanríkisráðherra, að nefndin fjalli ekki um pólitískar athafnir hennar. Nefndin fjallaði því ekki um ráðherraábyrgð, bendir Þórður á, enda var það ekki hlutverk hennar. Það sé hins vegar hlutverk Alþingis og að ákveða hvort einhverjum verði stefnt fyrir landsdóm. Þingið hljóti að gera það, m.a. með það í huga sem fram kemur í skýrslunni. „Þótt ekkert sé fjallað um ráð- herraábyrgð í skýrslunni, kallar lest- ur hennar upp í hugann ákveðin at- riði sem kallast á við ráðherra- ábyrgð,“ segir Þórður. Sem dæmi nefnir hann það sem fram kemur í skýrslunni um ráðherrana þrjá sem nefndin telur hafa sýnt af sér van- rækslu. Á ráðherrunum þremur, þáverandi fjármálaráðherra, forsætisráðherra og viðskiptaráðherra, hvíldi stjórnar- skrárbundin og lagaleg ábyrgð á efnahagsmálum, peningamálum og eftirliti með fjármála- og viðskiptalíf- inu, bendir Þórður á. Ljóst sé af lög- um um ráðherraábyrgð að lagabrot og brot á stjórnarskrá geti varðað við ráðherraábyrgð, segir hann, svo og stórkostlegt gáleysi og ásetnings- brot. hlynurorri@mbl.is Ráðherraábyrgð ekki takmörkuð við þrjá Morgunblaðið/Kristinn Nefndin Skýrslan kynnt. Margt í skýrslunni kallast á við ráð- herraábyrgð GRÓÐURNÁLAR eru farnar að stinga sér upp úr ösku sem liggur yfir túnum undir Eyjafjöllum. Á þeim svæðum sem hafa verið hreinsuð er gróður kominn ótrú- lega vel af stað. Þetta segir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri sem í gær kannaði stöðuna á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. „Í út- haga er gróður kominn miklu skemmra á veg,“ segir Sveinn. Eyfellingar hafa orðið fyrir þungum búsifjum af völdum eld- gossins, þá sérstaklega byggðin frá Steinum og austur að Skógum, en þar er víða þriggja til fjögurra cm lag yfir túnum. Þá lagðist þykkur jökulleir og framburður sem barst fram með Svaðbælisá yfir sneið af úthaga Þorvaldseyrar og hluta af túnum bænda í Önundarhorni og síðustu daga hefur verið lögð mikil vinna í að hreinsa leirinn. „Menn hafa gengið í hlutina af kappi og mér finnst vel að verki staðið,“ seg- ir Sveinn Runólfsson. Hann telur raunar líklegt að bændur undir Eyjafjöllum, sem gjarnan hefja heyskap viku af júní, fari af stað á svipuðum tíma og vanalega, ef ekki kemur meiri aska, þó hey sem fæst af túnum sem gjóska ligg- ur yfir verði kannski ekki lystug taða. Vegagerðin vinnur nú að því að styrkja varn- argarða við Svaðbælisá sem lösk- uðust þegar jökulflóð barst fram ána í upphafi goss. „Það er þýðingarmikið að endur- bæta garðana, sem er samstarfs- verkefni Vegagerðar og Land- græðslu. Enn er óljóst hvernig það verkefni verður fjármagnað. Ég vil þó trúa að farsæl lausn finnist. Hitt stóra málið er svo hve úthagi er illa leikinn, til dæmis heiðar sem liggja upp frá bæjunum frá Þorvaldseyri að Rauðafelli og upp að jökli. Þetta svæði verður nokkur ár að jafna sig og það væri æskilegt að Land- græðslunni yrði gert kleift að styrkja gróður á heiðunum til að koma í veg fyrir gróðureyðingu,“ segir Sveinn. sbs@mbl.is Ljósmynd/Þorgeir Sigurðsson Gróður Hinar grænu nálar eru harðgerar og stinga sér sigurvissar upp úr öskunni. Nálar í öskunni og gróðurinn af stað Sveinn Runólfsson PÁLL Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, stendur við fyrri yfirlýsingu um að starfsmenn Þekkingar hafi ekki lagt hald á gögn í húsleit hjá Símanum í liðinni viku. Segir hann starfsmenn Þekkingar einungis hafa komið að afritun raf- rænna gagna og tengdum verk- efnum, m.a. undirritun eyðublaða tengdum afrituninni. Í tilkynningu sem Síminn sendi frá sér í gær segir að handlagningaskrá undirrituð af starfsmönnum Þekk- ingar stangist á við fullyrðingar Páls Gunnars í fjölmiðlum í fyrradag þess efnis að starfsmenn Þekkingar hafi hvergi komið nálægt handlagningu gagna. „Við fengum einstaklinga með upplýsingatækniþekkingu til liðs við okkur við aðgerðina og leituðum til Þekkingar í því skyni. Þessir ein- staklingar voru starfsmenn Sam- keppniseftirlitsins á vettvangi og fólst hlutverk þeirra í afritun rafrænna gagna. Efnisleg skoðun rafrænna gagna sem varða þetta mál er hins vegar ekki hafin,“ segir Páll Gunnar. Aðspurður hvort ekki sé undarlegt að starfsmenn fyrirtækis sem er í samkeppni við Símann taki þátt í hús- leit hjá fyrirtækinu, segir Páll Gunn- ar: „Samkeppniseftirlitið þarf oft að leita í stærri verkefnum til aðila út fyrir stofnunina og gerir það á fagleg- an hátt. Það er ekkert athugavert við það. Hins vegar er það réttur fyrir- tækja að láta reyna á starfshætti eft- irlitsins, bæði formlega þætti og eins efnislegar niðurstöður. Síminn hefur borið málið undir Héraðsdóm Reykjavíkur og það er hinn rétti vett- vangur til að útkljá þetta mál. Þar munum við svara málatilbúnaði Sím- ans.“ hlynurorri@mbl.is Komu aðeins að afritun  Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segist standa við fyrri yfirlýsingar vegna húsleitar hjá Símanum í vikunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.